Víðsjá - dec. 1946, Side 16
NORÐURLÖND
14
Þá kom á hvern íbúa í Sviss
903 kWh, í Bandaríkjunum 890
og í Kanada 1915. Hvergi er
nándar nærri eins mikið raf-
magn framleitt með vatnsafli
á íbúa hvern og í Noregi.
— í Danmörku er mjög lítið
vatnsafl, en mikið á íslandi (að
minnsta kosti um 2 millj. kW)
og meira þar á nef hvert en
í Noregi og þar með mest í öll-
um menningarlöndum heims. Á
íslandi bætast þar að auki hver-
irnir og heitu laugarnar við,
og þær, sem næstar eru Reykja-
vík, eru nú notaðar til þess að
hita upp borgina.
Mestu auðæfi Norðurlanda
eru þó fólkið, sem þar býr.
Fólkið er hraust, frá fornu fari
vant við að neita sér um margt,
vant erfiðri vinnu og persónu-
legri ábyrgðartilfinningu. En
fjölmennar eru þessar þjóðir
ekki. Árið 1939 voru íbúar Norð-
urlanda samtals 16,9 milljónir
að tölu, þar af 6,3 í Svíþjóð,
3,7 í Finnlandi, 3,9 í Danmörku,
2,9 í Noregi, 0,12 á íslandi og
0,026 í Færeyjum. í Danmörku
búa að meðaltali 88 menn á
hverjum ferkm. lands, í Sví-
þjóð 14, í Finnlandi 10, Noregi
9 og á íslandi 1,2.
í Svíþjóð, Noregi og jafnvel
í Danmörku eru þjóðirnar af
sama kynþætti. Nær því 100%
hafa tungu landsins að móður-
máli. Lappar eða Samir í Sví-
þjóð og Noregi eru aðeins 0,1%
og 0,6%, Finnar í þessum lönd-
um 0,6% og 0,3. Hvorugt þjóð-
arbrotið veldur nokkru þjóðern-
isvandamáli. Á Islandi mun vera
um talsverða keltneska blöndun
að ræða. Að því er til málsins
tekur hefur þetta land algera
sérstöðu, þar sem ritmálið var
þar fest þegar á 13. og 14. öld,
og hefur ekki breytzt síðan að
neinu ráði. Öll eru norrænu mál-
in nátengd. Á Skandinaviska
skaganum og í Danmörku eru
þau mállýzkur einnar og sömu
tungu. Hver þjóðin um sig skil-
ur mál hinna. Sama er um Is-
lendinga og Færeyinga að segja.
— í Finnlandi bjuggu Skandi-
navar fyrir, er Finnarnir flutt-
ust þangað með sitt ugriska mál
í byrjun tímatals vors. Sænski
þjóðernisminnihlutinn í Finn-
landi nam árið 1939 9,6%, í
borgunum um það bil 19%, í
Helsingfors um 30%, og á Á-
landseyjum 96%.
Þessar 17 milljónir manna á
Norðurlöndum, á landsvæði, sem
er 1,4 millj. ferkm. að stærð,
hafa frá því í heiðni unnið að því
í æ ríkari mæli og á hagkvæm-
ari hátt að nýta auðæfi náttúr-
unnar og bæta lífskjör sín.
Norðurlandabúar hafa plægt
akra sína, höggvið skóg, brot-
ið járngrýti úr fjöllum og sótt