Víðsjá - dec 1946, Qupperneq 28
26
BJÁLKINN 1 AUGA ÞlNU
Það kann að vera enn nauðsyn-
legra að sýna það stórveldi en
sanna það smáríki, að um mál
þess sé fjallað af sanngirni í
samræmi við ákvæði sáttmálans.
m.
Hver er stefna okkar? Ef við
ætlum ekki að efla Bandalag
sameinuðu þjóðanna og treysta
því æ meira í öryggismálum,
því ættum við þá að vænta þess
að Rússar geri það? Og sé það
ætlun okkar að treysta á eigin
mátt og megin og koma upp
herstöðvum Bandaríkjanna en
ekki herstöðvum Bandalags
sameinuðu þjóðanna, því skyldu
Rússar þá ekki treysta sína að-
stöðu, heimta Svalbarða eða
Tripolitaniu, eða einhver önnur
lönd? Ef við teljum það nauð-
synlegt öryggis okkar vegna, að
Panamaskurðurinn sé undir
okkar stjórn en ekki alþjóðlegri,
hvernig getum við þá búist við
því, að Rússar vilji alþjóðlegt
eftirlit með Dardanellasundi?
Við höfum undirritað sáttmála
sameinuðu þjóðanna og þar með
skuldbundið okkur til þátttöku
í varðveizlu alþjóðaöryggis í
samvinnu við aðrar þjóðir, en
allar okkar athafnir bera þess
vott, að við treystum meira á
eigin mátt og landrými en á
Bandalag sameinuðu þjóðanna.
Það er að sjá sem við séum að
VÍOS JÁ
sanna heiminum mátt okkar.
Flotinn okkar er á ferðalagi og
sýnir sig hér og þar, við erum
að undirbúa gífurlega tilraun
með kjarnorkusprengju, sem
engin önnur þjóð gæti fram-
kvæmt, og hermenn okkar sýna
á ýmsum stöðum og hömlulaust,
hvert veldi Bandaríkjanna er,
stundum svo, að mann hryllir
við. En um leið er Bandaríkja-
þjóðin svo andvíg herskyldu —
jafnvel framlengingu núverandi
herþjónustu — að það er mjög
vafasamt, hvort við getum raun-
ar, svo að nokkurt öryggi sé í
því, treyst á okkar eigin mátt.
Þið segið, að þessar staðhæf-
ingar séu ýktar og ósanngjarn-
ar. Það er ofur eðlilegt. Mér
finnst það sjálfum, eg skrifaði
þær á þann veg af ásettu ráði.
Samt eru þær ekki meira ýktar
en þær sakir, sem við berum á
aðrar þjóðir, og sennilega eru
þær miklu hófsamari en það,
sem aðrir segja um okkur. En
það eru miklu þungvægari á-
stæður til að segja þetta en á-
nægjan ein af því að fletta ofan
af ósamkvæmni okkar og reiki.
Það er tími til kominn að standa
fast gegn Ráðstjórnarríkjunum,
og raunar erum við farnir til
þess. En við getum það ekki svo
gagn sé að, nema því aðeins að
við stöndum á grundvelli stað-
fastrar stefnu, nema því aðeins