Skák


Skák - 01.09.2001, Page 21

Skák - 01.09.2001, Page 21
) * > rfLundin/ Myndin sú arna er að þessu sinni æði gömul, en merkileg fyir ým- issa hluta sakir. Myndin er reyndar frá Minningarmóti um Guðjón M. Sigurðsson - Guð- jónsmótinu sem sumir kölluðu Taimanov mótið, en það var haldið í Sjómannaskólanum í mars 1956. Frægast er mótið líklega fyrir frammistöðu Benónýs Bene- diktssonar sem gerði jafntefli við báða sovésku meistarana, Taima- nov og Ilivitsky og er sú saga kunn í íslenskri skáksögu - og svo sigraði Friðrik Ólafsson á mótinu, sem að sjálfsögðu dró að sér athygli og áhorfendafjöld! Keppendur voru 10 og má máski greina þá alla á myndinni. Næst snýr Sveinn Kristinsson baki í myndavélina en andstæð- ingur hans er Jón Þorsteinsson. Þá teflir Gunnar Gunnarsson við Baldur Möller, en andstæð- ingur Benónýs er væntanlega Guðmundur Agústsson sem stendur við gluggann næst við hlið Sigurðar Jónssonar forseta S.í. Þá fer að vandast málið, en væntanlega teflir Freysteinn Þor- bergsson við Taimanov og fjærst fæst Friðrik Ólafsson við Ilivit- sky. Það taldist til nýjunga að allar skákir voru sýndar á sýningar- borðum í taflsal og skýrðar á næstu hæð og hafði Gísli Isleifs- son sem stendur fyrir miðju um- sjón með þeim þætti. Hvergi kem ég auga á móts- stjórann Jón Böðvarsson, en að- stoðarskákstjórinn Bjarni Felix- son stendur að baki Baldurs Möller og Árni Jakobsson einn skákstjóranna við hlið hans. Ekki þori ég að nafngreina á- horfendur, þótt ég þykist þelckja þar nokkur andlit - hitt man ég að mjög heitt og mollulegt var oft í salnum og spenna mikil! S K A K 231

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.