Víðsjá - des. 1946, Page 5
DR. SIGURÐUR ÞÓRARINSSON:
íeizla atómuoÁ
aaa.
Síðan atómusprengjunum var
varpað yfir Hiroshima og Naga-
saki hefur fátt verið meira rætt
í veröldinni en atómuorkan.
Tortíming þessarra tveggja
japönsku bæja gerði það lýðum
ljóst, sem aðeins nokkrum vís-
indamönnum hafði áður verið
kunnugt, að mannkynið á nú ó-
tæmandi orkulindum yfir að
ráða og að framtíðarheill þess
veltur á því, hvernig þessar
orkulindir verða notaðar. Byrj-
unin spáir ekki góðu, en vel má
vera, að úr rætist. Samtímis
sem unnið er að því að gera at-
ómusprengjurnar að mörgum
sinnum djöfulmagnaðri dráps-
vélum en þær eru nú, er og
kappsamlega unnið að því að
beizla atómuorkuna í þágu iðn-
aðar til friðsamlegra þarfa. Við
hér úti á hjara veraldar höfum
mörgum fremur ástæðu til að
fylgjast vel með því sem gerist
vestur þar í þessum efnum. En
nóg um það.
Hérna á dögunum bauð Jakob
Gíslason, forstjóri Rafmagns-
eftirlits ríkisins, blaðamönnum
og ýmsum pótintátum austur að
Reykjakoti í Ölfusi til að
skoða 40 kw (1 kw=l,36 hest-
öfl) túrbínu, sem þar er nýlega
komin í gang. Ýmsum myndi
ekki þykja nein stórtíðindi þótt
50 hestafla túrbína væri sett í
gang, og flestum er þetta grein-
VÍÐSJÁ