Freyja - 01.11.1909, Blaðsíða 15
XII 4 FREYJA 87
ekki keyrt hesta hans til Monte Rotondo, heimili Carlos og
íarið þaðanhvert sem honum sýnist?“
Þetta dugði. Rossi tók á sig bóndagerfi og torkendisig
sem mest hann mátti, því innan tíu mílna út frá Rómaborg
mátti heita að hver maSur þekti hann.
Fyrsta eimlestin sem ætlaði til Florence og Milan lagSi
af stað frá Rómaborg kk hálf tíu morguninn eftir. Hún kom
við í Monte Rotondo 18 mílur frá Róm. Á meðal farþegjanna
sem þar bœttust við, var maður nokkur í bláum vatnsstígvél-
um, bláum brókum, girtur hvítu mittisbandi utan yfir blárri
úlpu með rauöu fóðri. Allir vagnar voru fullir af ferðafólki,
sem hafði alt annað en ánœgjulegar sögurað segjaaf verusinni
í Róm, sérstaklega síðustu nóttina.
,,Það stafar a)t af því að láta mann einsog þenna Rossi
ganga lausan. Eg skyldi setja aiia anarchista á mannlausa
eyju,“ sagði Englendingur nokkur skrækróma eins og gömui
hæna.
,,Rossi er enginn anarchisti,“ sagði Bandaríkjamaður,
sem þar var viðstaddur.
,,Hvað er hann þá.?“
,,Draumadreymari. “
,,Það hljóta að veraslæmirdraumar, “ sagði Englending-
urinn með hœnuröddina, og allir hlógu.
6. -- Rómverski Rómverjinn.
I.
Dagin eftir þegar Róma vaknaði, leið henni vei. Nóttin
með sínum skelfingum var liðin og hún reyndi að ímynda sér
hvar Rossi væri þá eftir klukkutímafjöldanum sem hann hefði
verið á leiöinni. Nú kom Natalína mn með morgunkaffið cg
dagblöðin og var óðamála mjög um atburði nœturinnar.
Róma lét hana fjargviðrast en þreif blöðin og sá á þeim, að
Rossi hefði sloppið. Uppreistin var, samkvœmt yfirlýsingu
stjórnarinnar niðurboeld, en samt var borgin undir herrétti og