Víðsjá - Dec 1946, Page 73
MISSKILNINGUR
71
þegar sagan gerist (og því alls
ekki til núna), en hann er full-
trúi í kartöflu- og næpumála-
ráðuneytinu.
Þeir rabba lengi saman,
Gvöndur og Kúsi, og verða
kenndir. Gvöndur stingur því að
Kúsa, að sig langi til þess að
biðja hann að skjótast heim til
sín einhvern morguninn og taka
nokkrar myndir af konunni. Og
svo endar samdrykkjan hjá
þeim með því, að Kúsi asnast
til þess að spyrja Gvönd, hvað
hann hafi verið lengi giftur, en
þá stendur Gvöndur náfölur upp
frá borðinu og gengur út án
þess að kveðja.
Daginn eftir er fimm ára
giftingarafmæli Gvöndar og
Bínu, og þau eiga ekkert barn.
Hann er að búa sig á skrifstof-
una, en gengur illa að hnýta á
sig bindið:
Gv: Jæja, góða mín! — Það
er víst bezt, að ég hafi
mig niðureftir. Ætli hann
komi ekki þessi maður
frá stjórninni. Þú tekur
á móti honum, ef ég verð
ekki kominn heim. Það
þýðir víst ekki annað.
Bína: Vertu sæll, elskan, — og
gleymdu ekki að koma
heim með saftflöskuna.
Hún snarast að speglinum og
púðrar á sér nefið. Það er bank-
að á dyrnar, og hún heldur, að
þar sé kominn kunnáttumaður
og sérfræðingur stjórnarinnar,
en það er Kúsi, hálf-fullur, með
fjöldan allan af töskum.
Bína: Eruð þér ....
Kúsi: Já, ég er . . . Maðurinn
yðar hefur sjálfsagt sagt
yður. Við erum nefnilega
gamlir kunningjar.
Bína: Já, já, — hann hefur sagt
mér allt, og við höfum
komið okkur saman um,
að bezt sé að ljúka því
af. Gerðu svo vel að koma
innfyrir.
Kúsi: Já, ég hitti hann í gær-
kveldi, og af því við höf-
um nú þekkzt lengi, og
ég starfa fyrir stjórnina,
— ja, þá datt okkur
svona í hug, að það væri
bezt að ég skryppi hing-
að og tæki nokkrar! —
Mín er ánægjan!
Bína: Bað hann þig að koma?
— Jæja!! — En komið
þér nú inn og farið úr
frakkanum.
Kúsi: Já takk! — Annars ætl-
aði ég nú ekki að vera
lengi að þessu. Margar
hefur maður nú tekið þær
í frakkanum og með hatt-
inn á höfðinu . . . Fyrir-
komulagið er nefnilega
snarvitlaust. í staðinn
fyrir að við ættum að
VÍÐS JÁ