Víðsjá - dec. 1946, Side 22
20
BJÁLKINN 1 AUGA ÞÍNU
legt lögreglulið, sera Rússar
höfðu farið fram á í Dumbarton
Oaks, og skildum Rússum þar
með eftir öryggiskerfi, sem var
ekki útaf eins styrkt og þeir
höfðu gert sér vonir um. Við
studdum neitunarvald stórveld-
anna í öryggisráðinu, og gerð-
um þar með ráðinu ókleift að
hefjast handa gegn einu ríkj-
unum, sem gætu orðið okkur
hættuleg, einu ríkjunum, sem
eru fær um að gera kjarnorku-
sprengjur. Við gerðum þetta
ekki til þess að friða Rússa, þó
að þeir girnist neitunarvaldið
efalaust engu síður en aðrir.
Við gerðum það til þess að friða
öldungadeildina okkar og
Bandaríkjaþjóðina. Þarna var
um að ræða eina hinna mörgu
greina í sáttmálanum, þar sem
við tókum aftur með annarri
hendinni það, sem hin gaf.
Við höfnuðum skyldukvöð-
inni, að leggja mál fyrir Al-
þjóðadómstólinn, en það þýðir,
að við neituðum að taka á okk-
ur þá kvöð að leggja lögfræði-
leg deilumál fyrir óhlutdrægan
dómstól. Við kröfðumst þess, að
öryggisráðinu yrði ekki leyft að
fjalla um neitt það mál, sem
fullvalda ríki kynni að staðhæfa
að væri „innanlandsmál", og við
vildum jafnvel ekki fallast á að
nokkur stofnun sameinuðu þjóð-
anna úrskurðaði, hvort málið
VÍÐSJÁ
skyldi teljast „innanlandsmál",
eða úr því yrði skorið sam-
kvæmt alþjóðarétti — en með
þessu mátti heita að sáttmál-
inn missti gildi sitt. Við sam-
þykktum í grundvallaratriðum
að leggja öryggisráðinu til her-
afla til notkunar gegn árásar-
ríki, en aðeins með því skilyrði
(sjá 43. gr.), að sérhvert ríki
kæmist að samkomulagi um
það við hin einhverntíma í
framtíðinni, hversu mikið lið og
hvers konar það skyldi leggja
til. Fyrir þann tíma, að þessir
samningar hafa verið gerðir,
getur öryggisráðið ekki hafizt
handa um hernaðaraðgerðir
gegn árásarríki, af því að það
hefur ekki ráð á neinu herliði.
Enginn efi leikur á því, að
okkur tókst prýðilega í San
Fransisco að varðveita fullveldi
okkar, ef það var aðaláhugamál
okkar, en algjört athafnafrelsi
er ekki hinn venjulegi grund-
völlur að slíku kerfi laga og
réttar, sem við þóttumst vera
að gera.
Bandalag sameinuðu þjóð-
anna er alltof veikburða nú sem
stendur, til þess að tryggja okk-
ur það öryggi, sem við æskjum,
en Bandaríkjamenn geta ekki
kennt Rússum um þetta eða
neinum öðrum þjóðum, þeir
geta jafnvel ekki skellt skuld-
inni á utanríkisráðuneytið okk-