Helgarpósturinn - 15.06.1979, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 15.06.1979, Blaðsíða 8
8 _____helgar pásturinn_ Otgefandí: Blaðaútgáfan Vlfaðsgjafi semer dðfturfyrirtæki Alþýðublaðsin: en með sjálfstæða stjórn. Framkvæmdast jóri: Jóhannes Guðmundsson Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn Vignir Sigurpálsson Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf steinsson 1 Biaðamenn: Guðjón Arngrímsson. Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund ur Árni Stefánsson, Halldór Halldórs son Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason Auglýsingar: Ingibjörg Sigurðardóttir Gjaldkeri: Halldóra Jónsdótfir Dreifíngarstjóri: Sigurður Steinars- son Ritstjórn og auglýsingar eru að Siðu- múla 11, Reykjavík. Sími 81866. Af- greiðsla að Hverfisgötu 8 — 10. Sim- ar: 81866, 81741, og 14900 og 14906. Prentun: Blaðaprent h.f. Áskrift (með Alþýðublaðinu) er kr. kr.. 3000 á mánuði. Verð i lausasölu er kr. 150 eintakið. Lausn vandans Þetta ætlar að veröa dæmigert sunnlenskt sumar. Allt siöan aö þaö fór loks aö hlýna i veöri, hafa veöurfræöingarnir ekki haft und- an aö teikna halarófu af lægöum yfir Nýfundnalandi á veöurkortin og varla hefur fyrr veriö búiö aö færa lægöirnar inn, heldur en þær hafa tekiö stefnuna hingaö. Og nti rignir og rignir. Þegar viö þetta bætist svo óáran fýrir noröan, verkföll og verkbönn um aUt land, rikis- stjórnin eins og hiin er, pólitikus- arnir eins og þeir nd eru, oliu- veröhækkunin og versnandi viö- skiptakjör, veröbólga og sam- dráttur þjóöartekna, — þegar all- ur þessi grlöarlegi vandi er sam- an lagöur þá má glöggt sjá teikn þess aö allt stefni I dæmigert Is- lenskt sumar. En einhvers staöar I öltum þessum lægöum og öldudölum, velkist hin islenska þjóöarsál, al- menningur þessa lands, sem er orðinn þreyttur á svona sumrum og raunar niöurdreginn, þvf ekki ber hann ábyrgö á rikisstjórninni, pólitikusunum, hagsmunastrföi vinnumarkaöarins fremur en iægöunum og oliuverðshækkun- inni, eins og allir vita. Hvað getur þá almenningur gert sér til sáluhjálpar og bjargar I móöuharöindunum hinum nýju? Jii, auövitaö hlaupiö frá vandan- um, eins ogallir aðrir gera. Hugmyndin er einföld: Almenningur selur úr landi ail- an fiskiskipastól landsins, bila- kostinn sem söluhæfur ei>ásamt öllum öörum búnaöi og tækjum, sem hefur eitthvert verögildi. Meö þessu fjármagnar almenn- ingur kaup á vænni landspildu einhvers staöar viö Miöjaröar- hafsstrendur, helst 1 landi þar sem enginn hefur heyrt Adam gamla Smith eöa Karl Marx nefnda — og stofnar frfrlki. Þang- aö flyst allur almenningur en pólitikusarnir veröa eftir heima Pólitikusarnir munu meöal annars hafa þaö hlutverk aö sjá um sölu veiöileyfa til annarra þjóöa innan 200 mllna fiskveiöi- lögsögu okkar, svo og aö leigja sömu aöilum aöstööu I landi til fullvinnslu sjávarafla I hinum fullkomnu frystihúsum okkar, leigu á laxveiöiám ogfallvötnum, leigu á landsvæöum til stórveld- anna undir herstöövar og auk þess annast fyrirgreiöslu