Helgarpósturinn - 30.11.1979, Side 24

Helgarpósturinn - 30.11.1979, Side 24
24 Föstudagur 30. nóvember 1979 —helgarpósturinrL. Meðfylgjandi kafli er úr bókinni Þeir vita þaö fyrir vestan eftir Guömund G. Hagaiin,sem kemur út hjá Aimenna bokafélaginu innan skamms. Meö þessari bók lykur Hagalin ritun sjálfsævisögu sinnar, sem er þá oröin 9 bindi og eru nú ö'! fáanleg nema Filabeinshöilin, sem er siöasta bindiö í sagnabálkinum þó aö þaö sé fvrir löngu skrifaö og Ulgefiö. Kjarninn i þessu nýja bindi ævisögunn- ar er frásögn af tsaf jaröarárum Hagalins 1929-46. Þar tók hann mjög mikinn þatt f félagslifinu og stjórnmálunum og var einn af áhrifamestu mönnum Aiþyöuflokksins. Kafiinn hér á eftir fjallar um Alþingis- kosningarnar á tsafiröi 1931. Vilmundur og Finnur, sem koma við sögu eru vitaskuld Vilmundur Jónsson slöar landiæknir og Finnur Jónsson siöar raöherra. Alþingiskosningar á ísafirði 1931 Snemma vors 1930 geröist hér á landi atburöur sem vakti óskipta athygli og olli miklum æsingum. Dr. Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, tilkynnti sjálfum heilbrigöismálaráöherranum, Jónasi Jónssyni aö hann væri geöveikur. Ráö- herrann brá hart viö. Hann settist niöur og skrifaöi bréf, sendi siöan hraöboöa meö þaö til dr. Helga. Efni bréfsins var þaö, aö frá og meö 30. april væri honum vikiö frá embætti. Ráöherrann setti siöan f embætti hans Lárus ladcni Jónsson, sem haföi i" ein þrjú ár kynnt sér geölækningar á dönskum sjúkrahúsum. Ekki tók læknastéttin islenzka þessum aögeröum þegjandi og mun Lárus ekki hafa veriö ofsæll i hinu veigamikla em- bætti, sem hann varö aö vikja úr fyrir dr. Helga i desembermánuöi 1932. Og miklar væringar voru meö Jónasi og læknastéttinni allt tii þess.aö ráöherra- dómi hans lauk. Ekki minntist Jónas á þetta mál viö mig i Patreksfjaröarferöinni, en vissu- lega var þaö út af þvl, sem hann taldi sig i landskjörinu geta. miölaö Haraldi Guö- mundssyni af atkvæöum sinum. En ekki mun Haraldur hafa fengiö mörg fram- sóknaratkvæöi þvi aö geöveikismáliö haföi haft þau áhrif, aö nú var Jónas ekki aöeins dýrlingur i augum fylgismanna sinna, heldur lika pislarvottur! Meíra aö segja mun pislarvættiö hafa aflaö honum atkvæöa úr öörum flokkum, og þess naut hann og Framsókn allt tii þess, aö fram hjá honum var gengiö viö val forsætisráö- herra 1934. Geöveikismáliö haföi vestra ótrúlega mikil áhrif á allan þorra manna. Þótti ákvöröun dr. Helga hin furöulegusta firra, en hins vegar voru menn ekki sam- mála um viöbrögö ráöherrans. Sá vitri maöur, séra Guömundur Guömundsson, lét svo um mælt viö mig, aö eölilegt væri, aö Jónas heföi gert sér mat úr geröveikis- sálgreiningu dr. Helga en hins vegar heföi veriö skynsamlegast af honum aö láta doktorinnhalda embættislnu, þar eö hann mundi vera bezt menntaöi og fróöasti maöur landsins á sinu sviöi. Ég sagöi þeim frá þessu Vilmundi og Finni, og heyröi ég, aö þeir mundu vera gamla manninum sammála. Suöur i Reykjavik voru menn sem töldu aö þetta mikla hitamálgæti oröiö Alþýöu- flokknum gagnlegt. Sjálfstæöisflokkurinn haföi allmikiö