Víðsjá - dec 1946, Síða 93
ORMUR RAUÐI
91
því að eg em snarari í snúning-
um en hann. Ennþá hefur hann
aldrei refsað mér, og honum
rennur fljótt reiðin. En hann er
þannig skapi farinn, að sé hon-
um veitt mótspyrna í einhverju,
sem honum er verulega alvara,
þá er hann langrækinn og van-
rækir aldrei að koma fram
hefndum. Það mun því ráðleg-
ast, að egna hann ekki í þessu
máli, því að hann væri þá vís
til að gifta mig einhverjum af
mönnum sínum, einungis til að
gera okkur illt og af löngun til
að sýna, að það er hann, sem
ræður. En það skaltu nú vita,
Ormur, að eg vil engum giftast
nema þér, og álít eg þig verðan
þess, að eg bíði þín til hausts,
þó mér finnist það langur tími.
Sé hann þá enn á móti ráðahag
okkar, mun eg ekki bíða lengur,
heldur fylgja þér, hvert sem þú
vilt.
— Léttara er mér nú í skapi,
er eg hef heyrt þig segja þetta,
sagði Ormur.
★
ópumincfuin
61.
1. Jörðin (hún hreyfist h.u.b. 30 km. á sek., en hljóðið 340 m.
á sek.).
2. Þorgrímur, kallaður Snorri goði.
3. Bertha v. Suttner, sem hlaut friðarverðlaunin.
4. Ég er 31% árs og sonurinn 1% árs.
5. Kólumbus.
6. T. d. Askur Yggdrasils, skilningstréð og kirsuberjatréð, sem
George Washington skemmdi fyrir föður sínum.
7. T. d. þrír af kanadisku fimmburunum Dionne.
8. 25. febrúar.
9. Þær eru allar eftir Nóbelsverðlauna-höfunda.
10. Örkin hans Nóa.
VÍÐSJÁ