I. alþjóðamótið - 15.02.1984, Page 37
Grindavík í hnotskurn
Grindavík er dálítið afskekkt frá
hinum byggðarlögunum á Suður-
nesjum, enda líka á suðurströndinni.
Til Grindavíkur liggur þjóðbrautin
af Vogarstapa yfir hraunið, fram hjá
Svartsengi og hitaveitumannvirkjun-
um. Meðfram veginum liggja hita-
veiturörin, inn í byggðina, sem lætur
fremur lítið yfir sér, sambland af
gömlum og nýjum húsum, í aðskild-
um hverfum.
Grindavík skiptist í þrjú byggða-
hverfi, Staðarhverfi sem er vestast,
Járngerðarstaðahverfi sem er í miðið
og Þórkötlustaðahverfi sem er aust-
ast. Byggðin í Krísuvík tilheyrði
einnig Grindavík, þar til hún varð
hluti af lögsagnarumdæmi Hafnar-
fjarðar með lögum frá 1940. Grinda-
vík hlaut kaupstaðarréttindi árið
1974. Bæjarfógeti þar er jafnframt
bæjarfógeti í Keflavík og Njarðvík,
og sýslumaður í Gullbringusýslu.
Nú er meginbyggðin umhverfis
Járngerðarstaðavíkina. Lítils háttar
byggð er í Þórkötlustaðahverfi, en
Staðarhverfi fór í eyði 1964. Þar eru
nú fáeinir sumarbústaðir en föst bú-
seta hófst þar á ný í einu húsi árið
1977, vegna fiskeldis. Prestssetrið
Staður kom oft við sögu fyrr á öld-
um. Þar var kirkja til ársins 1909 er
hún var flutt til Járngerðarsaðar-
hverfis en kirkjugarður Grindvík-
inga er enn á Stað.
Austan Þórkötlustaða eru bæirnir
Hraun og ísólfsskáli, báðir í byggð.
íbúum Grindavíkur hefur fjölgað
mjög frá aldamótum, þá voru þeir
357, en eru nú um 2000.
Grindvíkingar hafa frá öndverðu
byggt afkomu sína á landbúnaði og
Öll eftirtalin heildarverk eru seld
með afborgunarskilmálum:
Afborganir
Þjóðsögu eru
vaxtalaus lán.
Jón Árnason: íslenskar þjóðsögur og ævintýri — 6 bindi
Þorsteinn M. Jónsson og Jónas Rafnar: Gríma hin nýja — 5 bindi
Sigurður Nordal og Þórbergur Þórðarson: Gráskinna hin meiri — 2 bindi
Séra Jón Thorarensen: Rauðskinna hin nýrri — 3 bindi
Ólafur Davíösson: íslenskar þjóðsögur — 4 bindi
Sigfús Sigfússon: íslenskar þjóðsögur og sagnir — 9 bindi
Jón Trausti: Ritsafn — 8 bindi
Árbækurnar: Stórviðburðir líðandi stundar í myndum og máli — 16 bindi
Þetta eru alls 42 bindi af sönnum bókmenntum. Hverju íslensku
heimili væri sómi að þvi að eiga þessi grundvallarverk í bókasafninu.
Bókaútgáfan Þjóðsaga
Þingholtsstræti 27
Símar 13510-17059-Pósthólf 147
37