fylgi I sveitum landsins, og þess vegna haföi hann ekki sýnt veru- legan áhuga á aö gera þá breytingu á stjórnskipunarlögum landsins, aö tala þingmanna yröi i meira samræmi viö fylgi flokkanna en hún haföi veriö. Nú haföi geöveikismáliöoröiö til þess að gera GUDMUNDUR G. HAGALÍN afstööu sjálístæöisflokksins til Framsóknar mun fjandsamlegri en hún haföi veriö, enda varö sú raunin, að á Alþingi 1931 náöist samstarf milli Sjálf- stæöisflokks og Alþýöuflokks um þá skip- an á vali þingmanna, sem hélzt óbreytt til 1959. Auövitað var þetta samkomulag eit- ur í beinum framsóknarmanna, — þeir töldu þaö jafnvel þjóöhættulegt. Svo flutti þá Sjálfstæöisflokkurinn vantraust á stjórn Tryggva Þórhallssonar, og Alþýöu- flokkurinn tjáöisig mundu greiöa atkvæöi meö þvf. Þá kom þaö eins og þruma úr heiöskíru lofti, aö 14. aprll, þegar ræöa skyldi vantrauststillöguna las forsætis- ráöherra upp konungsbréf um þingrof, enda færu fram þingkosningar 12. júll. Fjárlög höföu ekki veriö samþykkt þegar þetta gerðist, og töldu stjórnarand- stæöingar þetta brot á stjórnarskránni. Sklrskotuöu þeir til umsagnar Einars Arnórssonar, en framsóknarmenn aftur á móti til álits dr. Björns Þóröarsonar, sem sagöi, aö hér væri ekki um aO ræöa þing- slit, heldur þingrof. Olli þetta mál feiknarmiklum æsingum í Reykjavlk og mátti helzt búast viö uppreisn aö sumra mati, en forsætisráöherra ogflokkur hans létu sér ekki seg jast og h jaönaöi svo ólgan smátt og smátt, þótt mikill hiti yröi raun- ar I kosningunum. A ísafiröi áttu framsóknarmenn svo lít- iö fylgi, aö þeir höföu þar engan mann I kjöri en I Noröur-ísafjarðarsýslu bauö sig fram af hálfu stjórnarflokksins Björn H. Jónsson skólastjóri sem var maöur mjög svo réttsýnn ogfrjálslyndur og samþykk- ur bæjarmálastefnu Alþýöuflokksins, en taldi menningarlega hættulegt aö draga úr valdi sveitanna á þingi. Af hálfu Sjálf- stæöisflokksins bauö sig fram Jón Auöunn Jónsson, sem haföi veriö þingmaöur kjör- dæmisins I sýslunni frá 1919, en fyrir Alþýöuflokkinn var i kjöriFinnur Jóns- son. A tsafiröi voru i framboði Vilmundur Jónsson frá Alþýðuflokknum, og frá sjálf- stæöismönnum Siguröur Kristjánsson sem nú var oröinn búsettur I Reykjavík. Lék enginn vafi á þvl aö á Isafiröi væru I kiöriþeirtveii menn.sem væruöörum Is- firöingum harðvitugri I málflutningi. Ég haföi unniö heima fyrir talsvert aö landskjörinu 1930 og ennfremur bæjar- stjórnarkosningum.. Ég haföi þvi kynnzt þeim vinnubrögöum, sem þar þóttu gefa beztan árangur. Þá haföi ég af störfum mlnum i bókasafninu og þeirri áráttu minn' aö fylgjast meö aflabrögöum og sjósókn haft ef til vill nánari kynr.i af al- mennmgi á tsafiröi en flestir aörir. Mátti treysta minni minu á nöfn manna, andlitsfall og svip sem og hvaö hver og einn sa^i við mig. Nú báöu þeir mig, Vil- mundur og Finnur, að stjórna kosninga- skrifstofusem kynnti sér hug almennings og sæi um þaö, aö sem flestir úr bænum eöa noröursýslunni sem yröu fjarverandi heimili sínu á kjördegi, neyttu atkvæöis- réttar sins I skrifstofu bæjarfógeta, svo framarlega sem þeir væru