Viljinn - 27.01.1969, Blaðsíða 30
Skólafélagar!
Málfundafélag Verzlunarskóla Islands er, og hefur verið einn
sterkasti hlekkur félagslífsins og helzti tengiliður nemenda
skóla vors innbyrðis. Það er því mikilvægt, að nemendur
skólans taki saman höndum um val þess, er gegna skal
embættinu, Formaður M.F.V.I.
Sú stefna, sem formenn málfundafélagsins hafa fylgt, er
góð. Þó mætti leggja meira upp úr mælskunámskeiðum
þeim, sem svo mikið hefur verið talað um, en farizt fyrir
að koma á. Mælskunámskeiðum þessum yrði svo komið fyr-
ir á þeim tlma, sem bezt þætti henta nemendum skólans
almennt. Einnig mætti koma á kvöldum, þar sem frægir
ræðuskörungar yrðu kynntir fyrir nemendum. Þá er þörf á
að gefa yngri bekkjum skólans fleiri tækifæri á málfundum,
en með því kynnu nemendur þeirra að komast fyrr inn I hið
30