Freyja - 01.05.1898, Side 3
FREYJA. M A í 1898.
3
ist þangað, og vann ekkert. Penn
og Venables sem tóku Jamaica,
reyndu að taka Havana, en urðu frá
að hverfa. Bretar réðust á virki
þeirra 17G0 og náðu borginni, en
sleptu henni eftir fá ár við Spán-
verja aftur. Við lok aldarinnar
jnistu þeir Trinidad, og með því
verzlun við Ameríku. Bretar hjálp-
uðu þeim í stríðinu við Napoleon,
og Frakkar hjálpuðu Ferdinand VII
að halda ríki sínu.
SPÁNN TAPAR HEIMSÁLFU.
Snemma á 19. öld byrjuðu upp-
reistir í Suður-Ameríku. Leyni-
félög mynduðust í því augnamiði að
hrinda af sér inu spánska þræl-
dóms oki. Stofnunarmaður þessara
félaga var Francisco Miranda,
spán ikur að ætt. Hann barðist
undir stjórn Washingtons f frelsis
stríði Bandar. Þar lærði hann að
meta frelsið, og hrifinn af þjóðstjórn
og frelsislöngun setti liann alt í
hreyfingu i Suður—Ameríku. Fé-
lagið, Grand Reunson America
myndaði hann í London, því ekki
var vogandi að gjöra það í (Jaracas.
Nokkur ár gjörði hann árangurslaus
upphlaup. í félagi mcð Miranda
vav Bolivar og San Martin.
1810, 19. apríl gjörði Caracas upp'
reyst móti Spáni undir forustu Mír-
andas. Bolivar og San Martin voru
einnig þá með honum. I 2 ár stóð
styrjöld þessi yfir; þar til jarðskjálfti
kom sem eyðilagði allstórann part
af borginni og drap f jölda fólks; hin
ir lijátrúuðu innbúar heldu það fyr-
irboða einhvers íis, lögðu vopnin
niður og gáfust upp. Miranda var tek
inn fastur og myrtur i varðhaldi.
Bolivar flúði til Nýju-Granada.
Oktober 1812 kom Bolivar aftur
meðöOO menn til Venezuela og hóf
stríð móti Spáni, vann hann þá hvern
sigurinn á fætur öðrum. 1813 hélt
hann sigurför sína til Caracas; eftir
það hallaði gengi hans aftur, síðast
fiúði hann til Jamaica. Ófriður þessi
stóð vfir þangað til 1821 að Nyja-
"Granada og Venezuela sameinuðust
undir nafninu Columbía sem sjálf-
stætt lýðveldi; þá voru og hinar síð-
ustu leifar af spánskum hersveitum
reknar þaðan. 1824 bættist Ecuador
við Columbía lýðveldið. Peru varð
sjálfstætt fylki 1825 með nafninu
Bolivia. Fyrir dugnað Dundonalds
urðu bæði Peru og Chili sjálfstæð
árinu áður, n. 1. 1824. Mexico losn-
aði einnig 1821. Guatemale—- öll
Mið-Ameríka braut einnig liina
Spánsku lilekki af sér 1822. Ið litla
fylki meðfram Plato ánni. Paraguay
var eitt með þeim fyrstu að losna,
það var 1814; hennar dæmi fylgdi
Uruguay sama árið, og Argentine
eftir 10 ára styrjöld sem endaði með
frelsi hennar 1824. Brasilía losnaði
þegar stríðið stóð milli Spánar og
Portugal. Bandar. fengu Florida 18-
13. Cuba og Puerto Rico var þá alt
sem Spánn hafði umráð yfir í Vestur
álfunni.