öruggir alþýöufloldcskjósendur Ég tók þetta aö mér, en var þar siöur en svo einn um hituna. Maöur er nefndur Stefán Stefánsson. Hann var sonur Stefáns hreppsstjóra á Brandagili I Hrútafiröi, Ólafssonar, dóm- kirkjuprests Pálssonar, en séra ólafur var kvæntur Guörúnu, dóttur Ólafs dóms- málaritara Stephensen I Viöey. Frá séra ólafi Pálssyni er kominn mikill ættbogi, og einn af sonum hans var séra Páll I Vatnsfiröi, sem átti fjölda barna. Stefán Stefásson var skósmiöur og vann lengi hjá ólafi, bróöur slnum, sem var skósmiöur og skókaupmaöur á Islafiröi. Ólafur var skammllfur, og að honum látnum geröist Stefán forsjá fjölskyldu hans unz börn hans voru uppkomin og aö fullu sjálf- bjarga. Flest náiö skyldfólk Stefáns Stefánssonar fylgdi Sjálfstæöisflokknum aö málum, en hann geröist ötull og áhrifarikur stuöningsmaöur A’þýöuflokks- ins. Stefán haföi átt viö aö búa „hvita dauðann” á yngri árum sinum en sigrast á honum, enda var hann stakur reglu- maöur oe átti jafnan hest, sem hann brá sér á sér til hressinear á öllum timum árs nema frá veturnóttum til þorraþrads. Stefán var maöur mjög vel greindur, minnisgóöur meö afbrigöum og mann- þekkjari, drengskaparmaöur mikill og geröi þær kröfur til þeirra, sem hann studdi i stjórnmálum, aö þeir færu sem bezt meö fé bæjarfélags og rlkis og mætu meira þjóöarhag en sinn eigin. Varö þaö reynslan min, aö hann kostaði kapps um aö vera samvizka Alþýöuflokksins á Isa- firöi. Ogþaö voruþaueinulaun, sem hann kraföist sér tilhanda. Hann gat þvi djarft úr flokki talaö. Ekki var Stefán áheyrileg- ur ræöumaöur en oft talaöi hann á flolcks fundum og á þingum Alþýöuflokksins. Hann stamaöi yfirleitt lítiö i stuttu viö- tali, en til mikilla lýta, þegar hann flutti ræöur. En hann var vanalega stuttoröur og gagnoröur, oft beroröur og beinskeytt- ur, hver sem i hlut átti, og svipurinn þannig aö auöstætt var. aö þar fór sér- stæöur maöur, sem hugsaöi málin. Ræöur hans höföu þvl æriö oft áhrif og mikils var hann metinn I flokknum jafnt syðra sem I heimahögum. I viöræöum var hann oft skemmtilegur enda haföi hann til aö bera kimnigáfu, sem margur heföi mátt öfunda hann af. Viö spiluöum oft saman bridge, og var hann mjög leikinn spilamaður, enda kom þar minniö honum oft aö góöum notum. Hann las annaöhvort verulega góöar skáldsögur eöa vel geröar glæpasögur og skipti allmikiö viö bókasafniö. Hann haföi lengstum þrjá skósmiöi á vinnustofu sinni, og þaö voru yfirleitt vel greindir menn, sem hlustuöu vandlega á viötöl hans viö viöskiptamennina, hvort sem þeir voru á kjörskrá I Noröur-lsa- fjaröarsýslu eöa á Isafiröi. Oft gat hann óbeint fengiö hjá þeim upplýsingar sem voru nokkurs viröi sem heimild um afstööu þeirra eöa annarra, og hann tók talsverk mark á svip þeirra og framkomu ef stórnál eöa bæjarmál bárust I tal. Og þó aö langt væri til kosninga drap hann gjarnan á sllk mál, og þaö brást ekki, að honum vreri það allt tiltækt, þá er kosn- ingar stóöu fyrir dyrum. Hann var og sér- lega fljótur aö frétta, ef menn úr öörum héruöum settust aö i bænum, og komst einhvern veginn