Víðsjá - des. 1946, Blaðsíða 31

Víðsjá - des. 1946, Blaðsíða 31
ÆÐRI STJÚRNMÁL 29 benti mér að fá mér sæti og bíða. Svo hringdi hún í annað númer og þar var svarað, en sá, sem svaraði, var ungur maður, sem auðheyrt var að vildi fá hana út með sér um kvöldið. Hún roðnaði og sagði heldur fljótmælt, að hún skyldi hringja til hans seinna, en ef herra N. N. væri ekki við, þá vildi hún gjarna fá að vita, hvar herra N. N. væri. Það var númerið, sem alltaf var á tali, sem hún fékk, og svei mér sem hún gat stillt sig um að blóta svolítið í hálfum hljóð- um, þótt við værum þarna tveir að hlusta á hana. En þolinmæðin þrautir vinnur allar og loksins náði hún sambandi við þetta sí- talandi númer. — Herra Protitch? sagði hún. Nei, ekki frú Protitch. Est-ce que monsieur Protitch est lá? Jú, hann var við, og eftir langa mæðu kom hann í sím- ann í sumarbústaðnum sínum. Monsieur, eða réttara sagt, dr. Protitch, er Júgóslavi og for- stjóri almennu skrifstofunnar í þeirri deild skrifstofu Banda- lags sameinuðu þjóðanna, sem fer með mál, er varða öryggis- ráðið. Hún hringdi til hans, af því að henni hafði ekki tekizt að ná í dr. Ping-chia Kuo frá Kína, sem er yfirmaður þess- arar deildar. Ástæðan til þess, að hún hafði hringt til dr. Ping- chia Kuo var sú, að henni hafði ekki tekizt að ná sambandi við herra Sobolev aðstoðaraðalrit- ara Bandalagsins, en hann gegndi störfum fyrir Tryggve Lie á meðan sá góði maður var í Evrópu. — Herra Protitch, sagði unga stúlkan, afsakið að ég geri yð- ur ónæði. En íslenzki sendiherr- ann er hérna með umsókn ís- lands um upptöku í Bandalag sameinuðu þjóðanna, og ég hef ekki getað náð í herra Sobolev. Sendiherrann er hérna, viljið þér gera svo vel að tala við hann? Jú, það vildi herra Sobolev. Prúðbúni, gráhærði heiðursmað- urinn með upphafsstafina T. T. saumaða á silkiskyrtuna, slökkti í vindlingnum sínum, tók heyrn- artólið og þarna í kytrunni litlu stúlkunnar í eyðitóma húsinu í Bronx kynnti hann sig sem Thór Thórs, sendiherra lýðveld- isins íslands, envoyé extraor- dinaire og ministre plénipoten- tiaire í Washington. Hann fór þess á leit, að mega lesa upp erindi það, sem hann hafði sam- ið að fyrirmælum stjórnar sinn- ar og komið með til New York. Efni þess var beiðni um að ís- land yrði tekið í Bandalag sam- einuðu þjóðanna og yfirlýsing, að ísland væri þess reiðubúið að VIÐSJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Víðsjá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.