Helgarpósturinn - 18.05.1979, Side 18
V
i
18
Mammkom
og önnur poppkorn
Café Jacques —
International
Upprennándi nafn i bresku
tónlistarlifi um þessar mundir
er trióiö Café Jacques, skipað
Cristopher Thomson — söngur,
gitar, Michael Ogletree —
söngur, trommur, gitar o.fl. og
Peter Veitch — hljómborð. Þaö
var söngvari og trommuleikari
Genesis, Phil Collins, sem kom
þeim félögum á framværi við
hljómplötufyrirtækið Columbia
oghefur hann alla tið verið þeim
mjög innan handar. Fyrsta
plata Café Jacques, Round The
Back, kom Ut 1977 og vakti
mikla hrifningu meðal tónlist-
arspekúlanta, og sögðu flestir
að nú hefðu bretar eignast aðra
Genesis, — sem er ekki litið lof,
þvi einsog þeir vita, sem eitt-
hvaö þekkja til breska tónlistar-
heimsins, er Genesis ein virt-
asta hljómsveitin i þvisa landi.
Og ekki alls fyrir iöngu kom út
önnur plata Café Jacques og
heitir Intemational. Þótt tónlist
Café Jacques minni óneitanlega
á Genesis og höfði örugglega tii
sama hlustendahóps, býr hún
eigiaö siöur yfir sjálfstæðum og
töfrandi eigindum. Framsækið
rokk er sennilega besta skil-
greiningin áhenni (reyndar lika
á tónlist Genesis). Þetta er góð
plata.
Roxy Music —
Manifesto
Þá er búiö að endurvekja
hljómsveitina Poxy Music. Og
eru þar samankomnir flestir
þeir sem komu við sögu á
blómaskeiði hennar á árunum
’72-’76, að Brian Eno undan-
skildum, — eða Bryan Ferry,
Phil Manzanera, AndyMackey,
Paul Thompson, Gary Tibbs,
Alan Spennar og Paul Garrack.
Manifesto, platan sem boöar
endurkomu Roxy Music, skipt-
ist í tvennt, austur- og vestur-
hlið, og má segja að austurhliö-
in sé upprif jun á byrjunarskeiði
Roxy, þ.e. þegar hún var
framáæknari og uppfinninga-
samari. Vestur-hliðin speglar
Popp
eftir Pál Pálsson
*
hlið hljómsveitarinnar, lög sem
öll eiga fullt erindi á vinsæld-
alista heimsbyggðarinnar. En
ekki er fariö inná nýjar brautir,
og að þvi leyti veldur platan
nokkrum vonbrigðum. Maöur
hafði búist viö öðru af Bryan
Ferry og félögum.
Gcorge Harrison
„Mikið var, að beljan bar”
sagði kerlingin. Og það var lika
þaðfyrsta sem ég hugsaöi, eftir
að hafa hlýtt á nýjustu plötu
George Harrison. Mikiö var, aí
George Harrison skyldi loksins
hrista af sér slenið og sýna
heiminum ogsanna að hann er
enn tónlistarsmiður og -flytj-
andi par excellence. A þessari
nýju plötu hans má finna hvert
topplagiö á fætur öðru, sem
jafnast á við það besta sem
hann gerði með Bitlunum
(Something og Here Comes The
Sun ), lög eins og Love Comes To
Everyone, Not Guilty, Here
Comes The Moon, Faster o.fl.
Og þessa dagana er lagiö Blow
Away, að brjótast inná vinsæld-
arlistana.
Ég er strax farinn að biða
spenntur eftir næstu plötu
George Harrison, og segi ekki
meira.
George Benson —
Living Inside Your
Love
George Benson er sennilega
stærsti d j as s-po pp ar i
Amerikunnar i dag. Þá stöðu
nældi hann sér i árið 1976 meö
plötunni Breezin’oghefur siðan
frekar styrkt hana en hitt. OG
fyrir skömmu lét hann frá sér
tveggja-platna albúm sem hann
kallar Living Inside Your Love.