aö ætt þeirra og uppruna og jafnvel hvar þeir höföu skipaö sér I flokk. Datt mér oft I hug aö hann hlyti aö hafa „sagnaranda.” Um þaö bil mánuði fyrir kosningar 1931 opnuöum viö kosningaskrifstofu. Höföum viö þá fengiö kjörskrárafrit ekki einungis yfir kjósendur á Isafiröi, heldur líka úr norðursýslunni, eins og jafnan þegar alþingiskosningar fóru I hönd, og ég fékk þegar fram I sótti einnig kjörskrár úr vestursýslunni. Viö Stefán byrjuöum á því aö fara tveir einir yfir kjörskár Isa- fjaröar, og setti Stefán X meö rauöum blýanti framan viö nöfn þeirra kjósenda sem viö vorum vissir um aö kjósa mundu Alþýöuflokkinn, en blátt framan viö nöfn hinna, sem viö töldum víst aö kysu íhald- ið. Fám dögum siöar boöuðum viö svo á okkar fund um þaö bil tuttugu manns úr ýmsum hlutum bæjarins og frá sem flestum vinnustöðum. Vorukonur þar I meirihluta. Slðan var fariö yfir kjör- skrána og bætt við krossum I samræmi viö þær upplýsingar sem viö töldum áreiöanlegar en svo voru hver jum þeim sem fundinn sátu, fengin blöö, er á voru rituö nöfnkarla og kvenna, sem hann eöa hún skyldi forvitnast um. Ég var síöan löngum I kosningaskrifstofunni frá átta aö morgni til tlu aö kvöldi en fór þó nokkuö um bæinn, niöur á bryggjur, I beitingarskúra og I stöku hús, þar sem ég ræddi um daginn og veginn unz ég var oröinn nokkru fróöari en þegar ég kom. Stefán kom vanalega til mín tvisvar þrisvar á dag, og bárum við þá saman bækurnar um þá vitneskju sem viö höfð- um oröiö okkur úti um, og ennfremur spurði Stefán mig, hvort þessi eöa hinn, sem haföi notiö litilar fræöslu I bersku eöa veriö tregur til náms, heföi þegar fengiö tilsögn hjá mér I aö skrifa nafn þing- mannsefnisins I bænum eöa sýslunni, ef hann varþará kjörskrá.Eftirviku eöa tíu daga boöuöum viö til hópfundar á ný, og skiluöu þá bæöi karlar og konur þeim upplýsingum, sem þau höfðu fengið. Þannigvarhaldiöáfram, unzmjög leiö að kjördegi. Þá var tryggu fólki faliö aö sjá um, aö þessieöa hinn kjósandi skilaöi sér ákjörstaö. Ekki fenguþingmannsefnin aö vera afskiptalaus af þvi, hvern vafa- gemlingar kysu, heldur var þeim falin forsjá fleiri eöa færri. V ar erfitt aö fá Vil- mund til sllkra afskipta,enhins vegar var Finnur fús til að gera þaö gagn, sem viö ætluöumst til af honum. Vanalega var haldin kjósendaskemmt- un fyrir kjördag, og bjó ég þá til skrá handa Finniyfir þaö kvenfólk, sem hann skyldi dansa viö, en Vilmundur dansaöi ekki og var meira aö segja ófáanlegur til aö koma á skemmtunina. A kjördegi höföum viö náö i þann bilakost sem unnt var aö fá, en alltaf hafði Sjálfstæöis- flokkurinn fleiri bila. Samt var smalað eftir beztu getu. Þeir Vilmundur og Sigurður Kristjáns-, son boöuöu til fundar og var þar auðvitað troöfullthús. Var viöureign þeirra hörö og löng. Haföi Vilmundur þaö fram yfir Sigurö aö hann gat beitt af sérlegri lagni bæöi háöi og skopi, en Siguröur flutti ræö- ur af hörku og var oft mjög kjarnyrtur og óhllfinn. Þaö varö þó auösætt, aö Vil- mundur haföi meira fylgi á fundinum, og þaö man ég aö eftir lokaræöu hans stóö upp roskinn maöur, sem