Víðsjá - des. 1946, Qupperneq 37
SAMSÆRI GEGN FRIÐINUM
35
ið ósigur og Bretar komizt á
kné! Þar hefðu orðið úrslit
styrjaldarinnar. Áður var ekki
nægilegt að sigra enska flotann,
heldur varð einnig að gera inn-
rás í England til þess að
vinna sigur á Bretum. Þá var
England sjálfu sér nóg um
matvæli. I dag getur það ekki
lengur framleitt nóg matvæli.
Um leið og aðdráttaleiðir
Englands eru rofnar, neyðast
Bretar til uppgjafar. Innflutn-
ingur matvæla og eldsneytis er
háður vernd flotans. Þótt Luft-
waffe (þýzki flugherinn) ráð-
ist á enskt land, verður Eng-
land ekki neytt til uppgjafar á
einum degi. En verði flotinn
eyðilagður, þá verður afleið-
ingin uppgjöf þegar í stað. Eng-
inn vafi er á því, að óvænt árás
getur haft í för með sér skjót
úrslit. Hins vegar væri það
glæpsamlegt af stjórninni, ef
hún treysti eingöngu á árangur
óvæntrar árásar. Reynslan hef-
ur sýnt, að óvænt árás getur
brugðizt vegna:
1. svika af hálfu alls þorra
hernaðarsérf ræðinga;
2. tilviljana, sem valdið
geta því, að öll fyrirætlunin
mistakist;
3. maðurinn er ekki full-
kominn;
4. veðrið.
Árásarstundina verður að á-
kveða í tæka tíð. Þegar líður
fram yfir þá stund, verður bið-
in og ofvænið fljótlega óþol-
andi. Minnast skal þess, að veð-
ur getur komið í veg fyrir
hvers konar aðgerðir lofthers
og flota.
1. Maður verður að gera til-
raun til þess að lama fjand-
manninn eða veikja viðnáms-
þrótt hans verulega í fyrsta
höggi. Tillit til þess, hvað rétt
er eða rangt eða hvað í sátt-
málum stendur, kemur ekki til
greina. Þetta er því aðeins
hægt, að við lendum ekki í
stríði við England vegna Pól-
lands.
2. Undirbúning verður að
gera ekki aðeins að óvæntri á-
rás heldur einnig langvarandi
styrjöld, og vér verðum að eyða
möguleikum Bretlands á meg-
inlandinu. Herinn verður að
hernema þær stöðvar, sem úr-
slitum geta ráðið fyrir flotann
og flugherinn. Ef oss tekst að
hernema og halda Hollandi og
Belgíu, og bíði Frakkar ósigur,
þá höfum vér tryggt oss öll
skilyrði til sigursællar styrj-
aldar gegn Englandi. — Þá
má leggja hafnbann á England
frá Vestur-Frakklandi með til-
styrk flughersins, en flotinn
með kafbáta sína getur fært út
hafnbannið.
VÍÐSJÁ