Víðsjá - Dec 1946, Page 64

Víðsjá - Dec 1946, Page 64
GEORGI MARYAGIN: tueimur dmm. Hann var skorinn upp vegna sprengjubrota í hægri mjöðminni. Hann andaðist á skurðarborðinu. Hjartað hætti að slá, andardrátturinn stöðvaðist. En nú er hann hraustur og útitekinn og segir alla söguna. Eg gleymi aldrei deginum, sem ég dó, segir Valentin Che- repanov, og alvörusvipur færist yfir sólbrent andlitið undir ljósu hárinu, og fæturnir dingla fram af bríkinni í legustólnum á bakka Oka-árinnar. Þetta gat Virzt heldur kald- ranalegt gaman þennan sól- bjarta sumardag, og hefði ég þekkt til sögu þessa magra 23 ára uppgjafahermanns, mundi mér hafa fundizt hann í meira lagi skrítinn náungi. En nú kannast hver maður í Ráð- stjórnarríkjunum við hermann- inn Cherepanov, sem dó í einu af sjúkrahúsum Rauða hersins, en prófessor Vladimir A. Nego- vski vakti aftur til lífsins. Pró- fessorinn hefur sjálfur skýrt frá tilfellinu, en þetta er í fyrsta skipti, sem Cherepanov hefur sagt blaðamanni frá því, hvern- ig það var að deyja. — Nei, endurtók hann, þeim deginum gleymi ég aldrei. Það var 3. marz 1944. Ég var loft- skeytamaður, og flokkurinn okkar hafðist við í úthverfum Vitebsk. Útvarpsstöðin okkar var falin í gryfju. Þýzka stór- skotaliðið hafði haldið uppi skothríð á okkar hluta víg- stöðvanna allan morguninn. Um kl. 2 kom ég út úr radiobílnum og á sömu stundu varð ægileg sprenging rétt hjá mér. Ég æpti ... — Ég fleygði mér niður og skimaði varlega í kringum mig. Um það bil 100 metra frá mér var geysimikill reykjarmökkur. Svo varð önnur sprenging um 50 metra frá mér. Ég missti VIÐ5JA

x

Víðsjá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.