Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.01.1980, Qupperneq 22

Helgarpósturinn - 11.01.1980, Qupperneq 22
22 Föstudagurinn 11. janúar 1980 h^lgarDÓsturÍnrU Áttundi áratugurinn II. hluti Áttundi áratugurinn II. hluti Áttundi áratugurinn II. hluti Þratt fyrir allt hefur nýbylgjan gefiö okkur bestu plötur áratugsins, t.d. Blondie loks vera aö vekja verðskuldaða athygli i heimalandinu. Blondie er þó sennilega sú hljómsveit sem náð hefur mestum vinsæld- um úr þessum hópiT átti á siðasta ári mest seldu plötu Bretlands, Parallel Lines. t heimalandinu hefur þeim ekki vegnað eins vel, og segir Clein Burke trommuleikari hljómsveitarinnar svo frá, til að lýsa áliti sinu á ameriska markaðinum: — Það er svo einkennilegt með Amerikanann. Yfirhöfuð hlustar hann ekki á annað en Ted Nugent, Zeppelin eða diskó, en þegar hann heyrir um eitt- hvaö sem kallað er nýbylgja hleypur hann til og kaupir The Knack og heldur aö það sé allt og sumt. Þetta er að visu heldur ósann- gjarn dómur um þessa fjöl- mennu þjóð en hefur þó að geyma þá staðreynd að það sem vinsældalistar sýna að sé mest selda tónlist landsins. er nánast aldrei sú tónlist sem mest er skapandi hverju sinni. Af þess- um sökum er erfitt að gera sér grein fyrir hve vinsæl nýbylgjan raunverulega er i skugga iðnaðarframleiðslu stórfyrir- tækjanna. A þvi sviði er litið gagn að hafa af vinsældalistum, sem sýna aðeins timabundna massasölu. Tónlistin Þó tónlistin sé aðeins einn hluti þessarar hreyfingar, er hún það sem mestu skiptir, sá hluti sem flytur almenningi fagnaðarerindið. Tóniist pönkaranna er hrá og jafnvel gamaldags rokk, flutt af ungum og oft óreyndum tónlistarmönnum, enda er áherslan lögð á að tilfinning lag- anna komist til skila og gott a) Clash, b) Television, c) samband skapist við áheyrend- ur. Annar hluti nýbylgjunnar sem hefur frá siðasta áratug blómstrað í litlum klúbbum, svokallað pub-rokk byggir einn- ig áeinföldu enyfirleitt vönduöu rokki. Allar skilgreiningar og alhæf- ingar i þessu sambandi eru þó mjög varasamar, þvi þrátt fyrir miklár andstæður bæði tónlistar- og hugmyndafræði- legar, er tilfinning nýs tima og nýs fólks alltaf fyrir hendi. 1 þessari áherslu á tilfinningu felst styrkur nýbylgjunnar, og hefur aftur gert tónlistina að baráttutæki ungs fólks fyrir bættu þjóðfélagi. 1 fyrstu bundu margir vonir við þá baráttu og þó hreyfingin hafi ýmislegt gott leitt af sér, hefur hún þvi miður að mestu brugðist á þessu sviði. allrar nýbylgjunnar, reyndu þá leið að starfa fyrir C.B.S. eitt stærsta fyrirtæki á sviði fjöl- miðlunar i heiminum. Þar fengu þeir allan fjárhagslegan stuðn- ing og fyrirgreiðslu, sem þeim var nauðsynleg til að geta stundað gagnrýni sina af krafti. t fyrstu voru þeir fordæmdir fyrir að selja sig stærsta óvini frjálsrar tónlistarsköpunar, en komu á óvart þegar hörð gagnrýni þeirra virðist ekkert ætla að minnka. Sú staðreynd að þeir skuli með baráttu sinni mála andstæðingunum gull, er mótsögn þessarar hreyfingar i hnotskurn sem engin lausn virð- ist vera til á. Eins og áður er helsti vaxtar- broddur tónlistarinnar samt sem áður á litlum útgáfufyrir- tækjum en vegna andstöðu þeirra sem markaðinum ráða og eigin magnleysis, nær sú tón- list aldrei nema til litils hluta fólks. Þó nýbylgjan hafi leitt til mikillar endurnýjunar tón- listarmanna eru öll vandamálin enn óleyst. Að þvi leyti hefur hún brugðist. Grátbroslegasta staðreynd þessa er sú, að eftir alla þá umræðu og auglýsingu sem þessi mikla hreyfing hefur fengið auk þeirra miklu áhrifa sem hún hefur haft skuli það enn vera Led Zeppelin. Yes og Genesis sem skipa efstu sætin i vinsældarkosningum breskra tónlistarblaða. eftir Guömund Rúnar Guðmundsson Elvis Costello. Hann er ekki pönkari heldur poppari dagsins i dag. Parker og Nick Lowe svo og Reggae tónlistarmenn öðluðust sifellt meiri vinsældir. A þessum tima varð einnig mjög mikilvæg breyting á tón- listarmarkaðinum þ.e. litil út- gáfufyrirtæki fara að láta meira að sér kveða og sala litilla platna verður mikilvægari. Fyrirtæki eins og Stiff Records setja sérstakan svip á bransann með látlausum áróðri, þar sem erfitt er að greina mun á gamni og alvöru. Virgin verður stór- fyrirtæki nýju bylgjunnar* taka m.a. við Sex Pistols. Vandamálið var að þó einok- un stórfyrirtækjanna á markaðinum