Skák


Skák - 01.09.2001, Blaðsíða 31

Skák - 01.09.2001, Blaðsíða 31
 Michaelt Tal (t.h.), boðberi ferskra vísinda ískákheiminum, sýnir Kasp arov einhverja snilldina, en Kortsnoj fylgist með. meðferðar sigurskák Kramniks úr fyrstu umferð mótsins í síð- ustu grein minni, Kramnik hélt forystunni allt fram í 10. umferð m.a. vegna þess að Kasparov fékk aðeins einn vinning í skák- um sínum við heimamanninn Sadvakasov: 1. Kramnik 6!/2 v. ( af 9 ) 2. Kasparov 6 v. 3. Gelfand 5 v. 4. Morozevitsj 4 v. 5. Sjirov 3'/2 v. 6. Sadvakasov 2 v. Kasparov vann lokauppgjörið við Kramnik og sigur hans var glæsilegur, taflmennskan hreint augnayndi. Þetta er níunda stór- mótið í röð sem hann vinnur og þó hann sé heimsmeistaratitli sviptur er þrátt fyrir allt ekki lít- il upphefð í því að vera númer eitt á heimslistanum. Astana 2001 Hvítt: Garrij Kasparov Svart: Vladimir Kramnik Spænskur leikur - Berlínar vörn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. 0-0 (Þó að Kasparov hafi aldrei unn- ið skák gegn Berlínar-vörninni velur hann þó ekki annað fram- hald eins og nokkrum sinnum í einvíginu í London. Hann lítur á það sem prinsippmál að brjóta niður þennan múr.) 4. - Rxe4 5. d4 Rd6 6. Bxc6 dxc6 7. dxe5 Rf5 8. Dxd8+ Kxd8 9. Rc3 (I viðaukaskákum vil ég benda á viðureign Jóns L. Arnasonar og Suszu Polgar í keppni Taflfélags Reykjavíkur MTK Budapest sem fram fór í Budapest 1989. Ungverjarnir skörtuðu Lajos Portisch, Polgar-systrum, Forin- tos og Barbero svo nokkrir séu nefndir en við unnum 8j/2 : 3:/2 . Jón vann Suszu 2:0 og hann valdi sömu uppbygg- ingu og Kasparov í þessari skák. Hvernig Jón L. ýtir verðandi heimsmeistara kvenna út af borðinu er auðvitað aðdáunar- vert. Gáið sérstaklega að kafla skákarinnar frá 23. leik: 23. Rcl Hd2+ 24. Kg3 Ha8 25. f5 exf5 26. gxf5 Rf8 27. Rd3 Be7 28. Hf2 Hxf2 29. Kxf2 og eftir að allt mótspil hafði verið útilokað rann vinningurinn í land á- reynslulaust) 9. - h6 (Hin leiðin sem Kramnik hefur valið gegn Kasparov, 9. - Bd7 á- samt Kc8 o.sfrv. virðist henta Kramnik betur. Með þeim hætti nær hann að tengja hrókana bet- 241 S K A K

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.