Freyja - 01.04.1910, Blaðsíða 19
XII 8.
FREYJA
Fréttir úr heimi kvenna.
235
Þingið i Washington.
N. A. W. S. A. (Hið sameinaða kvenréttindafélag í
Bándaríkjunum hélt 42. ársþing sitt í Wash. D. C. frá 14. ti!
59. apríi að báðum þeim dögum meðtöldum. Taft forseti
var gestur þingsins síðasta daginn og talaði vingjarnlega um
rnálefni þess. Reglugjörð um verkefni þingsins var prentuð í
apr. nr. af ,, Progress, “ aðal málgagni félagsins.
VlTNISBURÐIR þEIKRA SEM VITA
Ríkssritarinn f Colorado segir; ,,Áttatíu atkvœðisbærar
konur af hundraði hverju rituðu nöfn sín á kjörskránrar við
síðustu yfirskoðun þeirra, og 72 pr. greiddn atkvæði við síð-
ustu kosningar. “
Ríkisritarinn í Wyoming segir, að 90 konur af hundr-
hverju hafi þar greitt atkvœði við síðustu kosningar.
Ríkisrétturinn ásamt háyfirdómaranum í Idaho skrifuðu
undir skýrslu, sem sýnir að konur þar, noti atkvæðisrétt sinn
engu síður en karlmenn,
Við síðustu kosningar í Australíu, þar sem karlmenn eru
enn þá mikið fleiri en konur, greiddu karlmenn alls 628,235
atkvœði, en konur 431,033.
Þegar jafnrétti var löggilt 1893 á Nýja Sjálandi, voru þar
einungis 139,915 atkvœðisbærar konur. 109,461 rituðu þeg-
ar nöfn sín á kjörskrárnar, og síðan fjölgar þeim konum ár-
lega sem hagnýtasér borgaraleg réttindi sín.
Síðustu ríkisskýrslur frá Nýja Sjálandi segja, að hjóna-
skilnaðar tilfellum hafi þar fœkkað um 77 pr. síðan jafnrétti
varð þar að lögum.
Samskonar skýrsla frá Wyoming sýrn'r að slíkum tilfellum
hafi þar fækkað um 85 pr, á þeim 40 árum sem konur hafi
h aft borgaralegt jafnrétti.
í báðum tilfellunum gjörirjafnréttið heimilin ánœejulegri
og orsaki samúð, sem ekki geti átt sér stað án þess. I fyrra
tilfellinu eru hjónin ekki einungis ástvinir, heldur og einnig
vinii og félagar, samhuga og sammála um öll þjóðfélags rnát