viö ferðamenn þvl aö búast má viö talsverðum straum sllkra hingaö til lands til aö berja augum heilt draugasamfélag. AUt er þetta tiltölulega einfalt f sniöum og verður þvi ekki ööru trúaö aö óreyndu en pólitikusarn- ir eigi aö geta leyst verkefnið viö- unandi af hendi. Tekjurnar rynnu hins vegar óskiptar til fririkis Is- lensks almennings viö Miöjarðar- haf, og deildust þar jafnt milli fjölskyldna og einstaklinga eftir einfaldri höföatölureglu. Ná- kvæmir hagfræöilegir útreikn- ingar þessa dæmis liggja aö vfsu enn ekki fyrir, og tölfróöir full- yröa þó aö útkoman veröi mjög hagstæö. Pólitiskar forsendur þessa máls eru 1 góöu lagi og ættu aö liggja f augum uppi — A-flokk- arnir fá þarna fram meginbar- áttumál sitt, þ.e. tekju- og launa- jöfnuö og sjálfstæöismenn sitt, þ.e. bákniö burt. Þaö er helst Framsókn sem missir spón úr aski sinum Góöa sólarlandaferö. — BVS Föstudagur 15. júní 1979 370. skoðanakönnun Hákarls: Hjálpræðisherinn og HLH- flokkurinn í mestri sókn Þrjú hundruð og sjötugasta skoöanakönnun Hákarls, frá þvi eftir siöustu alþingiskosningar, var gerð um helgina. Könnunin leiddi i ljós, svo ekki verður um villst, að fylgi flokkanna er laf- laust og geturrúllaði allar áttir. Þó virðist i fljótu bragði, ef dæma má af svörum þeirra sem spurðir voru, að Sjálfstæðis- flokkurinn sópi að sér fylgi frá Alþýðuflokknum, Framsóknar- flokkurinn virðist rifa til sin fylgi frá Alþýðubandalaginu, Alþýðuflokkurinn sýnist skófla að sér fylgi frá Framsóknar- flokknum og Alþýöubandalagið hirða drjúgt frá Sjálfstæðis- flokknum. Hins vegar er ljóst af svörum þátttakenda i þrjú hundruð ogsjötugustu skoðana- könnun Hákarls, að Hjálpræðis- herinn mundi vinna yfirburða- sigur, ef þingkosningar færu fram nú, og ef herinn byði fram. Það kom nefnilega i ljós i könnuninni, að Hjálpræðis- herinn gleypir mikinn f jölda at- kvæða frá öllum þing- flokkunum. Nokkrir fleiri komu við sögu i þrjú hundruð og sjötugustu skoðanakönnun Hákarls, sem er hin viöamesta fram að þessu. Þannig kom i ljós, að Félag Islenskra bifreiðaeigenda hefur pipt talsvertfylgi út úr stjórnar- flokkunum vegna linkindar þeirra I garö Rússa og snar- hækkandi benslnverðs. Eða eins og karl á suð-vesturhorni lands- ins oröaöi það: „Þeir verða að fara að segja þeim striö á hendur, annars er ég hættur”. Þá er HLH-flokkurinn i mikilli sókn, einkum meöal yngri kjós- enda I vissum hverfum Reykjavikur og á einstaka stað til sveita, svo sem i Aðaldal, Köldukinn og i syöri hluta Rangárvallasýslu. Samkvæmt svörum þeirra sem spurðir voru á þessum svæöum, skóflar HLH-flokkurinn aö sér at- kvæöum, einkum á kostnað Sjálfstæðisflokksins. Ef marka má svör þeirra sem tóku þátt i hinni viðamiklu skoðanakönnun Hákarls, er skýringanna helst aö leita til tregðu forystumanna Sjálfstæðisflokksins á að nota brilljantin og tyggjó. Eða eins og ungur karl i vesturborginni svaraði: ,,Við li'tum þessa tregðu mjög alvarlegum sól- gleraugum.” Ef gripið er niður i niður- stöður þrjú hundruð og sjötug- ustu