Helgarpósturinn - 15.06.1979, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 15.06.1979, Blaðsíða 22
blacfamacíur f einn dag Hallveig Thorlacius, sem nú bregöur sér i hlutverk blaðamanns eina dagstund I þágu Helgarpóstsins, er löngu orðin kunn meðal leikhúsáhugafólks fyrir ötult starf sitt við að upphefja brúðuleikhús til vegs og virðingar hér á landi, þar sem hún er einn af aðalforsprökkum Leikbrúðulands. Jafnframt hefur hún bvtt talsvert fvrir Sálfræðingar eru vist ekki vinsælasta stétt manna hér á landi, ef marka má athugasemdir sem oft fljúga manna á milli. „Það var allt f lagi með börnin þangað til sálfræðin var fundin upp”, o.s.frv., o.s.frv. Af hverju stafa sllkir fordómar? Um þetta og margt annað ætla ég að spjalla við Magnús Jónsson. Magnús hefur gert ýmislegt um dagana. Hann var orðinn lifs- reyndari en aðrir jafnaldrar hans þegar á 14. ári, en þá fór hann sem messagutti til Spánar og næstu sumur var hann öðru hvoru til sjós. Eftir stúdentspróf nam hann kvikmyndagerð I Moskvu og slð- an reri hann á báti hjá Thaliu I mörg ár, skrifaði leikrit, leikstýrði, gerði kvikmyndir og var leikhússtjóri á Akureyri. 36 ára gamall venti Magnús sinu kvæði I kross, kvaddi leikhúsiö og hóf nám i sálfræði við Háskóla islands. Að þvi loknu fór hann I framhaldsnám i Bandarikjunum og er nú Iangt kominn með þaö. Magnús var tekinn tali, er hann kom heim i stutt fri. Magnús, er sáifræði óþarfi? Er hún kannski bara enn einn votturinn um hnignun mann- kynsins? ,,Það er sagt að Steinn Steinar hafi viljað lemja Jóhannes úr Kötlum með spýtu fyrir þá sök eina að Jóhannes hafði kennt honum að lesa. Já, sumir trúa þvi að i upphafi hafi verið gull- öld og gleðitið. Er það þá ekki dæmi um hnignun mannkynsins að menn kunna að lesa, tala i sima og éta vitamln? Hitt er annað mál, hvort sál- fræði er óþörf. Hún hefur þá sér- stöðu meðal visindanna gagn- stætt t.d. kjarneðlisfræði, að all- ir geta um hana talað og mynda sér skoðanir, sem eðlilegt er, þvi þetta eru fræðin um hegðun manna og samskipti, og af þvi hafa allir sina eigin daglegu reynslu. Sálfræði sem visindi fæst aftur á móti við að safna Föstudagur 15. júní 1979 —he/garpösiúrínrL. „Ráðgjafi” er sá af tveim á tali, sem á við minni örðugleika að etja á þeirri stundu. sjonvarpið og þá aðallega ur russnesku, en i Sovétrikjunum stundaði hún háskóla- nám á sinum tima. Hallveig gerir sjálf grein fyrir þvi i inngangi viðtals sins hvers vegna eftirfarandi viöfangsefni varð fyrir valinu: „MÖNNUM VERÐUR HARMS $IN$ AO LETTARA, ER UM ER RÆTT meiri og meiri fróðleik, sem hefur viðtækara gildi en reynsla einstaklings. Það fer ekki milli mála að heimurinn sem við lifum i er dá- litið klikkaður, svo sem sést best á þvi að fyrir nokkrum ár- um var til i vopnabúrum stór- veldanna sprengjumagn sem svarar til 10 tonna af TNT á hvern kjaft (karl, konu og barn) sem nú er á lifi. Við þurfum ekki að fjölyrða um samskipti við þriðja og fjórða heiminn eða þau vandamál, sem við blasa i hverju samfélagi, stóru og smáu og ailt niður i stórfelidar truflanir á samskiptum þeirra sem tengdir eru fjölskyldubönd- um. Mér sýnist að þeim mun meiri fróðleiks sem við getum aflað um hegðun manna og hvaða lögmálum hún lýtur. þvi meiri von sé til þess að við get- um snúið aftur til gullaldarinn- ar, sem áðan bar á góma”. Er ekki sálfræöi heldur ung og óburðug vísindagrein? „Sem