Víðsjá - dec. 1946, Side 29

Víðsjá - dec. 1946, Side 29
BJÁLKINN I AUOA ÞlNU að sú stefna bjóði upp á viðun- andi öryggi og hæfilega sann- girni í garð Rússa, og því aðeins að hegðun okkar sé á þann veg, að Rússar hefðu nokkra ástæðu til að treysta okkur eða Banda- lagi sameinuðu þjóðanna. Það er tilgangslaust að spyrja, hvað Rússar ætli að gera — það er allt undir því komið hvað við gerum. Spurn- ingin, sem bíður andsvars okk- ar, er ekki Rússland, heldur við sjálfir. Ef við viljum hefja á- byrga forustu, stefnu, er sýni svo ekki verði um villzt, að við ætlum að veita Bandalagi sam- einuðu þjóðanna þann styrk, sem það verður að fá, eigi það að ná tilgangi sínum, þá getum við fengið flestar þjóðir jarðar í fylgd með okkur. Og ef við sýnum fram á, að Bandalagi sameinuðu þjóðanna verði ekki beitt af ósanngirni gegn Rúss- um, þá er lítill vafi, að Rússar muni halda áfram að styðja það. Það yrði mjög örðugt fyrir þá að ganga úr Bandalaginu, ef mestur hluti heimsins veitti okkur að málum. Við höfum þetta fram yfir Ráðstjórnarrík- in, að þau þarínast öryggis öllu öðru fremur, þau eiga ekki eins mörg stuðningsríki og við, og þau vita mætavel af þessum staðreyndum. Þau hefðu ekki ráð á því, að vera utangarðs. Ef þau færu úr Bandalaginu, 27 mundi allur heimurinn standa sameinaður gegn þeim, það er að segja, ef Bandaríkin gera Bandalag sameinuðu þjóðanna að raunhæfri tryggingu fyrir friði. Ef við gerum það ekki, ef sérhver þjóð verður að treysta á eigin mátt og megin, þá munu sumar þeirra hallast að Rúss- um. Vandamálið er ekki Ráð- stjórnarríkin, vandamálið: það erum við. Hvað sem Rússar nú ætlast fyrir eða vilja ekki, þá verður ekkert unnt að aðhafast fyrr en Bandaríkjaþjóðin hefur ráðið það við sig að taka upp ákveðna og sjálfri sér sam- kvæma stefnu, sem hún er fús að styðja, hvað sem það kost- ar. Það eru Bandaríkin, sem standa nú í vegi fyrir mark- vissri sókn að raunhæfu öryggi. Það er okkar vandamál, rúss- neska vandamálið kemur síðar á dagskrá. Veröldin er herpt í vítahring, og það er gagnslaust að rífast um það, hverjum sé um að kenna eða hver hafi byrj- að, einhver verður að rjúfa hringinn. Ábyrgð þess að taka fyrstu skrefin í þá átt hvílir á okkar herðum. Bandaríkin eru voldugasta og áhrifamesta ríki heims í svipinn, Bandalag sam- einuðu þjóðanna getur ekki orð- ið öflugra en það er án okkar tilstyrktar, og sprengjuna eig- um við. VIÐSJA

x

Víðsjá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.