Víðsjá - Dec 1946, Blaðsíða 41
PÁFANN SKORTIR SKOTSILFUR
39
buddunni þá níu mánuði, sem
Þjóðverjar sátu í Róm, því að
þá mánuði alla var páfagarður
í rauninni slitinn úr sambandi
við umheiminn. Frá því árið
1939 varð páfinn að basla við
þær tekjur, sem hann hafði af
jörðum sínum, en þær hrukku
hvergi nærri til, því að sífellt
jukust útgjöldin og því meira
sem gengi lírunnar varð lægra.
Páfagarður mun vera eina
ríkið hér á jörðu, sem enga
skatta eða tolla leggur á þegna
sína, á engan seðlabanka og
lætur ekki prenta seðla. Mynt
þess, gull- og silfurpeningar, að
upphæð um ein milljón líra, er
fyrir löngu komin öll í hendur
safnara og trúaðra manna, svo
að enginn peningur er eftir í
umferð. Um áramótin síðustu
fór aftur að örla á Péturspen-
ingum, en smáar voru þær upp-
hæðir, og þótt fúlgan hefði ver-
ið margföld, mundi það fé eng-
an veginn hafa hrokkið til að
bæta upp tekjuhallann í reikn-
ingum páfans á stríðsárunum.
Hann nam sem sé allt að því
einum milljarð líra á hverju
ári, að því er haft er frá ábyggi-
legum heimildum. Að frum-
kvæði Spellmans kardínála hafa
kaþólskir klerkar í Bandaríkj-
unum lofað að greiða páfanum
að minnsta kosti 100.000 doll-
ara á mánuði, er safna skal í
öllum kaþólskum söfnuðum
landsins, svo að nú hefur
þyngstu áhyggjunum verið létt
af Píusi XII.
Þegar hann settist í páfastól,
var f járhagurinn svo bágborinn,
vegna mikilla byggingafram-
kvæmda fyrirrennara hans, að
gát varð að hafa á hverjum eyri.
Morgun hvern er lögð fyrir hann
nákvæm f járhagsáætlun, (sjálf-
ur fylgist hann með öllum út-
gjöldum), og þar eð strangasta
leynd er höfð á f jármálum hans,
vita engir aðrir en páfinn sjálf-
ur og nánustu samverkamenn
hans, hvernig fjárhagurinn
stendur. Fjármálaráðherra hans
sem nefnist f jármálaráðgjafi
hins heilaga páfastóls, er verk-
fræðingurinn Bernardino No-
gara, en hann er sérfræðingur
í f jármálum og forstjóri banka-
samsteypunnar Societá Romana
dei Beni Stabili, í hverri páfi
á vænan bunka af hlutabréfum.
Nogara býr í páfagarði.
Vera má, að fjárhagsörðug-
leikar páfans verði skjótt á
enda, því að gjafastraumurinn
frá sanntrúuðum kaþólskum
mönnum mun hefjast aftur um
leið og viðskiptamál komast í
eðlilegt horf að nýju. Boðberar
þessara gullnu daga eru píla-
grímar þeir og ferðamenn, sum-
ir frá fjarlægum löndum, sem
nú bregður fyrir í Rómaborg.
VIÐ5JA