MOLAR INS SPÁNSKA RÍKIS
Að undanskildum spánska tang-
anum, nokkrum nærliggjandi eyjum
og sakamanna nýlendu f Afríku, á
Spánn nú ekkert eftir af sínu fyrrum
víðlenda ríki nema Cuba og Philippí
eyjarnar sem hvorttveggju eru nú !
uppreyst. Columbus sagði um Cuba
að hún væri ið fegursta land sem
mannlegt auga hefði nokkru sinni
litið. Ina friðsömu innbúa þessa
undra lands eyðilögðu Spánverjar
með öllum upphugsanlegum níðings-
brögðum. Af því ekkert gull fanst á
Cuba, hirtu Spánv. ekkert um hana
í mörg ár. En inir Spánsku nýlendu
menn fundu skjótt að Cuba fram-
leiddi meiri auð í sykri en margar
gullnámur hefðu getað gjört. í tvær
aldir hefur það nú verið in ótæm-
anlega auðsuppspretta sem Spánverj-
ar hafa ausið úr. Loksins tók Cuba
að leiðast ránsstjórn Spánar og gjörði
uppreist hvað eftir annað, aðeins
til að flnna enn átakanlegar til þrœl-
lyndis böðla sinna. Svo kom ið al-
kunna 10 ára stíð; og síðast er þessi
yflrstandandi ófriður. Puerto Rico
hefur verið lítill gaumur gefinn; saga
hennar er dauf, og forlög hennar
verða in sömu og Cuba. Philippine
eyjarnar eru merkur þáttur í inum
mikla eldfjalla hrygg, sem ljggur
frá ströndum Asíu. Kamchatka, Kur-
iles, Japan, Formosa, Philippi, Born-
eo, Java, allar þessar eyjar mynda
þennann sama klasa, ásamt tveimur
stórum, Luzon og Mindanaho, og
fleiri hundruðum af smáeyjum sem
allar eru afieiðingar af eldi og full.
ar af dýrmætum málmi. Loftslagið
er ákaflega heitt. Þurt land á öllum
þessum eyjum er samtals 45,000 fer-
li. mílur. Innbúatal á þessu svæði er
8,000,000. Allar þessar eyjar eru
framúrskarandi auðugar. Þar eru
engar skaðlegar skepnur nema krók
odíllinn, en grúi af vísundum, svín-
um, antilópum, öpum og ýmsum
skaðlausum gagnlegum dýrum. Inn-
búarnir eru blendingur af Spánverj-
um, Malays og Polynesians, Kínar
hafa einnig numið þar land; á seinni
árum hafa Japans menn flutt þang-
að í stór hópum, ef til vill í þeim til-
gangi að ná haldi á eynni er Spán-
verjar yrðu burt reknir. Nú er þar
fátt af óblönduðuin Sánverjum. Iðn-
aður og verzlun er í allmiklum blóma
gufuskipa línur, járnbrautir og frétta
þræðir. Útlend verzlun þeirra
nemur $60,000,000 árlega, Manilla
er skínandi fögur borg, og stendur
nærri inni beztu höfn, sem til er i
heimi; með æfa gömlum vig-girðing-
um, stórum kyrkjum, ljómandi listi-
görðum, stórar skrauthallir, rík-
mannleg veitinga-hús og tízkuleg
leikhús. Fólkið er viðfeldið og lag-
legt.
(Framh. næst.)
BARNA KRÓ.
Börnin mín góð: - Síðast sagði ég
ykkur sögu sem án efa hefur komið út
tárunum á einhverju ykkar. Nú atla ég
að segja ykknr skrítna sögu seml þið
getið hlegid að og haft til eftir hreytni.
Hún er alveg sönn og kom fyrir austurí
ríkjum fyrir stuttu síðan. Bóndi nokkur
var á fuglaveiðum; varð honum það
slis að skjóta uglu í vænginn sem sat í
tré skamt þaðan. Uglan varð hrædd og
atlaði að fijúga burt, en misti jafnvægið
og féll af því h ún var vængbrotin.
Bóndi fór þá til, tók hana og flutti hana
heim, setti hana í fugla búr cg græddi
svo brotna vænginn hennar. Það var
auðséð að hmni leiddist ósköpin öll,
það vildi nú svo til að gömul hæna eem
átti hreiður sitt skamt frá búri uglunn-
ar, dó frá ungum sinum þriggja nátta
gömlum, Bóndi vissi ei hvað hann átti
að gjöra við móðurleysingjana; tekur
hann þá eftir því að uglunniermjög ó-
rótt svo honum dettur í hug að færa
henni þá, svo með mestu varúð lætur
hann þá til hennar. Uglan varð auðsjá-
anlega sárfegin, og ekki leið á löngu áð-
ur þeir voru horfnir undir vængi hennar
Eftir það gengdu ungarnir kalli hennar
(Framh* á 8. síðu.)