1. Alþjóðlega Kópavogsskákmótið - 09.04.1994, Blaðsíða 15
Zoltan Almasi SM
F. 29. 08.1976
Skákstig 2610
Lang stigahæsti keppandi mótsins er
Ungverjinn Zoltan Almasi sem er
aðeins 18 ára. Hann á nú þegar að
baki glæstan feril og er núverandi
heimsmeistari í flokki 18 ára og yngri,
en það afrek vann hann á heims-
meistaramótinu í Bratislava í fyrra.
Almasi hefur á nokkrum árum komið
sér í hóp fremstu skákmanna í
heiminum í dag, en hefur verið í
skugganum af ungversku skák-
drottningunni Judit Polgar. Framfarir
hans hafa verið með ólíkindum og til
dæmis þá hækkaði hann um 120
skákstig í fyrra og alls um 365
skákstig á seinustu fjórum árum.
Helstu afrek Almasi fyrir utan heims-
meistaratitilinn eru sigur á tveimur
stórmeistaramótum í Kacskemet þar
sem hann fékk tvo stórmeistara-
áfanga, sigur á opnum mótum á Italíu
og Sviss og síðast en ekki síst sigur
hans á stórmeistaramóti í Altensteig í
Þýskalandi. Þar var hann fyrir ofan
marga þekkta skákmenn svo sem
Jusupov og Romanishin og þar fékk
hann lokaáfangann að stórmeistara-
titli. Almasi mun án efa verða í
toppbaráttu mótsins og verður gaman
að sjá viðureignir hans við íslensku
keppendurna.
John Emms AM
F. 14. 03.1967
Skákstig 2525
Emms sem er 27 ára gamall náði
alþjóðlegum meistaratitli árið 1990,
eftir að hafa náð áföngum að
alþjóðlegum titli á breska meistara-
mótinu 1989, á frönsku móti 1990 og
á móti í Israel 1990. Hann hefur nú
hlotið tvo áfanga að stórmeistaratitli
og er því í hópi þeirra sem möguleika
eiga á stórmeistaratitli í mótinu.
Helstu sigrar Emms eru 1.-2. sæti á
Dubai Open 1990, 1.-4. sæti á Opna
Kaupmannahafnarmótinu 1992, sigur
á móti í Las Palmas 1993. Afangana
að stórmeistaratitli fékk hann á breska
meistaramótinu í fyrra þar sern hann
varð í 3.-5. sæti og þegar hann varð í
1.-2. sæti á Opna Kaupmanna-
hafnarmótinu í fyrra. Enrms er mjög
stigahár um þessar mundir með 2.525
stig, en til að ná stórmeistaratitli þarf
einungis 2.500 stig og því hlýtur
stórmeistaratitillinn að vera á næstu
grösum, og spurning hvort að það
takist ekki á Kópavogsskákmótinu.
Efstratios Grivas SM
F. 30. 03.1966
Skákstig 2505
Grivas byrjaði að tefla þegar hann var
13 ára, og á aðeins þrernur árum tókst
honum að sanna sig, en hann sigraði á
gríska unglingameistaramótinu 16 ára
gamall. Leið hans lá beint upp á við
og ári síðar sigraði hann á gríska
meistaramótinu. 18 ára varð hann
alþjóðlegur meistari og nú í fyrra varð
hann stórmeistari. Grivas hefur unnið
til fjölda verðlauna og meðal annars
sigrað tvisvar á gríska meistaramótinu
og vann alþjóðlegt skákmót í
Munchen árið 1987, en þátttakendur
voru hvorki fleiri né færri en 320.
Grivas hefur skrifað fimm bækur og
er nú ritstjóri skákblaðs gríska
skáksambandsins. Hann náði áföng-
unum að stórmeistaratitli á alþjóðlega
mótinu í Haifa 1989, á Akrapólis-
mótinu 1991 og á móti í Katerini
1992.
Mark Hebden SM
F. 15. 02.1958
Skákstig 2530
Hebden er einn af þeim fjórum
stórmeisturum sem koma erlendis frá.
Hann er búinn að tefla mikið gegnum
tíðina, og er með virkustu skák-
mönnum Englendinga en hefur aðeins
verið stórmeistari í þrjú ár, en var þar
á undan búinn að vera alþjóðlegur
meistari í mörg ár. Aföngunum náði
Hebden á Loyds Bank mótunum 1989
og 1991, og á móti í Dunkirk í
Frakklandi 1992. Bestu árangrar á
skákmótum að undanförnu eru sigrar
á Benidorm Open 1993, Capablanca
Memorial mótinu á Kúbu 1993,
Mallorca Open 1993 og núna síðast á
Capelle La Grande, opnu móti sem
haldið var í Frakklandi nú í febrúar.
Hann ætti því að koma vel undirbúinn
til leiks og getur ellaust blandað sér í
toppbaráttuna.
15