visindagrein er hún til- tölulega ung, en óburðug er hún nú ekki. Og ég tel að hún sé ein- mitt nú á öru vaxtarskeiði. En er það nokkur furða, þótt raun- visindagreinar, svo sem eðlis- fræði, séu lengra komnar en þær greinar sem fást við mannfólk- ið? Er ekki manneskjan mesta undrið? Þar við bætist að ekki er óliklegt að sálrænir örðug- leikar einstaklinga séu ekki sist „vitlausu” þjóðfélagi að kenna. Að minu viti er meginorsökin fyrir fordómum gagnvart sál- fræði sú, að sterk öfl, sem sjá sér hag i óbreyttu þjóöfélagi fordæma að sjálfsögðu öll þau fræði, sem færa rök að þvi að margvisleg mannanna mein megi beint og óbeint rekja til þess, að þeir búa i samfélagi, sem er „vitlaust”. Hvers vegna fórstu að læra sálfræöi? „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sálfræði. Ég hafði öðru hvoru látið mig dreyma um að læra hana, þangað til ég fékk meiri áhuga á kvikmynda- gerð”. Nú er oft talað um, að menn verði svo vitlausir með aldrin- um og eigi svo erfitt með að læra. „Já, það er satt. Ég hafði lika þungar áhyggjur af þvi, og ég gekk meira að segja fyrir Sigur- jón Björnsson áður en ég lét inn- rita mig og spurði hvort það væri ekki bagalegt að vera kominn á fertugsaldur þegar maður hæfi nám, og hvað fræðin hefðu um það að segja. Hvort maður gæti nokkuð haldið i við þetta ungviði. Sigurjón tók mér af sinni alkunnu ljúf- mennsku. Og fyrr en varði voru áhyggjur minar horfnar út I veður og vind, er hann vék tal- inu að ættfræði”. Ætlar þú ekki sem leikhús- maöur að fara inn á það svið sálfræðinnar sem hefur tekið leiklistina i sina þjónustu? „Nei, alls ekki. Svokallað „psychodrama” er bara ein af ótal aðferðum til aö lækna fólk, en ég er ekki að læra geðlækn- ingar. Það er allt annað fag. Ég er að læra svokallaða endurhæf- ingarsálfræði (rehabilitation counseling) — að verða það sem amerikumenn kalla counselor, sem útleggst ráðgjafi. En það finnst mér þvi miður aldeilis galómögulegt orð. „Ráðgjafar” i þessum fræðum leggja nefni- lega sem állra fæst ráð. Þeir eru til þess settir að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft til skilnings á vandamálum sinum og þar með að leysa þau sjálft”. Hvers konar endurhæfingu fá- ist þið við? „Megináhersla er á endur- hæfingu fatlaöra. Það að auki er kennd endurhæfing gamal- menna, drykk jusjúklinga , fanga, barna og unglinga (sem ég hef reyndar mestan áhuga á) og fólks sem á við tilfinninga- örðugleika að etja”. t hverju er „ráðgjöf” fólgin? „Einn kennara minna skil- greindi það svo i vetur, að „ráð- gjafi” væri sá af tveim á trún- aðartali, sem ætti við minni örðugleika að etja .á þeirri stund. Alþýða manna hefur öld- um saman vitað að það er hollt að orða vandamál sin, sbr. mál- tækið: „Segðu það steininum fremur en engum”. Reyndar má sjá ágætt dæmi um hvað „ráðgjöf” er i fornbók- menntum okkar, I tvars þætti Ingimundarsonar frá 12. öld. Ivar dvaldi með Eysteini kon- ungi. Hann tók ógleði mikla, er bróðir hans fékk þeirrar konu er hann unni. Konungur bauð hon- um gull og græna skóga, ef verða mætti til að hann tæki gleði sina á ný. En ívar vildi ekkert þiggja. í tvars þætti seg- ir svo að lokum: „Þá mælti kon- ungur: „Vandast mér nú held- ur, þvi að eftir hefi ég nú leitað sem ég kann. Og er einn eftir hluturinn, og er sá alllitils verð- ur hjá þessum, er ég hefi boðið þér, en þó kann eigi geta, hvað helst hlýðir. Far þú nú