Víðsjá - Dec 1946, Page 59
STREPTOMYCIN
57
um, sem höfðu fengið tularemi
af villikanínum, var gefið
streptomycin. Á fyrsta degi
hvarf höfuðverkurinn, sviminn,
máttleysið, verkir í vöðvum og
liðum, kölduflogin og ógleðin.
Sárin, sem venjulega fylgja
þessum sjúkdómi, komu ekki
fram.
„Ólæknandi" sjúkdómum
fækkar.
Hvað er þá streptomycin?
Bezt mætti lýsa því þannig, að
það sé eins konar hliðstæða peni-
cillins. Það er búið til úr myglu-
tegund, svipaðri þeirri, sem
penicillin er unnið úr. Frá því
að Waksman, sem uppgötvaði
lyfið, og aðstoðarmenn hans
birtu í fyrsta skipti, í janúar
1946, athuganir sínar á áhrifum
streptomycins á f jölda sýklateg-
unda, hefur verið unnið af kappi
að rannsókn á áhrifum og nota-
gildi lyfsins. Menn vita ekki,
hvað veldur því, að streptomy-
cin drepur sýkla, en heimfæra
lyfið til antibiotica, þ.e.a.s. efna,
sem unnin eru úr lífverum og
hafa þann eiginleika að drepa
sýkla eða hindra f jölgun þeirra.
Læknar nota streptomycin að-
ailega í þeim tilfellum, er peni-
cillin af einhverjum ástæðum
dugar ekki. Penicillin kemur
nefnilega því aðeins að gagni,
að veikindunum valdi einhver
sóttkveikja, sem næm er fyrir
penicillini, og margar tegundir
sýkla eru algjörlega ónæmar
fyrir því. í slíkum tilfellum hef-
ur streptomycin reynzt framúr-
skarandi vel.
í Bandaríkjunum hafa 11
lyfjagerðir hafið framleiðslu á
streptomycin, og sérstök nefnd
hefur verið skipuð til þess að
rannsaka áhrif þess og nota-
gildi. Nefndin ræður yfir því
streptomycin, sem framleitt er,
og úthlutar því til þeirra spítala-
lækna, sem færastir þykja til
þess að fara með það. Einstaka
læknar aðrir eiga þess kost, er
sérstaklega stendur á, að fá
streptomycin, en þá verða þeir
fyrst að hafa kannað til hlítar,
hvaða sýklar eru að verki og
senda skýrslu um það. Ennírem-
ur verður læknirinn að senda
ítarlega skýrslu hverju sinni um
gang veikindanna og endur-
senda það, sem afgangs kann að
veroa af streptomycinforðanum.
Til þess að komast hjá gagns-
lausum rannsóknum hefur
nefndin samið skrá yfir þá sjúk-
dóma, sem nota má nýja lyfið
við, en þeir eru: þær ígerðir í
þvagfærunum, sem gramnega-
tiva sóttkveikjur valda og sulfa-
lyf vinna ekki á; blóðeitrun og
þroti í hjartalokunum af völd-
um gramnegativa sýkla;
lungnabólga, bólga í hlustinni,
VÍÐSJÁ