Freyja - 01.11.1909, Blaðsíða 6

Freyja - 01.11.1909, Blaðsíða 6
7* FREYJA XII 4 íslendingar í Duluth þó fáir séu, búa nœrri báSum , yztu pörtum bœjarins austur og vestur og hæöst uppi í hæöum og má því segja aömeginiö af honum sé á milli þeirra. Engu að síöursegii þjóðernið til sín, og hittast þeir sem íslendingar þegar hœgt er að koma því viö og eitthvað dregur þá saman. MálþráÖ hafa þeir ffestir í húsum sínum og geta því talast viö er þeir geta ekki fundist, Engan íslenzkan félagsskap hafa þeir, en tiiheyra aftur á móti ýmsum innlendum félögum sjálf- um sér og löndum sínum til sóma. Eitt var það sem sérstaklega dró athygli mitt aö eldra fólkinu, og það var sameiginlegur áhugi þess fyrir mentun barna sinna, og að unga fólkinu, sem ég kyntist, fyrir þaö, hve sú mentun hefir undantekningarlaust orðið því blessunar- rík í afleiðingum sínum, oggjört það að frjálslyndu, hugsandi, starfandi og góðu fólki. Ekki er ég œttfróð og reyni því ekki að rekja ættir Dul- uth Islendinga. En í mörgum þeim er ég kyntist þar, leyndi sér ekki gott blóð — höfðingjabragur og rausn forn-íslendinga sem er h'in eðlilega undirót hinnar aðdáanlegu menningar yngra fólksins þar. Meðan ég dvaldi í Duluth var ég hjá Halldóru Ólson. Heima hjá henni og með henni í heimboðum hjá þeim sjálfum kynntist ég flestum löndum þar ogþaðsvovel, að ég hlakka til ef leið mín skyldi liggja þangað aftur. Halldóra Ólson hefir, sem kunnugt er, fœðingarhús eða hospital. Það hygg ég að enginís!. kona í Vesturheimi hafi unnið þjóð sinni meiri sóma enhún, og engin fleiri kærleiks- verk á ógæfusömum systrum sínum. A slíkum stöðum þarf maðurað vera til að kynnast fyrir alvöru þeirri hlið lífsins sem sýnir konuna yfirgefna af öllum sem undir þeim kringumstæð- um ættu að standa með henni, með þá þyngstu ráðgátufram- undan sér, hvernig hún eigi að afbera einstœðingsskap, sorg, sjúkdóma og fyrirlitning, ofan á það, að verða að sjá sjálfri sér borgið ognýrri veru, sem engin kcerir sig um nema hún sjálf, Þegar ég dvaldi þar, voru nokkrar stúlkurþar einnig er þarnfg var ástatt fyrir og ein bættist í hópinn og aunaðist

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.