skoðanakönnunar Hákarls, frá þvi eftir siðustu alþingis- kosningar, og sem var mjög nákvæmlega útfærð af viður- kenndum félagsfræöingurn, er ljóst, að skýringin á þvi að Hjálpræðisherinn hiröir atkvæði frá Alþýðubandalaginu er slagorð þess flokks: „Herinn burt”. Þetta telja fylgismenn Hjálpræðishersins mikla firru og benda á, að um 98,5 prósent likurséu á, að Hjálpræðisherinn reyndist gagnlegri en bæði núverandi og fyrrverandi ríkis- stjórnir til samans. Þvi sé út i hött að fara að reka herinn úr landi. Þá má telja fullvist, að mikið hrun Framsóknarflokksins megi rekja til pestar i lömbum I kjölfar harðindanna I vor. Viöa á þeim stöðum, þar sem fylgi Framsóknarflokksins var mest i si"ðustu alþingiskosningum, treystu lömb sér ekki til að íaka þátt I skoðanakönnuninni vegna lasleika, og hefðuekkitreyst sér á kjörstað, hefðu alþingiskosn- ingar fariðfram nú um helgina. Hins vegarmá lesa úr svörum þeirra sem spuröir voru, og höföu snúið baki við Alþýðu- flokknum, að meginástæðan var sú, að Vilmundur var sýknaður af ákæru Jósafats. Margir kjós- endur Alþýðuflokksins frá i siðustu kosningum hafa siðan eftir kosningar lifað I voninni um að Vilmundur yrði settur undir lás og slá. Eins og fyrr sagöi var þrjú hundruð og sjötugasta skoðana- könnun Hákarls, mjög nákvæm- lega og visindalega undirbúin. Þó vill Hákarl vara fólk við að taka hana of hátiðlega nema milli klukkan 18 og 19 á virkum dögum og siödegis á laugar- dögum og sunnudögum. Þó má gera undantekningu þar frá, ef sérstaklega stendur á, En vikjum i lokin aö svörum nokkurra þátttakenda i þessari dýrlegu skoöanakönnun Hákarls. Kona á vestanverðu Suður- landi sagði: ,,Ég kýs að kjósa ekki. Enda úr Kjósinni”. Karl á stórreykjavíkur- svæðinu: „Djöfulsins ósvifni er þetta. Ég var að mála þakiö tuttugu og fjórar, þrjátíu. DING. Fjórtán, tuttugu og fjórar, fjörutiu”. Karl I Breiðholti: „Ég er orðinn leiður á þeim öllum. Ég kýs þá ekki næst, ég skýt þá”. Kona í Kópavogi: ,,Hva segiru vinur, Kondelskan, maðrinn minner ekkheima. Hikk”. Karl I Reykjavik: „Veður horfur i Reykjavik og nágrenni næsta sólarhring: Suð-vestan stinningskaldi og skúrir öðru hverju.” Kona i Þorlákshöfn: ,,Mér er alveg sama um þessa stjórn- málamenn. Þeir eru ekkert annað en einber eigingirnin og hugsa bara um eigið skinn. Nú eru þeir orðnir hræddir, þvi þeir tala mest um að nú verði slöustu þorskarnir drepnir hvaö úr hverju. Ég held þeir megi gossa þessir þorskar. Verst að flökin af þeim seljast ekki á Amriku- markaði”. Að lokum má geta þess, að þrjú hundruð sjötugasta og fyrsta skoðanakönnun Hákarls verður gerð nú um helgina, á sama tima. þegar þiö hringduð, helvítin ykkar”. Kona á Raufarhöfn: ,,Je minn. Spyrjið heldur manninn minn. Ég er bara húsmóöir”. Karl á norðanverðum Vest- fjörðum: ,,Ha, hvað segirðu: Halló, halló. Ha, hver er þetta? Halló, ég heyri ekkert. Ha?”