Viljinn

Supplements

Viljinn - 27.01.1969, Page 20

Viljinn - 27.01.1969, Page 20
þekkt til, orðið þeirri stund fegnastir, er skildi með þeim og skemmtinefnd. Vel er mér ljóst, að eigi veröldin að hanga á göflunum, þarf allra vega fólk til. Hefði ekki Xanþippa hrakið eigin- mann sinn, sköllótta steinsmiðinn, út á rykug Aþenustræti, ætti heimurinn engan Sókrates. Og hefði ekki ófelía ráfað örvita um konungshöllina í Helsingór, væri veröldin eintölum Hamlets fátækari. En það skaltu athuga, að þú ert hvorki kvendjöfull nó fígúruverk. Þór verður aldrei skipað með örlaganornum eða vófróttum. Þrátt fyrir, að embættið þarfnast þfn, ert þú því engu bundin. Hvorki þarftu að nota það sem plástur á vanmáttarduld nó stall undir falinn hæfi- leikaskort. Þú ert góð stúlka, Oddrún. A þessu sviði hef- ur þú hæfileika eins og svo mörgum öðrum. Aðrir geta hagnast á að reyna sig við léttvægt fólagsstarf á borð við þetta. Þú ættir að gefa þeim kost á því. Sjálf þarfnastu þess ekki. Þegar óg horfi á þig eltast við einskis nýta nafnbót, finnst mór leitt að geta ekki varað þig við. Orðin, sem óg hef yfir að ráða, skilur þú ekki og tekur ekki mark á þeim heldur. Eftir að þú hefur starfað árið, munt þú ef til vill átta þig á, hvað óg er að tala um. Ég hef lengst af borið vissan hlýhug í brjósti til þín. Ekki sver óg fyrir, að nokkur augnablik í hitteðfyrravetur hafi óg verið ögn skotinn í þér. Mig langar til að biðja þig að hugsa þig um tvisvar. 20

x

Viljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Viljinn
https://timarit.is/publication/2066

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.