Víðsjá - des. 1946, Qupperneq 9
ÍSLENDINGAR BEIZLA ATÓMORKUNA
7
í rúm 20 ár, en annað hefur
hverahitinn á þessu svæði ekki
verið notaður.
Hér á landi mun Gísli Hall-
dórsson verkfræðingur fyrstur
manna hafa gert tilraun með
hveragufutúrbínu, en það var
í mjög smáum stíl.
Með hitaveitu Reykjavíkur
og með þeim miklu borunum
eftir heitu vatni og gufu, sem
nú eru framkvæmdar, hafa ís-
lendingar gerst forgönguþjóð
um nýtingu jarðhita. Og hvað-
an kemur svo þessi jarðhiti,
sem landið okkar er svo auðugt
af? Þessa spurningu hafa jarð-
fræðingar lengi glímt við.
Lengi ríkti sú skoðun, að eld-
gos og hverastarfsemi ættu rót
sína að rekja til innstu iðra
jarðarinnar og að sá ódæma
hiti, er þar ríkti, væri leifar frá
þeim tíma er öll jörðin var gló-
andi hnöttur. Síðar fundu
menn út, að hversu heit sem
jörðin hefði verið í upphafi, ætti
hin fasta skorpa hennar eigin-
lega að vera orðin miklu þykkri
en hún raunverulega er vegna
útgeislana frá yfirborði hennar.
En um síðustu aldamót upp-
götvuðu eðlisfræðingar, að jörð-
in á hitagjafa, sem getur haldið
hita hennar við og jafnvel auk-
ið hann. Þessi hitagjafi eru hin
sjálfkleyfu (radíóaktívu) efni.
Til þess að bæta upp kólnunina
vegna útgeislunar þarf ekki
nema að meðaltali 30 grömm af
radíum í hvern miljarð tonna af
jarðarmassanum, en í bergteg-
undum á yfirborði jarðar er að
meðaltali 50 sinnum meira af
radíum. Þetta bendir til, að
sjálfkleyfu efnin séu aðallega í
og næst undir hinni föstu jarð-
skorpu.
Flestir jarðfræðingar munu
nú á eitt. sáttir um, að það séu
hin sjálfkleyfu efni í ytri lögum
jarðarinnar sem séu hin eigin-
lega orsök eldgosa og jarðhita.
Með því að gerast forgöngu-
þjóð um nýtingu hveravatns og
gufu höfum við því um leið
gerst forgönguþjóð um nýtingu
atómuorkunnar til friðsamlegra
þarfa. Meðan atómusprengjan
varpar óheillavænlegum skugga
yfir friðarráðstefnur og fundi
hinna „fjögurra stóru“ sitjum
við hér í höfuðborg okkar ísa-
lands og látum atómuorkuna
ylja okkur.
Betur að sú óþrjótandi orka,
sem vísindamennirnir nú hafa
leyst úr læðingi, yrði alarei ver
notuð.
★
vIðsjá