Víðsjá - des. 1946, Síða 88

Víðsjá - des. 1946, Síða 88
86 ORMUR RAUÐI gefa þér hana aftur, þó hún sé fegurri en nokkuð annað, sem sézt hefur hér á landi. Vil eg ekki, að það sé sagt, að eg hafi lokkað gull þitt frá þér, er þú varst dauðvona af sárum. En það hef eg fengið að heyra oftar en einu sinni. — Satt að segja, svaraði Orm- ur, væri það gott að halda slíkri gersemi í ættinni. En bezt þætti mér þó, ef eg fengi hvorttveggja, festina og þig, og með öðru móti kemur hún ekki í mína eigu aft- ur. En áður en eg spyr föður þinn, þætti mér vænt að heyra, hvernig þú sjálf mundir taka þeirri málaleitan. í fyrsta sinn, er við ræddumst við, sagðir þú, að þú hefðir verið ráðin í að drepa Sigtrygg í brúðarsæng- inni, ef þú hefðir verið gefin honum. Nú langar mig til að vita, hvort þú myndir bera betri hug til mín. Ylfa svaraði hlæjandi, að hann skyldi ekki vera um of ör- uggur. — Em eg stærri í lund, en þú munt geta ímyndað þér, sagði hún, og konungadætur eru við- sjálli en aðrar konur, þegar þær eru gefnar, svo að þær taka stundum konunga af lífi, ef sam- lyndið er ekki gott. Hefur þú heyrt, hvernig fór fyrir Agna Svíakonungi til forna? Hann hafði tekið konungsdóttur fyrir v í ð s j Á austan hafið, en hún fylgdi hon- um nauðug. Fyrstu nóttina sváfu þau saman í tjaldi undir tré einu, og þegar hann var sofnaður, festi hún streng í háls- men hans, sem var góður og sterkur gullhringur, og hengdi hann í tréð, og var hann þó mik- ill konungur, en hún hafði ekki nema þjónustumey sína sér til aðstoðar. Hugsaðu þig vel um, áður en þú ferð þess á leit að fá mín. Hún laut yfir hann, strauk honum um ennið, kleip hann í eyrað og horfðist brosandi í augu við hann. Ormi fannst hann verða frískari en hann hafði verið lengi. En nú varð hún alvarleg og áhyggjufull á svip, og sagði, að allt væri þetta fánýtt hjal, áð- ur en faðir hennar hefði verið spurður. Var hún hrædd um, að örðugt mundi verða að fá sam- þykki hans, nema því að eins að Ormur væri flestum öðrum auð- ugri af gulli, búpeningi og fast- eignum. — Hann kvartar oft undan hinum mörgu ógiftu dætrum sínum, sagði hún, en honum gengur illa að fá menn handa oss, sem honum finnst vera nægilega auðugir eða hafa mannaforráð, svo honum líki. Það er ekki eins skemmtilegt og fólk heldur að vera konungs-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Víðsjá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.