Víðsjá - dec. 1946, Side 33

Víðsjá - dec. 1946, Side 33
Réttarhöldunum í Niirnberg lauk í október, og þá voru liðn- ir tíu mánuðir frá því að þau hófust. Réttarskjölin verða gefin út á næstunni, í mörgum bindum, en nokkur hin merK- ustu þeirra hafa þegar verið birt í blöðum og bókum víða um heim, meðal þeirra þrjár ræður Hitlers, sem ekki höfðu kom- ið fyrir almennings sjónir fyrr en í Núrnberg. Þar var oftar í þær vitnað en nokkur önnur réttarskjöl, og þær voru helzta sönnunargagnið fyrir þeirri ákæru saksóknaranna, að Hitler og hershöfðingjar hans hefðu gerzt sekir um „brot gegn frið- inum.“ Hér fer á eftir ágrip einnar ræðunnar, stytt úr bók- inni Maskerne falder í Nurnberg eftir dönsku blaðamenn- ina Helge Knudsen og Henrik V. Ringsted. Mjög leynilegt. Sendist aðeins með liðsfor- ingja. Fundargerð 23. maí 1939. Staður: Vinnustofa Foringj- ans. Aðstoðarforingi: Ofursti (í herforingjaráðinu) Schmundt. Fundarmenn: Foringinn, Gör- ing marskálkur, stóraðmíráll Raeder, von Brauchitsch hershöfðingi, Keitel hershöfð- ingi, Milch hershöfðingi, Halder hershöfðingi, Bodenschatz hers- höfðingi, Schniewindt aðmíráll, Jeschonnek ofursti, Warlimont ofursti, Engel höfuðsmaður, Al- brecht korvettuskipherra, von Below höfuðsmaður. Umræðuefni: Greinargerð um stjórnmálaástandið og markmið í framtíðinni. Foringinn lýsti tilgangi fund- arins á þessa leið: 1. Gera sér grein fyrir á- standi og horfum. 2. Hvert verður hlutverk þýzka hersins? 3. Hverjar verða afleiðing- arnar af þeim störfum? 4. Brýn nauðsyn að halda leyndum þeim ákvörðunum og starfi, sem leiðir af 3. vlos já

x

Víðsjá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.