Víðsjá - des. 1946, Síða 55
FRIÐUR A JÖRÐU
irvænting, en dálítil efablendni
í röddunum, því öllum var í
fersku minni falsfréttin á
sunnudaginn. —
Á mörgum öðrum stöðum í
borginni hafði fólk safnazt sam-
an. Það hafði jafnvel byrjað að
safnast saman klukkan að
ganga þrjú um nóttina og
marsérað hingað og þangað
syngjandi og hrópandi. Börn
voru víða á fótum fyrir allar
aldir og skutu flugeldum á göt-
unum, báru flögg og höfðu hátt.
Bezt gerðu það þó ítalirnir í
austurhverfum Manhattan. Þeir
hófu skrúðgöngu níu hundruð
saman klukkan þrjú um nótt-
ina, á fæti, reiðhjólum og vöru-
bílum. Þeir báru merki og flögg,
og fyrir hljóðfæri notuðu þeir
tóma olíubrúsa, potthlemma og
kastarholur. Ekki höfðu allar
konurnar gefið sér tíma til að
klæða sig, þegar stemmningin
greip þær, og marséruðu þær nú
við hlið manna sinna í náttkjól-
unum einum með inniskó á fót-
um. Hinir árrisulu, glöðu ítalir
gerðu nú innrás í kínverska
hverfið, en borgarstjóri Kínverj-
anna, Shavy Lee, sagði við þá:
„Þjóð mín er hamingjusöm og
fagnandi. Samt sem áður viljum
við taka þetta eftir okkar hætti.
Vegna falsfréttarinnar í fyrra-
dag ætlum við að bíða þangað
53
til forsetinn hefur staðfest
fregnina11. —
Það var ekki fyrr en klukk-
an að ganga sjö um kvöldið,
sem Trúman forseti staðfesti
friðarfregnina, og nú náði fögn-
uður fólksins hámarki sínu.
Tvær milljónir manna söfnuðust
saman á Times Square, og var
það glæsilegt met í sögu borgar-
innar. Lögreglan lokaði fyrir
bílaumferð 7. Avenue og
Broadway á svæðinu milli 42.
strætis til 54. og forsetinn fyr-
irskipaði tveggja daga hátíð. —
Það sem helzt virtist haft til
skemmtunar var að fleygja
bréfum út um glugga, blása í
pípur, samskonar og börnum eru
gefnar á jólunum, og horfa á,
hvernig sjóliðarnir fóru að því
að kyssa stelpur. Þeir kysstu
hverja stelpu, sem þeir gátu
gómað, og það var enginn stað-
ur svo óhentugur, að þeir gætu
ekki notað hann til þess. Eða öll
sú fjölbreytni í ástinni! Meðan
einn hleypti af atomkossi, öðr-
um lét „knock out“ bezt.
Sjúkrabílar voru mjög á ferð-
inni til þess að aka í sjúkrahús
þeim, sem limlestust í þröng-
inni. Brunaliði eða lögreglu-
þjónn stóð vörð við hvern
brunaboða til þess að koma í
veg fyrir, að þeir yrðu brotnir
í galsanum. Það voru fáeinir
V I £3 S J A