. Kona i Reykjavik: „Fjórtán, hákarl Rauði krossinn gekkst I lok siðasta, mánaðarfyrir námskeiði á þingvöllum um alþjóðlegt hjálparstarf og störf sendimanna á neyðartimum. Náskeiðið önnuðust þrir kennarar frá Alþjóðaráði Rauða krossins og Alþjóðasamtökum Rauða kross félaga. Bæði var um aö ræða al- hliða kynningu á starfi Rauða krossins um heiminn en hluti af þátttakendum fór jafnframt i gegnum allt námskeiðið með það fyrir augum að geta orðið sendimenn sem hægt er að kalla til starfa með stuttum fyrirvara. Þátttakendurnir voru frá Rauða krossinum, Utanrikisráðuneytinu og Almannavörnum, alls 25 manns, en 15 luku námskeiðinu. Helgarpósturinn bað einn þátt- takendanna, Björn Þorleifsson deildarstjóra hjá Rauða kross- inum, að skrifa um þau viöhorf sem liggja aö baki sllku nám- skeiði og starfið sem þvl er ætlaö að styrkja. Okkur berast nokkuð oft fréttir af stórkostlegum náttúruham- förum í hinum og þessum fjar- lægum löndum. Jarðskjálftar eru að leggia byggðir I eýði. Felli- byljir rífa þorp og jafnvel borgir upp og feykja þeim burt. Engi- sprettuplágur éta uppskeru fyrir ibúum stórra héraða og hægfára vaxandi þurrkar hrekja fólk á flótta. Sifellt er eitthvað að gerast úti I heimi sem drepur og slasar fólk, sviptir það eigum sinum og rekur það á vergang. Við hlustum kannski ekki svo nákvæmlega á þessar fréttir. Þetta er allt svo langtf burtu. Daglegaheyrum við lika af vopnaviðskiptum þjóða eða þjóðarbrota milli. Tanzaniu- menn ráðast inn I Uganda. Kin- verjar ráðast á Viet Nam. tsraels menn gera skyndiárás á stöövar skæruliða. Tala fallinna og særðra er nefnd. Getið er um skemmdir á mannvirkjum. Svo og svo margir eru sagðir á flótta, heimilislausir og vegalausir. En þetta er allt að gerast I fjarlægum heimshlutum. Kemurþettaokkur nokkuð við? Ef við leggjum betur eyrun við Elías Sigfússon: ÞJÚÐSÖNG- URINN Þann 27. aprfl sl., þá ég var að fara út til vinnu, var Helgarpóst- inum stungið inn um blaða- rifuna. Þó strætó væri aðeins ókominn freistaðist ég samt til að fletta blaðinu. A blaðsiðu einni sá ég litla mynd og i flýtinum dettur mér I hug Rúdolf Hess, fleygi blaðinu I skúffuna. Strætóbíllinn var aö koma. Ekki til setunnar boðið. Þegar heim kom að afloknu dags- verki og ég hafði tima til var farið aðhuga að blöðum dagsins og þar með hvað væri nú til umræðu um Rúdolf Hess. Gleraugun sett á sinn stað og blaðað. Jú þarna á blaðsiðu 19 er litla myndin en hún reyndist ekki vera af fanganum aldraða, heldur af Arna Björns- syni. Með hjálp gleraugnanna réttist þessi missýn frá morgn- inum, kom þá i huga mér spurn- ingin: Hvort er betri brúnn eða rauður. Hvað hafði Árni að segja« Hann ræðir um þjóðsöng okkar i lágkúrulegum dúr, bæði sem lag og ljóð og nefnir sönginn Guð- vorslansinn. Þá telur Arni upp heila runu af lögum sem spiluð séu á vissum tlmum i útvarpi. Sérstaklega hnýtur hann um Is- lensku þjóölögin og segist vera fyrir íöngu farinn að flýta sér að slökkva á útvarpinu, þegar von sé á slikum lögum. Hvort hann má slökkva á þviliku ræður hver og einn. Um önnur lög er Arni telur upp og notuð séu við íslensk ljóð

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.