Víðsjá - Dec 1946, Page 83

Víðsjá - Dec 1946, Page 83
NlÐSTERKUR PAPPlR 81 að innihaldið skemradist. Hver húsmóðir, sem heíur geymt ein- hverja hluti í pappakassa í kjall- aranum hjá sér og orðið fyrir því, að botninn fer úr kassanum, þegar hún hefur tekið hann upp næst, veit hvérs virði þetta er. Nú eru tepokar búnir til úr vætustyrkum pappír, sem sjóð- andi vatn hefur engin áhrif á, og nú er vel hægt að senda nýtt grænmeti langar leiðir í pappírs- ílátum. í vætustyrkan pappír er notað annað tveggja af plastiskum efnum, svipuðum þeim, sem not- uð eru í vasaljóshylki og ýmis- legt annað, sem er mótað eða steypt úr plastisku efni. Þessum efnum má blanda í trjámauk- ið, sem pappírinn er búinn til úr, og ekki er þörf neinnar sér- stakrar meðferðar annarrar. Trjámaukið er síðan elt milli heitra sívalninga, sem þurrka það, þar til það er orðið að pappír, og festa jafnframt plastik-agnirnar, svo að þær leysist ekki upp. Þessar agnir binda trefjarnar saman, svo að einu gildir þótt þær blotni síðar meir. Vætustyrkur pappír er ekki vatnsheldur. Hann verður alveg eins blautur og hver annar pappír, — en hann rifnar ekki eða grotnar sundur, og það er hægt að bera á hann vax eða resin, svo að hann hrindi frá sér vatni. Nýlega var búinn til poki úr mörgum lögum af vætustyrk- um pappír og þéttað með asfalti, látin í hann fimmtíu pund af hveiti og fleygt síðan í Niagara- ána. Pokinn barst niður fossana og barðist á klettunum þar fyr- ir neðan í sjö og hálfa klukku- stund. Þegar í hann náðist, var hann óskemmdur og mjölið al- gerlega þurrt. Notkun þessara nýju efna gerir pappírinn sterkari bæði þurran og votan, þar eð þau binda trefjarnar saman. Sami styrkleiki í þurrum pappír fæst með því einu að hafa trefjarn- ar langar, en í stað þess að bæta í langtrefjuðu trjámauki nægir að setja í maukið plast- iska efnið, sem áður var getið. Á þennan hátt er hægt að nota stutttrefjaða viðinn í stað hins langtrefjaða, og spara með því hinn síðarnefnda, sem minna er til af. Vætustyrkur pappír þarf ekki að kosta miklu meira í fram- leiðslu en venjulegur pappír. Vegna þess, hve miklu sterkari hann er, verður komist af með miklu minna efni í hlutina. Þótt handklæði úr þess konar pappír sjúgi ekki í sig meiri bleytu en handklæði úr venjulegum papp- ír, þá gagnast það á við tvö eða þrjú hin síðarnefndu vegna VÍÐSJÁ

x

Víðsjá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.