setiö haföi á innsta bekk, og mælti af mikilli hrifni: „Hvíllk snilld og unun!” Þessi maöur var vitavöröurinn viö Straumnesvita. Kosningin á Isafiröi fór þannig, aö Vil- mundur hlaut 525 atkvæði, en Siguröur 339.1 sýslunni var Jón Auöunn kosinn svo sem viö hafði veriö búizt. Nasst honum komst Finnur, en fæst atkvæöi haföi frambjóöandi Framsóknarflokksins. I upphafi þessarar kosningahriöar þótti ég fljótlega vera furöu slyngur áróöurs- maöur, enda vel kunnugur og óhætt aö segja vinsæll hjá almenningi, og þá litlu slöur hjá konum en körlum, og vildi þvl Sigurbur Kristjánsson slæva vopn min. Birti hann svo eitthvað af þeim um- mælum sem ég haföi sem ritstjóri á Seyðisfirði haft um jafnaðarmenn. Ég skrifaöi þá greinarkorn, sem virtist hafa þjónaö tilgangisinum. Kallaöi ég greinina Frá myrkri til ljóss. Notaöi ég þar sem kjarna þessi orö Páls postula: „Þegar ég var barn, hugsaöi ég eins og barn og ályktaöi eins og barn. Þegar ég var orðinn fulltlöa maöur, lagöi ég niöur barnaskapinn.” Þeir vita það fyrir vestan eftir Guðmund G. Hagalín „Næsta skáldsaga er mjög sérkennileg” segir Guðmundur G. Hagalin i ..Þeir vita þaft fvrir vestan” | er slftasta bindi sjálfsævisögu | Guftmundar Hagaiín, og nær i yfir timabilift frá 1924 til 1946. I Þetta er raunar ekki siftasta timabilift i ævi sinni sem Guft- raundur ritar um, þvl áftur kom ut bók um timabil, sem hefst fjórum árum eftir aft timabili þessarar nýju bókar lýkur. Htin er væntanleg I nýrri útgáfu næsta haust, meft skrá yfir mannanefn og staftarheiti i öllum bokunum. — Þessi bók hefst þegar ég fer til Noregs, og lýkur áriö 1946, þegar ég fer frá Isafiröi. Þang- að kom ég þrítugur aö aldri og íór þaöan 47 ára, segir Guð- mundur I spjalli viö Helgarpóst- ínn. — Þetta er stærsta bindið, í æfisögu minni, og stærstur er tsafjaröarkaflinn. Þessi ár voru Guftmundur G. Hagaltn lika mikill annatimi — málin réöust þannig, aö ég var við ótal störfáöurenég vissi af. Ég var bókavörður, kennari, for- maöur tveggja skólanefnda, formaöur vélbátafélagsins og margt fleira. — A þessum árum skrifaði ég bækur inn á milli annarra starfa. Þá urðu til Kristrún I Hamravik, Virkir dagar, Saga Eldeyjar-Hjalta, Sturla I Vog- um og fjöldi smásagna. — Er ekki hálf undarlegt aö lifa svo aö segja sina eigin ævi tvisvar meö þvi aö skrifa þetta itarlega sjálfsævisögu? — Mér fannst þaö eiginlega ekki undarlegt Ég liföi mig inn i þessa vinnu. Yfirleitt fór ég snemma á fætur, oft klukkan fimm, labbaöi um gólf og hugs- aði. Ég endurlifði og kallaöi fram þá menn sem haföi sam- band viö og áttu þátt I aö hafa áhrif á mig og lif mitt, segir Guðmundur. Um þessar mundir vinnur hann fyrst og fremst af því aö skrifa um bækur fyrir eitt af dagblööunum, en i fórum sinum á hann eina skáldsöguna enn. — Hún kemur út næsta haust — og kannski verður þetta þaö síðasta sem kemur frá mér, enda orðinn áttræður. Um þá söguhef ég ekki leyfitil aö segja annað en, að hún er mjög sér- kennileg, segir Guðmundur Gislason Hagalin aö lokum. — ÞG

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.