Skák


Skák - 01.09.2001, Page 32

Skák - 01.09.2001, Page 32
ur saman. í þessu sambandi er athyglisverð skák Sune Berg Hansen og Kharlovs frá heims- meistarakeppninni í Indlandi í fyrra. Kharlovs var einn af að- stoðarmönnum Kasparovs í ein- víginu í London og gjörþekkti rannsóknir á afbrigðinu. ) 10. h3 Bd7 11. b3 Ke8 12. Bb2 Hd8 13. Hadl Re7 14. Hfel Rg6 (I New in chess bendir Dokhoj- an réttilega á að þessi leikur má heita dæmigerður fyrir afbrigð- ið. Hann hefur það að markmiði að hindra hvít í að mynda peða- fylkingu á kóngsvæng. Nái hann því eru svarti allar bjargir bann- aðar, sjá t.d. skák Jóns L. við Suszu Polgar.) 15. Re4 Rf4 16. e6! (Þessi óvænti leikur er þegar allt kemur til alls ekki svo óvæntur. Eg hef eins og ýmsir aðrir tekið skákir Kasparovs til meðferðar við kennslu og þreytist ekki að benda á nokkur atriði sem ein- kenna atlögur hans snemma tafls. Yfirleitt kemur bein atlaga eða það sem kalla mætti yfirlýs- ingu í 12. - 20. leik: 1. Allir menn hans eru tilbúnir, hann skilur t.d. ekki eftir hrók á al eða fl. 2. Að leika peði á þann reit sem er hvað best valdaður er eitt ein- kenni. Hann benti mér á þetta atriði 1988 þegar við fórum yfir sigurskák hans gegn Timman á heimsbikarmótinu 1988. Byrj- unarleikirnir í þeirri skák féllu þannig 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. f3 0-0 6. Be3 e5 7. d5 c6 8. Bd3 b5 9. cxb5 exd5 10. exd5 og nú hittir hann á skurðpunkt með 10. - e4!? Kasparov vann þessa skák glæsi- lega og var hún valin sú best teflda í mótinu en síðar fundust endurbætur og hann mátti síðar láta í minnipokann fyrir Boris Gulko á skákmóti í Linares. En eftir stendur þetta athyglisverða þema. Og ég gæti nefnt fjölmörg önnur dæmi en þau eru fyrir utan ramma þessarar greinar.) 16. -Rxe6 (Þvingað. Eftir 16. - Bxe6 kem- ur sleggjan 17. Rf6+! og vinnur t.d. 17. - gxf6 18. Hxd8+ Kxd8 19. Bxf6+ o.s.frv. eða 17. - Ke7 18. Ba3+ Kxf6 19. Hxd8. Hinn möguleikinn 16. - íxe6 strandar á 17. Be5 Rd5 18. c4 og 19. Bxc7.) 17. Rd4 (Dokhojan telur 17. Be5 betri leik og bendir á því til stuðnings framhaldið 17. - Hc8 (ekki 17. - Bc8 18. Rf6+ Ke7 19. Rh4 g6 20. Rd7! Hxd7 21. Hxd7 Bxd7 22. Bxh8 f6 23. Rxg6+ Kf7 24. Rxf8 Rxf8b 25. Hdl ogvinnur) 18. Rh4 með geysisterkum hót- unum eftir framrásina f2-f4. Þessar skýringar eru at- hyglisverðar. Þó Kasparov hafi ekki valið þetta framhald m.a. vegna þess að Rh4 leikurinn gekk ekki alveg upp í 17. leik þá er hér komið lýsandi dæmi um það hvernig komast má að nið- urstöðu um réttlæti peðsfórnar- innar í 16. leik. Hún felst í því að finna leið til að halda taflinu gangandi, 18. Rh4 og 19. f4. En 17. Rd4 er einnig góður leikur.) 17. - c5 (A heimasíðu Kasparovs var bent á leikinn 17. - Hh7 sem mögu- lega endurbót. Doldhojan álítur þó 17. - c5 fullt eins góðan leik og rekur framhaldið eftir 17. - Hh7: 18. f4 c5 19. Rf3 Bc6 20. Hb 1! - það er mikilvægt að valda b2-biskupinn vegna aðgerða á hornalínunni.) Bxe4 21. Hxe4 g6 22. g4 Kd7 23. Re5+ Kc8 24. Rxg6 með mun betri stöðu á hvítt.) 18. Rf5 Hh7 (Hótun hvíts var vitaskuld 19. Bxg7 eða 19. Rxg7+.) i I # & i i i i I Wmm % i i A ■i ■ A A A B A I 19. Bf6 (Fallegur leikur sem eykur enn þrýstinginn á stöðu svarts.) 19. - Hc8 20. Bxg7?! (I sálfræði skákarinnar er til hug- tak sem heitir kvíðaþol. Skák- maður í greinilegri afturför á oft við þann vanda að stríða að hann bregst ekki rétt við aukinni spennu við skákborðið; kvíða- þolið hefur minnkað. Hvort þetta á við Kasparov er kannski 242 S K A K

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.