Tónlist George Benson er
einsog fram hefur komiö, djass-
að popp, átakalitið og leikandi
létt. Hljóðfæraleikur, söngur,
upptaka — allt fyrsta flokks.
Benson hefur lengi haft þann
sið, aö taka fyrir einhva-ja
gamla ballöðu á plötum sinum
og hér er Unchained Melody,
sem orðið hefur fyrir valinu.
Þetta er plata sem höföar til
allra kynslóða og er tilvalin á
fóninn þegar fólk vill hafa það
rólegt og notalegt. Og ef þaö er
einhver söngvari sem getur
stælt meistarann Stevie Wond-
er, þá er það George Benson. Og
það segir sitt.
Mannakorn —
Brottför kl. 8
Mannakorn, meö lagasmiðinn
og altmulig-tónlistarmanninn
Magnús Eiriksson i broddi fylk-
ingar, hafa nú gefiö út á merki
Fálkans h.f. sína þriðju breið-
skifu og kalla hana Brottför kl.
8. Þessiplata er nokkuð ólik hin-
um fyrri og að minum dómi og
betri. Þar kemur margt til, t.d.
þáttur efnilegustu söngkonu
okkar i dag, Ellenar Kristjáns-
dóttur sem gefur tónlistinni
meiri breidd. Einnig virðist
meira lagt i vinnslu þessarar-
plötu en hinna. Það var ekki vist
i upphafi hvort Pálmi Gunnars-
son yrði með á plötunni, þarsem
hann er nú samningsbundinn
við Hljómplötuútgáfuna h.f. og
þvi er þáttur hans I hljóöfæra-
leiknum minni en áöur. Og þótt
Mannakorn hefðu fengið ágætan
bassamann i hans stað, Jón
Kristinn Cortes, þá hefði aldrei
verið hægt að fá betri söngvara.
En sem betur fer þurfti þess
ekki.
Brottför kl. 8 fær bestu með-
mæli Helgarpóstsins.
Verk Þorkels flutt í NY
t bandariska störblaðinu New
York Times rakst Helgarpóst-
urinn á auglýsingu fyrir tón-
leika gitarleikarans Leo
Brouwer og flautuleikarans Ro-
bert Aitkins þar i borg. Þar er
innan um tónskáld eins og
H'ándel, De Falla og Vilia-
Lobos, sem verk eiga á efnis-
skránni, nafn Þorkels Sigur-
björnssonar. Óneitaniega er það
fengur fyrir Isienska menningu
þegar hún fer að skjóta upp kolli
með þessum hætti i stórborg-
inni, en tónleikar þessir eru
haldnir m.a. af Center forlnter-
American Relations, kanadisku
aðalræðisskrifstofúnni og sam-
tökum um klassiskan gitarleik.
Þess má geta að Robert Aitkin
er mörgum isiendingum að
góðu kunnur, en hann hefur oft-
sinnis leikið hérlendis, m.a. með
Þorkeli f Icelandic-Canadian
Ensemble.
Jonas vinnur að trlandsþáttunum.
LEIKFÉIV\G
REYKJAVlKUR
STELDU BARA MILLJARÐI
laugardag kl. 20.30
fáar sýningar eftir
ER ÞETTA EKKI
MITT LtF?
frumsýn. sunnudag uppselt
2. sýn. miðvikudag uppselt
Grá kort gilda
3. sýn. fimmtudag kl. 20.30
Rauö kort gilda.
Miðasala i Iðnó kl. 14-19. Simi
16620.
BLESSAÐ BARNALAN
Miðnætursýning i
Austurbæjarbiói
Laugardag kl. 23.30
örfáar sýningar eftir
Miðasala i Austurbæjarbiói kl.
16—21. Simi 11384.
,, Við óeðlilegt stríðsástand
kemur oft fram það
besta í manneskjunni”
— segir Jónas Jónasson sém er
v nýkominn heim úr útvarps-
leiðangri til N-Irlands
Þau Jónas Jónasson og Gunn-
vör Braga komu um siðustu helgi
heim frá N-triandi, þar sem þau
dviildust um rúmlega hálfsmán-
aðar skeiðvið upptöku á útvarps-
efni.
