Víðsjá - dec. 1946, Side 90

Víðsjá - dec. 1946, Side 90
88 ORMUR RAUÐI dags. En þegar Gyða svo fæddi tvíbura, fannst þeim gamla ekki vert að strita lengur á móti, svo að þau giftust, og kom alltaf vei saman og eignuðust sjö börn eftir það. Allir heima hrósuðu ráðsnilld og hamingju móður- föður míns, svo að mannvirð- ingar hans jukust að miklum mun, einkum eftir að hann hafði tekið við miklum arfi eftir Glúm gamla. Og hefði nú móðurfaðir minn ekki haft slíka útsjónar- semi við kvonfang sitt, hefði eg ekki setið hér til að gefa ykkur viturleg ráð, því að móðir mín var annar tvíburanna, sem komu til úti milli runnanna. — Ef það er nauðsyn, að tví- burar verði að koma til svo að gagni komi, sagði Ylfa, þá er þetta ráð auðveldara að fallast á, en að vera viss um fram- kvæmdina. Og auk þess er þó nokkur munur á bóndamanni í Verend og sjálfum Danakon- ungi, og er því ekki víst, að slík tiltekt gæfi okkur góða raun. Ormur sagði, að margt mætti segja bæði með og móti þessu ráði. En það ætti þó alls ekki við fyrir veikan og máttlítinn mann. Hann yrði því fyrst og fremst að hugsa um að komast á fætur og bera upp bónorðið við Har- ald konung. Langur tími leið, en að lokum læknaðist sárið, Ormur komst á fætur og byrjaði að fá krafta sína á ný, en þá var orðið áliðið vetrar. Haraldur konungur var nú hraustur og glaður og hafði mikinn viðbúnað með skip sín, því að hann ætlaði að sigla til Skáneyrar til að innheimta síld- artollinn, og þaðan ætlaði hann að senda Styrbirni herskip þau, er hann hafði heitið honum. Ormur gekk fyrir hann og bar upp erindi sitt. Konungur tók því ekki óvinsamlega, en spurði Orm, hvaða maður hann væri, er hann hyggði á svo tigið kvon- fang. Ormur sagði þá ætt sína og óðal, taldi upp eignir íöður síns, og hvað hann sjálíur hefði meðferðis úr ferðum sínum ut- anlands. — Auk þessa eru lendur í Gö- ingu, sem móðir mín átti að taka í arf, bætti hann við, en eg veit lítið um þær. Eg veit heldur ekki, hvernig farið hefur um frændur mína, eða hverjir þeirra eru enn á lífi, því að margt getur hafa breytzt heima á sjö árum. — Gersemi sú, er þú gafst dóttur minni, er stórmannleg gjöf, sagði konungur, og gert hefur þú mér greiða, sem eg gleymi ekki. En að mæla til mægða við sjálfan Danakonung og vilja fá dóttur hans, það er hæsti heiður, sem nokkur getur sótzt eftir. Hingað til hefur viesjA

x

Víðsjá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.