Freyja - 01.11.1909, Blaðsíða 18
90
FREYJA
XII 4
Hon, Chas, A. Towne, um ,,kvennfrelsi“.
Á útnefningafundi í Cooper Union, höldaum til aö út-
nefna háyfirdómara Williams | . Geyner sem fulltrúa sjálfs-
stseöis flokksins, sagöi hon. Carles A. Towne, fyrverandi efri-
deildar þingmaöur frá Minnesota og sem einusinni sókti um
varforsetasætið í Bandaríkjunum:
„Það sem mest hrífur hugimanna viö útnefningu dómara
Geyners, er hið óskifta fylgi, sem hann hefir frá mentuöustu
og þjóðræknustu konum landsins, sem vitanlega byggist á
styrkum siðferöisgrundvelli. I gegnum þau mál mun konan
ná rétti sínum. Verið getur að oss karlmönnunum fyrir hé-
gómlega sjálfselsku og andlega staurblindu fyrir hinni sönnu
velferð þjóðfélegs vors, takist enn um stund aö tefja fyrir
þessu, Enda þó vér sjálfir viðurkennum að það sé einmitt
sjálfsafneitun, þrautsegja, og staðfesta kvenna sem á öllum
tímum hefir svo jafnað metaskálar mannlegrar hamingju og ó-
hamingju að ekki hefir alt fallið í rústir. Sem hefir haldið
heimilunum við, þegar ekkert annað gjörðiþað—þessum stólp-
um mannfélagsins, án hverra ekkert mannfélag gœti lifað
og þrifist. En svo líður að því að vérgetum ekki mikið lengur
staðið sjálfum oss í vegi fyrir þeirri blessun, sem áhrif þeirra
á þjóðlíf vort, með fullu jafnrétti, hefir f för með sér.
Óbœnheyröarhafa konur um langan tíma beðið um hlut-
töku í kosningu þeirra sem stjórna oss, tiibúningi þeirra laga,
sem þær eins og vér verða að hlýða, lögum semákveða skatta
sem þær eins og vér verða að greiða. Menn hafa ekki viljaö
hlusta á þessar raddir þó kröfur þeirra um ,,jafnrétti“ séu svo
sanngjarnar að móti því verður ekki með sanni mælt — móti
því, að veita þeim þúsundum kvenna, sem vinna sér og oft
öðrum brauð, þau einu réttindi, sem gefa þeim sjálfsverndun-
armátt. Hin siðferðislega hlið þessa máls er ómótmælanleg,
og mun í nálœgri framtíð greiða götu þeirra að takmarkinu og
þá munu lofthailir vorar um alvizku vora og óskeikulleik hrynja
ineð miklum gný, og vér munum þá minnast þeirra með fyrir
litningu, eins og niðurlagðrar afguðadýrkunar og furða oss á því
einu, hve lengi það hafi varað.