Víðsjá - Dec 1946, Page 8

Víðsjá - Dec 1946, Page 8
6 ISLENDINGAR BEIZLA ATÓMORKUNA af dýrmætum gjaldeyri. Boranir eftir heitu vatni halda áfram bæði við Reyki og Reykjahlíð í Mosfellssveit í því skyni að fullnægja vaxandi hitavatns- þörf hins hraðvaxandi höfuð- staðar. Yngsti bær landsins, Ólafs- fjörður, státar einnig með hita- veitu, frá laug nálægt bænum, sem gefur 15 sekúndulítra af 50 stiga heitu vatni. Og nú er í ráði að leiða hitaveitu um stærsta sveitaþorp landsins, Selfoss. Hafa verið boraðar allt að 770 m. djúpar holur hjá Laugardælum og er þar nú dælt upp rúmum 20 sekúndulítrum af 65 stiga heitu vatni. Eins og áður var getið hefur fram á síðustu ár nytjun jarð- hitans mestmegnis verið til upphitunar og aðallega hefur verið notað rennandi hvera- og laugavatn. Nú binda menn mestar vonir við notkun hvera- gufu til raforkuvinnslu. Nú er borað um allt eftir hveragufu. Það er Rafmagnseftirlit ríkis- ins, sem stendur fyrir þess- um borunum, í samvinnu við Rannsóknarráð. Orkumesta holan sem hingað til hefur ver- ið boruð er sú, sem nú knýr túrbínuna í Reykjakoti. Er talið, að stofnkostnaður við hveraaflstöðvar verði mun minni en við vatnstöðvar. VÍÐSJÁ Það eru ítalir, sem hafa haft forgöngu um byggingu slíkra rafstöðva. Þar í landi er gufu- hverasvæði allmikið á suður- mörkum Pisafylkis í Toskana. Gufuhverirnir á þessu svæði kallast Soffioni boraciferi, sakir þess hve auðugir þeir eru af bór- sýru. Maður, sem hét Francesco de Larderel, byrjaði 1818 bór- vinnslu úr þessum hverum og notaði hverahitann til að eima bórsýruna úr vatninu. Er það fyrsta notkun hverahita til iðn- aðar þarlendis. í byrjun 20. ald- arinnar tók þáverandi fram- kvæmdarstjóri Larderello-efna- vinnslunnar, Piero Cinori Conti, að notfæra gufuna til hreyfi- orku. 1904 gerði hann tilraun til að knýja nokkurra hestafla vél með hveragufu. Þetta reynd- ist svo vel, að árið eftir setti hann upp 20 hestafla hvera- gufutúrbínu, sem sá efnaverk- smiðjunni fyrir rafljósum. Síð- an hefur hveravirkjunin á Soff- ionisvæðinu stóraukist, og nú munu 60—70 þúsund kw virkj- uð. Hefur í sambandi við þetta risið upp margvíslegur iðnaður í nærbyggðunum. Á gufuhverasvæði í Sonoma Valley í Kaliforníu voru borað- ar nokkrar holur eftir gufu árið 1924. Þar hefur 15 hestafla gufuvél, sem raflýsir heilsu- hæli, verið knúð með hveragufu

x

Víðsjá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.