Víðsjá - dec. 1946, Side 95

Víðsjá - dec. 1946, Side 95
NOKKRAR NÝJAR BÆKUR 93 Þá hefur Tryggvi Jónsson sent frá sér nokkra æviþætti: Árblik og aftanskin, sem Kon- ráð Vilhjálmsson hefur búið til prentunar (190 bls., verð 20 kr. ób.) og Ásmundur Helgason hefur ritað: Þátt af Brynjólfi Jónssyni, skipstjóra, Eskifirði. (44 bls, 5 kr.). Þjóðsögur og sagnir hafa margar komið t. d. Skaftfellsk- ar þjóðsögur og sagnir eftir Guðmund Jónsson Hoffell. Mar- teinn Skaftfells hefur séð um útgáfuna. í bókinni er sjálfs- ævisaga Guðmundar, sagnir um jökla, jökulhlaup o. fl. í Austur- Skaftafellssýslu, frásagnir um menn og viðburði, alþýðutrú ýmis konar, orðatiltæki, skrítl- ur og kveðskapur. 324 bls, 35 kr. ób, 50 kr. og 68 kr. íb. Af nýju ritsafni: IVIenn og minjar. íslenzkur fróðleikur og skemmtun hafa komið 3 hefti, sem Finnur Sigmundsson, lands- bókavörður, hefur búið til prentunar. I. bindi heitir: Úr blöðum Jóns Borgfirðings (149 bls. kr. 12.50 ób.), III. bindi: Grímseyjarlýsing eftir síra Jón Norðmann (58 bls. 5 kr.), IV. bindi: .Allrahanda, eftir Jón Norðmann (170 bls. kr. 12.50). Ennfremur hefur komið fram- hald á ýmsum söfnum þjóðlegra fræða: Vesfirzkar sagnir, III. bindi. Fyrri hluti. Eftir Arngr. Fr. Bjarnason. Austantórur, II. bindi, eftir Jón Pálsson. íslenzk- ar þjóðsögur og sagnir, VIII. bindi Sigfúsar Sigfússonar og íslenzkar þjóðsögur, IV. bindi, eftir Einar Guðmundsson. Skáldsögur hafa komið eftir Guðrúnu Jónsdóttur frá Prest- bakka: Ekki heiti ég Eiríkur (127 bls, verð 25 kr. íb.) og eftir Þorleif Bjarnason: Og svo kom vorið (88 bls, 10 kr. ób. 18 kr. íb.). Áður hefur komið út eftir Guðrúnu, Fyrstu árin, og Þorleifur Bjarnason er höfund- ur Hornstrendingabókar. Þrír ungir menn hafa sent frá sér smásögur og er Þorsteinn Jósepsson einn þeirra. Hann er áður kunnur fyrir bækur sínar, þessa kallar hann Týrur, og er hún með myndum eftir Halldór Pétursson, Hauk Stefánsson, Axel Helgason og Atla Má (136 bls, 18 kr. ób. og 26 kr. íb.). Lifendur og dauðir heitir bók Kristjáns Bender (145 bls, 12.50 ób.), en Friðjón Stefáns- son nefnir sína bók: IVIaður kemur og fer (157 bls, 20 kr. ób.). Hann hefur birt eftir sig smásögur áður í ýmsum tímarit- um. Ljóðabækur hafa komið út eftir: Huldu, síðustu ljóð henn- ar, er heita Söngur starfsins, 245 bls, 30 kr. ób, Guðmund v í ð s j Á

x

Víðsjá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.