Helgarpósturinn - 30.11.1979, Blaðsíða 1

Helgarpósturinn - 30.11.1979, Blaðsíða 1
„Varð skotin í komma — giftist krata” Bryndís Schram í Helgarpóstsviðtali Plötugerðin fyrst og fremst hobbí” Ólafur Haukur Símonarson í viðtali HVERNIG META REIKNIMEISTAR AR FLOKKANNA STÖDUNA?© Nú er kosningahelgin fram- undan, og flestir biða úrslitanna með úþreyju. Skoðanakannanir benda til að Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag standi höllum fæti í þessum slag en að Sjálf- stæðisflokkur og Framsóknar- flokkur geti vænst fylgisaukn- ingar. Engu að siður eru þeir menn sem standa i eldlinunni fyrir flokkana hvað varðar fram- kvæmd og skipulag, sammála um að mun meiri óvissa sé nú um úrslitin en oftast áður. Það er einkum tvenntsem þessuveldur: Sá stóri hópur kjósenda sem enn hefur ekki gert upp hug sinn og hins vegar að losið mikia sem komst á kjósendur i sfðustu al- þingiskosningum gerir reikni- meistara flokkanna heldur ruglaða i ríminu. Þessir menn voru hleraðir um það hvernig þeir mætu raunveru- lega stöðu flokka sinna i' þessum kosningum og stöðu annarra flokka. Niðurstaðan er eitthvað á þessa leið: Sjálfstæðisflokkurinn getur fengið frá 23 og upp i 25 þingsæti i þessum kosningum, en hafði 20 áður. Framsöknar- flokkur getur bætt við sig frá einum og upp i' þrjá þingmenn og fengið 13 til 15 þingsæti. Alþýðu- bandalagið getur áttvon á þvl að tapa frá einum manni og upp i þrjá og þar af leiðandi fengið 11 til 13 þingsæti. óvissan er mest um Alþýðuflokkinn. Hann gæti tapað allt frá 2 upp f 5 þingmönnum og komið út með 9 til 12 þingsæti. Um þettaer fjallað i Innlendriyfirsýn i dag. A STREITUTÍMUM Helgarpósturinn rabbar við nokkra sem ættu eftir öllum sólarmerkjum að vera stressaðir um þessar mundir \y BÓKAFLÓÐIÐ © á meti Spjallað við bob nar „Það er orðið sterkt i mér brennivínið — ég geri mér alveg grein fyrir þvi. Það þýðir ckkert fyrir fólk að reyna að hjálpa mér Ég kann ekki gott að meta. Ég er þó ákveöinn I þvi að fara á sjóinn i nokkra raánuði, þegar ég losna héðan. En þótt ég hangi þurr i nokkra mánuöi, þá dettur mér ckki l hug að ég sé laus við brennivinið. En ég á eftir að lifa lengi enn og sá dagur getur runn- iö upp aö ég kasti vininu frá mér. En þá baráttu verö ég að heyja sjálfur og vinna hana upp á eigin spýtur....” Það er einn af drykkjumönnum götunnar sem hefur orðið. Ingvar Georgsson hefur ekki ráðiö viö drykkju sina siðustu 20 árin. Til dæmisvar hann drukkinn eitt ar samfleýtt og hann segist eiga metið I Hverfisteini en þau húsa kynni hefur hann gist I meira en þúsund skipti. Hann er einn þeirra sem tóku sér bústaö i togaranum Siriusi áöur en hann var rifinn I brotajárn en siðan hefur hann ekki átt fastan sama- stað og jafnvel legið úti á ber- angri hvernig svo sem viðrað hef- ur. Hann á enn eftir ögn af stolti — þvi stolti að standa sina pligt þegar hann hefur einu sinni ráð- iö sig i vinnu. Nú er hann I afvötn- un i Hlaðgeröarkoti og þangað heimsótti Helgarpósturinn hann. STRÍÐID vid verðlagið © — Ég hef oft orðið var við þann misskilning, að Verðlagsráð eigi sök á verðbólgunni, segir Georg Ólafsson verðlagsstjóri I samtali við Helgarpóstinn. Þeirtiumenn sem Verðlagsráð skipa og koma saman einu sinni i viku við gamalt og virðulegt borð á skrifstofú verðlagsstjóra að Borgartúni 7 reyna þvert á móti að skera niður allar hækkanir sem mest þeir mega. Vikulega fá þeir allt að tiu beiðnir um verð- hækkanir til umfjöllunar. 1 öðru herbergi á skrifstofunni grass- erar verðbólgan hinsvegar. Þar sitja fjórir menn bakviö háa stafla af verðútreikningum frá innflytjendum og afgreiða sjálf- virkar verðhækkanir á færibandi. Annar þáttur skrifstofu verð- lagsstjóra er eftirlit með verði i verslunum landsins. Það eftirlit annast 12 menn, þar af sex i Reykjavik. Helgarpósturinn fylgdist með einum þeirra I eftir- litsferð I matvöruverslun I Reykjavik. Þau eiga pabba í eldlínu kosninganna LAUGAVEGI 39 Útdregin númer þessa viku: 25. nóv. 26. nóv, 27. nóv. 28. nóv. 29. nóv. 30. nóv. nr. 3168 nr. 5726 nr. 4402 nr. 229 nr. 6210 nr. 7502 UTLA KISAN PlSL BEIMNI I INDÓ-KÍNA SHIRLEY VERÐUR FLUGFREYJA ELVIS KARLSSON KNATTSPYRNUBÆKUR SUPERMAN - OFURMENNIÐ

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.