Helgarpósturinn - 30.11.1979, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 30.11.1979, Blaðsíða 23
__he/garDÚsturinrL. Föstudagur 30. nóvember 1979 23 Hattur og Fattur, Magnús Þór og Mezzoforte Hattur og Fattur: Komnir á kreik. Steinar h/f Það virðist vera tiska hjá islenskum hljómplötuútgef- endum að gefa út barnaplötur, sem segja frá þekktum persónum úr barnatima sjón- varpsins. Hugmyndin hefur oft verið notuð og flestir muna ef- laust eftir plötum með Palla, Emil i Kattholti, Linu langsokk og fleirum. Þessar plötur hljóta að hafa gert stormandi lukku. þvi á siðustu dögum hafa tvær slikar komið út. 1 siðasta pistli var fjallað um plötuna Glámur og Skrámur i sjöunda himni og gerðu talsverða lukku. Siðan hafa þeir komið viða við, unnið að tónlist bæði hér og erlendis og komið fram á fjölda hljóm- platna, bæði eigin og annarra. Magnús Þór Sigmundsson, annar þeirra félaga hefur nú sent frá sér plötuna Alfar, sem hann hefur unnið að undanfarin þrjú ár. Auk hans leika á plöt- uuni Ásgeir Óskarsson — trommur, Tomas Tómasson — bassi, Þórður Arnason — raf- magnsgitar, Pétur Hjaltesded — hljómborð. Sigurður Karlsson — slagverk og þau Ellen Kristjánsdóttir, Jóhann Helga- son og Birgir Hrafnsson aðstoða við sönginn. Tónlistin er i sama Popp eftir Guðmund Rúnar Guðmundsson -mám nú eru það Hattur og Fattur sem komnir eru á kreik. Hattur og Fattur eru skrýtnir karlar sem komu nokkrum sinnum fram i Stundinni okkar fyrir u.þ.b. fjórum árum, en siðan hefur litið i þeim heyrst. Þeir fljúga um loftin blá i furðu- vagni sinum, en þegar sagan hefst eru þeir að koma inn til lendingar á Austurvelli. Lifsvið- horf þessara furðufugla er auð- vitað jafn óvenjulegt og liferni þeirra og þeir sjá margt sem betur mætti fara i skoðunarferð sinni um borgina. Ólafur Haukur Simonarson samdi bæði lög og texta á plöt- unni og leikararnir Arni Blandon og Gisli Rúnar Jónsson syngja hlutverk Hatts og Fatts. Auk þeirra syngur Olga Guðrún Árnadóttir nokkur lög og sjálfur syngur ólafur Haukur eitt lag. Ymsir kunnir hljóðfæraleikarar sjá um undirleikinn, m.a. Gunnar Þórðarson sem einnig stjórnaði upptökunni. Áður hefur ólafur Haukur samið efni á tvær plötur Olgu Guðrúnar auk þess sem hann er þekktur fyrir ritstörf. Hafa þvi eflaust margir auk min, beðið þessarar plötu með nokkurri til- hlökkun. Lögin á plötunni eru einföld, nokkuð lik þvi sem áður hefur heyrst frá honum, en þau eru létt og gripandi og þvi tilvalin á barnaplötu. Hið sama er að segja um textana. Þeir eru ein- faldir, auðskiljanlegir, mikið um endurtekningar og auðvelt að læra þá. Platan hefur þvi þann kost að allir geta sungið með. Textarnir fjalla bæði um það sem Hattur og Fattur gera sjálfir og hvað fyrir augu þeirra ber. Ekki er hér um samfellt ævintýri að ræða, þvi þau fjórtán lög sem platan hefur að geyma eru hvert og eitt sér heild, litið eða ekkert saman tengt. Sú staðreynd að Olga Guðrún skuli syngja nálega helming laganna., dregur enn úr gildi plötunnar sem heildar. Hún á jú að vera um Hatt og Fatt. Ekki þarf þó endilega að lita á þetta sem galla, þar sem grunntónn flestra textanna er sá sami, þ.e. að sanna lifsánægju og gleði vanti i borgarlifið. Þetta er að sönnu börf ábend- ing og vel má vera að börnin dragiafhenni einhvern lærdóm. t heild verður þvi að telja þessa plötu nokkuð vel heppnaða. Efnið og framsetning þess ætti að geta náð eyrum barnanna og jafnvel hinna full- orðnu lika. Ég verð þó að viður- kenna að ég bjóst við og vonaðist eftir heilsteyptara verki, skemmtilegri textum og harðri gagnrýni frá hendi Ólafs Hauks, jafnvel þó um barna- plötu sé að ræða. Ég varð þvi fyrir verulegum vonbrigöum og á von á að svo veröi um fleiri. Magnús Þór: Álfar. Fálkinn h/f. Fyrir u.þ.b. áratug komu þeir Magnús og Jóhann frá Keflavik fyrst fram á sjónarsviðið og stil og fyrri tónsmiðar Magnúsar, sem samdi sjálfur allt efni plötunnar, létt rokk af gamla skólanum án nokkurra athyglisverðra nýjunga. Flutn- ingur hennar er þó með ágætum, ekki sist þáttur þurs- anna þriggja, þeirra Asgeirs, Tómasar og Þórðar. Brandarakarlarnir Tageog Hasse í Ævintýri Picassós ÓviojainanTeg ný gamanmyndj kosin besta mynd ársins 1978! af sænskum gagnrýnendum. Islensk blaðaummæli: Helgarpósturinn „Góðir gestir i skammdeginu” Morgunblaðið „Æ.P. er ein af skemmtilegri myndum sem gerðar hafa verið siðari ár”. Dagblaðið „Eftir fyrstu 45 min. eru kjálkarnir orðnir máttlausir af hlátri. Góða skemmtun”. Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Islenskur texti. Oliver Heimsfræg amerisk- ensk verðlaunakvikmynd i Techni- color og Panavision. Mynd sem hrifur unga og aldna. Mynd þessi hlaut sex Oscars- verðlaun 1969. Aöalhlutverk: Ron Moody, Oliver Reed, Harry Secombe, Shani Wallis og Mark Lester. Sýnd kl. 5 og 9. Laugardag og sunnudag kl. 3, 6 og 9. Eins og nafn plötunnar bendir til, þá fjallar hún um álfa. Þessir álfar eru um margt sér- stakir og má bæði lita á þá sem raunverulega álfa, er horfið hafa úr mannheimi vegna heimsku, grimmdar og græðgi mannanna. Eins virðist mega túlka þá sem tákn hins góða i manninum, einhverja krafta i náttúrunni, sálinni og alheimnum. eða eins og skáldið orðar það: „Álfar byggja andans heim / al- heimsvitund hugarfar / kraftur álfa alls staðar”. Annars mun vera óþarfi að reyna að skilgreina þessa álfa betur. hlustandanum er ætlað að skilja þá með eigin tilfinning- um og finna þeim stað i eigin hugarheimi. Lifsviðhorfið sem fram kemur i textunum ein- kennist af náttúruboðskap hippatimabilsins, flótta frá raunveruleikanum, trú á yfir- náttúrulega krafta (álfa) o.s.frv. Framsetningin er lika gamaldags og minnir á gamla góða daga þessarar sveita- rómantikur. „Þetta er jörðin / sem ég apn / Þetta er landið / sem ég ann / hvað er sveitin / hóllinn minn...” En i dag er öldin önnur og önnur viðhorf sem rikja. Þó Magnús sé alls ekki eini islenski tónlistarmaðurinn sem hefur ekki fylgst með þeim j hræringum sem hafa verið i tón- listarheiminum erlendis undan- farið. þá ætti honum samt að vera ljóst að ekki þýðir að bjóða tónlistarunnendum upp á plötu sem þótt hefði merkileg fyrir tiu árum síðan. Hann ætti að vita að breyttir timar krefjast breyttrar tónlistar, og að hug- mvndafræði af þessari tegund er úrelt og tónlistin bæði gömul og þreytt. Mezzoforte. Steinar h/f. A undanförnum árum hefur hið svokallaða jass-rokk sifellt öðlast meiri vinsældir, bæði hér sem erlendis. Þessi tónlist er eins konar bræðsla ýmissa teg- unda tónlistar sem erfitt er að skilgreina, enda ætla ég ekki að fara nánar út i þá sálma hér. Af þekktum erlendum flytjendum þessarar tónlistar má m.a. nefna hljómsveitina Weather Report og menn eins Chick Corea, Bob James, o.fl. Hér- lendis hafa menn einnig fengist við þessa tónlist og má þar meðal annars nefna Jakob Magnússon sem fyrstur Islend- inga gaf út jazz-rokk plötu. Hún var þó öll unnin erlendis með hjálp erlendra tónlistarmanna og þvi ekki islensk nema að litlu leyti. Núna er hins vegar komin fyrsta alislenska hljómplatan i þessum stil með hljómsveitinni Mezzoforte. Hljómsveitina skipa Friðrik Karlsson — gitar. Eyþór Gunnarsson — hljómborð, Jóhann Asmundsson — bassi, Gunnlaugur Briem — trommur og Stefán Stefánsson — saxófón, en hann mun nú vera hættur i hljómsveitinni. Þetta eru sömu menn og skipuðu Ljósin i bænum, og hafa þeir spilað allengi saman. A plötunni flytja þeir eigin tónsmiðar og eitt lag eftir Gunnar Þórðarson. sem stjórnaði upptöku plötunnar og aðstoðaði við útsetningar. Eins og sjá má af liðsskipan hljómsveitarinnar, þá er enginn söngvari á plötunni, en hljóð- færaleikur þeim mun vandaðri. Allir spila þeir mjög vel og verður gaman að fylgjast með þeim i framtiðinni. l>ó að platan jafnist kannski ekki á við það besta erlendis i þessum stil, þá er hún samt mjög góð. Hún er augljóst dæmi þess að enn skuli vera til islenskir tónlistarmenn sem fvlgjast með og hafi upp á eitt- hvað að bjóða. Tónlistin er sér- stök og sumum finnst hún jafn- vel dálitið þung, en allir þeir sem áhuga hafa á góðri islenskri tónlist ættu að kynna sér hana vel. Með þessari plötu er loksins kominn visir að skap- andi islenskri hljómplötuútgáfu. sem við höfum þurft að biða eftir allt of lengi. Bækurnar sem foreldrarnir eiga líka að lesa Verð kr. 2565.- Verð kr. 4945.- Allir sem lásu Elvis Karlsson hafa beðið eftir Elvis Elvis, nú er hún komin og veldur ekki vonbrigðum hún er frábær. Fást í næstu bókabúð. UNGLINGA- OG BARNABÆKUR HAGPRENTS

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.