hvern dag, þá er borð eru uppi, á fund minn, og ég sit eigi um nauð- synjamálum, og mun ég hjala við þig. Skulum við ræða um konu þessa alla vega, þess er þú vill og má i hug koma, og mun ég gefa mér tóm til þessa, þvi að það verður stundum, að mönn- um verður harms sins að létt- ara, er um er rætt. Og nú gera þeir svo, að jafnan er konungur situr eigi yfir vandamálum, þá talar hann oft um þessa konu við ívar. Og þetta hlýddi bragöið, og bættist nú ívari harms sins vonum bráðara. Giaddist hann eftir þetta, og kemur i samt lag sem fyrr hafði verið um skemmtun hans og gleði. Og er hann með Eysteini”. Nú er endurhæfingarráðgjöf að sjálfsögðu félagsleg þjón- usta. Er slik þjónusta ekki fremur af skornum skammti i Bandarikjunum? „Þennan fordóm þekki ég vel, þvi þetta hélt ég lika. Mig fýsti til Bandarikjanna vegna þess frægðarorðs sem af háskólum þeirra fer, enda sýnist mér það vel verðskuldað. Hins vegar komst ég að raun um það að Bandarikjamenn hafa framúr- skarandi löggjöf um endurhæf- ingu og rétt alls almennings til að njóta hennar ókeypis. Nú er nýbúið að ákveöa að þegar þröngt gerist i búi og skerðist um fjárveitingar, þá skuli þeir sem verst eru settir, þ.e, fjöl- fatlaðir, hafa algjöran for- gang”. Hvernig likar þér við Amerikana? „Ég var nú hálfhvumpinn fyrstu dagana, þegar alls konar bláókunnugt fólk var að segja hæ! og bjóða mér góðan daginn á götum úti með bros á vör. Ég tala nú ekki um, þegar það tók mig tali og fór að grennslast um liðan mina. En nú finnst mér þetta afar notalegt. Þeir eru sem sagt alveg sérdeilislega elskulegir”. Elskulegri en Rússar? „A annan hátt. Rússar finnst mér lika elskulegt fólk, en langt frá þvi að vera svona hispurs- laust. En það sem kom mér mest á óvart i Bandarikjunum var hvað mér finnst þeirra menning vera mikið öðruvisi en okkar menning. Saga Evrópu og gildi I nútimaheiminum sýnist mér helst varði allan almenning engu, og sem fyrrverandi nem- andi I latinuskóla hefur það óneitanlega tekið sinn tima að sætta sig við að lifa I landi þar sem Evrópa heyrir til gleymdri fortið, nema þegar ættartölur ber á góma”. Hvað fannst þér merkilegast i náminu? „Annars vegar hvað ég stend vel að vigi (þó ég segi sjálfur frá) miðað við min ágætu skóla- systkini i USA. Ég er ekki frá þvi að sálfræðideildin við H.í. geri mönnum bæði að læra meira og kröfurnar séu sist minni en fyrir B.A. próf i banda- riskum háskólum. Stofnunin þar sem ég stunda nám núna, skiptist i 2 megin- deildir.Við eigum reyndar kost á að sækja tima i báðum. önnur kennir „ráðgjöf” og hin atferlis- mótun (Behaviour modification) og er hæfilegur rigur milli deilda eins og vera ber. En óneitanlega finnst mér einna merkilegast þarna hvað atferlismótun virðist vera i hröðum uppgangi”. Nú er stétt „ráðgjafa” ekki til hér á landi. Hvað er framund- an? „Ég hygg að þörfin sé brýn á . stórauknu starfi að geðverndar- málum á öllum sviðum, ekki sist að samfélagsháttum okkar verði verulega breytt. Ég held lika að smávægilegar fyrir- byggjandi aðgerðir svo sem að kenna fólki að tala saman af fullri einlægni og gagnkvæmri virðingu fyrir tilfinningum hvers annars séu allri ráögjöf betri svo fæstir þurfi að láta sér nægja að „segja það steinin- um”. Hallveig Thorlacius ræðir við Magnús Jónsson um sálfræðiráðgjöf og sitthvað fleira HP-mynd: Friðþjéfur

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.