Viljinn - 27.01.1969, Síða 19
Oddrún mín!
Hvern skrambann á að þýða, að þú bjoðir þig fram til for-
mennsku skemmtinefndar ? Stúlkur ættu að gæta sín á svo-
leiðis hlutum. Staður konunnar er í eldhúsinu, og það veizt
þú jafn vel og ég. Líttu f kring um þig, manneskja. Aður
en þú veizt af, ertu komin á kaf f fenið, og þá dugir engin
elsku mamma. Líttu til dæmis á, hvernig for fyrir
Agrippfnu Germanikusardóttur. Hún var, auk þess að vera
móðir Nerós, mikið að gutla f pólitfk. Sonur hennar sjálfur
fékk Aricetus til að lemja hana til dauðs. Ekki fór betur
fyrir Marfu Stúart, sem hálshöggvin var við lítinn orðstfr.
Heilög Jóhanna af Örk er eitt dæmið enn. Haldir þú, að
þú verðir undantekningin, sem regluna sannar, fullvissa ég
þig um, að það héldu þær sig lfka vera. Kvenfólk er hreint
ekki skapað til þessara geðslegheita.
Langt iinnst mér um liðið, síðan ég leit þig fyrst augum.
Þá varst þú hálfgerður óviti í hópi hinna busanna. Einna
minnisstæðast er mér, hversu afskaplega kyssilega neðri
vör þú hafðir. Ekki flögraði þá að mér, að með tfð og
tíma vaknaði með þér nein köllun, merkari, en aka um f
kádiljáki og belgja þig út með sætindum. Nú ert þú farin
að hrópa á völd og nafnfrægð upp úr þurru! Ekki skal ég
taka fram fyrir hendur þér. Minna vil ég þig hins vegar á
að þetta er ekkert sældarbrauð, sem þú sækist nú eftir að
festa tennur á. Flestir hafa beir formenn, sem ég hef