Víðsjá - dec. 1946, Side 40

Víðsjá - dec. 1946, Side 40
38 SAMSÆRIÐ GEGN FRIÐINUM skálks ákveður Foringinn, að a. hinar ýmsu deildir hers- ins skuli ráða um nauðsynlegar byggingaáætlanir, b. skipasmíðaáætlunin breyt- ist ekki, c. herbúnaðaráætlunin skal miðuð við þarfir áranna 1943 og 1944. Rétt ágrip vottar Schmundt ofursti. ★ OGGI MILANO: Hans heilagleiki páfinn mæð- ist í mörgu, en mesta raun hans er fjárþröngin í páfagarði. Styrjöldin þurrkaði í botn að- alauðlind páfastólsins, Péturs- peningana. Þær gjafir bárust beint til páfa frá biskupum, sem skyldir eru að safna eigi sjaldn- ar en einu sinni á ári. Einnig hraut margur skildingurinn frá pílagrímum og forvitnum ferða- löngum, sem flykktust til Róm- ar að sjá Péturskirkjuna. Mestar fjárupphæðir bárust frá kaþólsku ríkjunum, — Spáni írlandi og Portúgal, og umfram allt frá ítalíu sjálfri. Þar næst komu Frakkland, Sviss, Belgía og Holland, og fjárgjafir frá Þýzkalandi voru ekki neitt smá- ræði heldur, enda búa þar tutt- ugu milljónir kaþólskra manna. Evrópulöndin öll stóðu þó langt að baki Bandaríkjunum, Kan- ada og hinum strangkaþólsku Suður-Ameríkuríkjum. Styrjöldin teppti fjárstraum- inn frá Evrópulöndunum, og hann þvarr fljótlega að fullu og öllu. Frá Spáni höfðu engar gjafir borizt frá því að borgara- styrjöldin hófst. Pólland, Ung- verjaland, Austurríki og Balk- anlöndin heltust næst úr lest- inni, og nú þegar þýzka ríkið er í lamasessi, líða sennilega mörg ár, þar til sanntrúaðir menn taka aftur að senda Pét- urspeninga. En verra var það, að tekjurnar frá Suður-Ame- ríku minnkuðu smám saman á stríðsárunum. Minnst var þó í VÍÐSJÁ

x

Víðsjá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.