Víðsjá - Dec 1946, Page 69

Víðsjá - Dec 1946, Page 69
WILLIAM A. LYDGATE. víi l auiromcjar eicj,mteuenna oý ei^inmanna. Tekið úr Redbook. Gallup-stofnunin í Bandaríkj- unum kannaði nýlega, hverjir væru taldir algengustu gallar eiginkvenna og eiginmanna. Konur voru spurðar um helztu galla manna sinna, og karlmenn um, hvað þeim félli verst í fari kvenna sinna. Niðurstaðan ætti að gefa hjónum nokkra hug- mynd um það, hvernig þau eigi ekki að haga sér, til þess að hjónabandið verði hamingju- samt. Tíu gallar eiginkvenna: 1. Nudd og jag. Þetta vekur þá spurningu, hvort eiginkonur séu að fæla menn sína til flösk- unnar, því að drykkjuskapur var talinn aðalgalli karlmannanna. Einhver lítt kunnur heimspek- ingur lét einu sinni svo um mælt, að á veginum til mann- virðinga yrði ekki þverfótað fyr- ir eiginkonum, sem hrintu mönnum sínum áfram á undan sér. En ekki datt einum einasta eiginmanni í hug að þakka vel- gengni sína að neinu leyti nudd- inu í konu sinni. 2. Eyðsiusemi. „Þær vilja eyða öllu, sem manni áskotnast, til þess að reyna að vera eins fínar og nágrannakerlingarnar“. „Þær skilja ekki, hvað maður þarf til að komast áfram, þær tefja fyr- ir manni, eyða hverjum eyri“. 3. Lélegar húsmæður. „Kon- an mín þrífur ekki húsið“. „Konur nenna ekki lengur að búa til morgunmatinn handa mönnum sínum“. „Þær flaustra af húsverkunum og rjúka svo út í bæ“. 4. Næturklúbba-fargan og drykkjuskapur. „Þær þjóta á veitingahús og skipta sér ekk- ert af krökkunum". „Konan mín vill helzt draga mig út á dans- leik á hverju kvöldi“. 5. Skrafskjóður og slúðursög- ur. „Þær þagna aldrei". „Eru VÍÐSJÁ

x

Víðsjá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.