I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Blaðsíða 33
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur
allt frá stofnun sinni 7. nóvember
1907, verið trúr ætlunarverki sínu.
Hann hefur verið brjóstvörn fólks-
ins, svo það fái sjálft notið þess fjár
er það aflar, og að vera virkur þáttur
í baráttu gegn þeirri miðstýringu
valds og fjármagns sem varpar um
og skugga á efnahagslif þjóðarinnar.
í Hagsmunum Suðurnesja hafa
verið kynnt rúmlega 40 fyrirtæki.
Eitt hafa þau átt sameiginlegt og það
eru viðskipti við Sparisjóðinn í
Keflavík eða útibú hans. í flestum
tilfellum er um að ræða veruleg við-
skipti og fleiri en eitt látið þau orð
falla, að án stuðnings Sparisjóðsins
hefði reksturinn aldrei gengið. Saga
Sparisjóðsins í Keflavík er á vissan
hátt spegilmynd af lífi og háttum
okkar Suðurnesjamanna og þver-
skurður af þeirri ótrúlegu atvinnu-
lífsbyltingu sem orðið hefur á þess-
ari öld.
Saga Sparisjóðsins er um leið saga
framfarasinnaðra athafna- og hug-
sjónamanna sem lögðu fram ómæl-
anlegt, óeigingjart starf til þess að
hrinda hugsjón í framkvæmd, sjá
drauma verða að veruleika.
Fyrsta lánið var veitt frá Spari-
sjóðnum á 2. afgreiðsludegi hans,
þann 13. janúar. Það var 600 kr. víx-
ill til tveggja mánaða, en alls voru á
fyrsta árinu veitt 49 lán. Þau voru frá
20 krónum og upp í 700 krónur. Á
aðalfundi eftir fyrsta starfsár Spari-
sjóðsins kom fram tillaga um að
veita gjaldkeranum 75 kr. þóknun.
Tillagan var samþykkt.
Endanlegu ársuppgjöri fyrir árið
1983 er ekki lokið, en helstu niður-
stöðutölur eru þessar:
Heildarvelta sparisjóðsins 1983
var um 14.0 milljarðar króna. Inn-
stæðufé var um sl. áramót um 530
milljónir kr. og náði Sparisjóðurínn
í Keflavík því marki að verða stærsti
sparisjóðurinn í landinu.
Fjöldi starfsmanna hjá spari-
sjóðnum er 60 manns. Elsti starfs-
Tómas Tómasson, sparisjóðsstjóri.
maður sjóðsins, aðalgjaldkerinn,
Bragi Halldórsson, hóf störf 1955.
Hinn 26. mars 1974 réð stjórn
Sparisjóðsins tvo menn, Tómas
Tómasson og Pál Jónsson, í störf
sparisjóðsstjóra. Tóku þeir til starfa
sama ár, eða 1. maí, og sitja enn við
stjórnvölinn. Það, að ráðnir voru
tveir sparisjóðsstjórar, markaði
tímamót í sögu Sparisjóðsins og
hafði einnig breytingar í för með sér
á starfsemi annarra sparisjóða, sem
farið hafa inn á sömu braut, eftir að
hafa séð þá kosti sem slíkt hefur í för
með sér.
Tómas Tómasson er lögfræðingur
að mennt, hafði áður starfað lengst
við bæjarfógetaembættið i Keflavík.
Einnig starfaði hann sjálfstætt sem
lögfræðingur og þá m.a. fyrir Spari-
sjóðinn.
Páll Jónsson lauk prófi frá Sam-
vinnuskólanum og starfaði síðan við
ýmis bókhaldsstörf, lengst af hjá ís-
lenskum Aðalverktökum sem aðal-
féhirðir, eða í 17 ár.
Þeir eiga það sameiginlegt að vera
báðir merkir félagsmála- og sveitar-
stjórnarmenn.
Sparisjóðurinn er aðili að
Pátl Jónsson, sparisjóðsstjóri.
greiðslukortakerfi VISA ISLAND
og hafin eru gjaldeyrisviðskipti, eins
og í öðrum stærri sparisjóðum. Þar
með getur Sparisjóðurinn veitt Suð-
urnesjamönnum alla almenna
bankaþjónustu til mikils hagræðis
fyrir viðskipti hans.
Landsþjónusta sparisjóða er mik-
ilvægur liður í þjónustu sparisjóð-
anna með afgreiðslu á 45 stöðum
víðsvegar um landið.
Með tilkomu tölvuþjónustu
Sparisjóðsins var stórbreyting á
starfsháttum til bættrar og hraðari
þjónustu, upplýsinga og aukins ör-
yggis, og leggur Sparisjóðurinn
áherslu á að fylgjast sem best með
hinni öru þróun í tölvuvæðingu,
enda var Sparisjóðurinn með fyrstu
lánastofnunum á íslandi til að taka
tölvur í sína þjónustu og er í dag
einna best búinn í þeim efnum.
Það er auðvitað öllum ljóst, að
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur eflst
og vaxið svo sem raun er á orðin
vegna þess fyrst og fremst, hversu
íbúar svæðisins hafa sýnt honum
mikla velvild og traust og hversu
góðu starfsfólki hann hefur ætíð
haft á að skipa.
33