Barnadeildir útvarpsstöðva
Norðurlanda hafa með sér
nokkra samvinnu, og á fundi
þeirra i fyrra var ákveðið aö
senda dagskrárgerðarmenn frá
hverri stöð fyrir sig, eitthvað út i
heim tíl að gera I tiiefni barnaárs-
ins dagskrár um börn, sem búa
við óeðlilegar aðstæður. Það féll
siðan i hlut rikisútvarpsfns að
fara til Noröur-irlands.
„Þetta er byggt á viðtölum við
fólk”, sagði Jónas Jónasson, þeg-
ar Helgarpósturinn spuröist fyrir
um efnisöflunina. ,,Ég komst aö
þeirri niöurstööu eftir að hafa
hljóöritaö þarna efni i dagskrá,
að þetta yröu ekki þættir um börn
fyrir börn, heldur um fólk fyrir
fólk. Börneru fólk lika, eins og þú
veist”.
„Það var athyglisvert”, sagöi
Jónas, „að börn fædd eftir 1969,
þegarólætin byr ja — sem eru alin
upp við þessar hrikalegu
sprengingar og morð — lfta á
slíkt sem sjálfsagöan hlut. Fyrir
þau er þaö partur af lifinu.
Unglingar sem við ræddum við,
muna hinsvegar timana tvenna
og þeir hafa átt töluvert erfitt
með aö komast i gegnum þetta”.
„Þegar komið er til Belfast
viröist ástandið við fyrstu sýn
ósköp eðlilegt”, sagði Jónas.
„Þegar betur er aðgáð sér maður
þó hversuóeðlilegtþaðeri' raun.
Þarna aka brynvarðir bilar um
göturnar, vopnaöir hermenn eru
viða, og verslunarhverfi eru girt
af. Allar verslanir eru lika lokað-
ar. Þú verður að banka uppá, og
siðan er leitað á þér þegar þú
labbar inn i búðina. Þarna gengur
fólk ekki frjálst um”.
„Segja má aö við höfum verið
að búa til efni um það sem gerist
eftir að búið er aö sprengja. Þá
hættir fólk yfirleitt að lesa, en
einmitt þá er lifssaga rétt að
byrja hjá flestu þvi fólki sem
verður fyrir einhverju sliku.”
„Það er ekki hægt að gera
þáttasyrpu um ástand”, sagði
Jónas, ,,án þess að tala við þá
sem sköpuðu ástandið og þaö er
fulloröna fólkið. Ég ræddi einnig
við sálfræðinga og fagfólk sem
hefur meö þjóöfélagsmál að gera,
og svo auðvitað við börn. En
írarnir vita ekki af hverju þetta
ástand er, né hvað sé til úrbóta,
og ég er ekki meö neitt svar viö
þvi. Ég er aö reyna að koma til
skila andrúmsloftinu I Belfast,
sem er afskaplega sérstætt, þvi
þóþarna sé margt ógnvænlegt, er
þarna lika fallegt. Við óeðlilegt
striðsástand kemur nefnilega oft
fram það besta i manneskjunni”,
sagöi Jónas.
Jónas sagðistrétt vera að byrja
aö vinna úr efninu, og gat ekki
sagt til um hvenær fyrstu þættirn-
ir yrðu fluttir. Siðar meir vinnur
hann svo 3 hálfti'ma langa þætti til
flutnings á hinum Norðurlöndun-
um —GA
Lestur
fornrita
Lestur fornrita er gamalkunnur
dagskrárliöur I útvarpinu okk-
ar. Nú er hann kominn i danska
útvarpið lika. Um þessar mund-
ir er einn vinsælasti ieikari
Dana, Preben Lerdorff Rye ein-
mitt að lesa Egils sögu i danska
útvarpið og verða lestrarnir tíu,
— á hverjum fimmtudegi.