væri þyrnir i aug- um flestrá tónlistarmanna ný- bylgjunnar, vissu þeir að, að- eins i gegnum þessi fyrir- tæki gátu þeir náð til stærsta hluta hlustenda. Sú fyrirlitning sem Sex Pistols sýndu þessari staðreynd varð ekki sú stefnumörkun sem margir höfðu vonað, aðrar hljómsveitir gerðu samn- inga við risa markaðarins, og peningarnir fóru að streyma inn. Meö þeim hvarf i mörgum tilvikum hugsjónin eins og oft vill verða og ný tegund vinsældatónlistar varð til t.d. Joe Jackson. Hljómsveitin Clash, boðberar helstu þjóðfélagsgagnrýni Ian Dury er dæmigerður pönk- ari, getur ekki einu sinni sungið en gerir það samt. Nýbylgjan kærkomin endurnýjun Nýja bylgjan var og er fyrst og fremst endurnýjun lista- manna. Beggja vegna Atlants- hafsins voru helstu stjörnurnar búnar að vera i bransanum ár- um saman, s.s. Stones, Zeppelin, Dylan, Bowie, Elton John o.fl. og var tfmi til kominn að ný nöfn sem eitthvað kvæði að kæmu fram á sjónarsviðið. Eins og fram kom i siðustu grein þá gátu þessar stóru og fjarlægu stjörnur alls ekki talist málsvarar unglinganna á göt- um stórborganna, sem alla tið hafa verið burðarás rokksins. Raunverulega var þvi aðeins spurning hvenær upp risi ný hreyfing þessa þjóðfélagshóps, sem i textum og tónlist túlkaði ný viöhorf eöa a.m.k. viðhorf ungs fólks til lifsins. Þetta reyndist rétt og má segja að sú hreyfing liafi hafist heggja vegna Atlantshafsins svo að segja á sama tima, i kringum 1976. Akveðin forsaga var að þessari bylgju og þróun hennar varð bæði margþætt og eins og vegir guðs órannsakan- leg. Erfitt er þvi að benda á eitt ákveðið atriði og segja, hér er hún komin. A sinum tima voru lika fáir sem gerðu sér grein fyrir hvað úr þessu vrði, algeng- asta viðhorfið varlég veit ekki hvað þetta er, en það er nýtt og þvi gott. Ymsir voru þó til að mótmæla og hneykslast sem leiddi ti! afskipta fréttamauna og þar með má segja að skriöan hafi farið af stað. London 1976 t april 1976 spilaði hljómsveit- tn Sex Pistols fyrst opinberlega ! London. Þeir voru helstu tals- menn hinna svokölluöu pönk- ara, sem meðal annars gerðu sér það til dægrastyttingar og i mótmælaskyni við hvað sem verða vildi, að hrækja á fólk á götum úti. Flestir létu sér fátt um finnast i fvrstu, en þegar ekkert lát virtist ætla að verða á vinsældum þessarar tisku kom peningurinn i spilið. Sex Pistols komust á forsiður blaðanna og gerðu plötusamning við stór- fyrirtækið E.M.I. Hljómsveitin var þó ekki i þessu eingöngu pentnganna vegna eins og út- gáfufyrirtækið og lagði meira uppúr aö vera á siöumdagblaöa i útvarpi og sjónvarpi, en að sýna gömlu mönnunum á E.M.I. samstarfsvilja. Þeir héldu at- hygli fjölmiðla með þvi að sýna alls staðar sitt eðlilega viðmót. en var fyrir vikið meinað að koma fram i flestum hljóm- leikahöllum borgarinnar, að ekki sé minnst á landsbyggðina. t nóvember gáfu þeir út sina fyrstu litlu plötu með laginu Anarchy In The U.K. tStjórn- leysi á Bretlandi) og komu fram i sjónvarpi þar sem h.egðun þeirra var sltk að jafnvel islenska útvarpiö skýrði ýtar- lega frá. Nú þótti E.M.I. nóg komið og rak hljómsveitina. Þetta mun vera einsdæmi i sögu alþjóölegra auðhringa, að gróðavonin skuli látin vikja fyrir hið góöa orð sem hringurinn hefur skapað sér. En virðingar- verð tilraun gömlu mannanna varð til einskis, sprengjan var sprungin. Með sanni má segja að árið 1977 hafi verið ár nýju bylgjunn- ar i öllum þeim formum sem hún birtist. Fram komu pönk- hljómsveitir eins og Clash, Buzzcocks, Stranglers og XTC. Aðrir tónlistarmenn sem engan veginn geta kallast pönkarar s.s. Elvis Costello, Graham New York Eins og áður segir kom upp hreyfing nýbylgju svo til á sama tima í Bandaríkjunum;og höfuð- borg hennar var New York. Htln var aö mörgu leyti ólik þvi sem gerðist i Bretlandi. t þessari höfuðborg menningarinnar eru fjölmargir litlir klúbbar þar sem þrifist hefur mjög sérstök neðanjarðar- (underground) menning. Þessu fyrirbæri er alls ekki hægt að likja við pönkið i Bretlandi þvi þarna skiptir tónlistin mikið meira máli en lifsstillinn. 1 Bandarikjunum er tónlistarmarkaðurinn ltka mjög frábrugðin þvi sem gerist i Bretlandi stóru fyrirtækin sem ráða bæði mestum hluta plötu- útgáfu og útvarps reyna alltaf að sniðganga iistsköpun sem ekki fellur að vinsældaformúl- um þeirra, að ekki sé talað um pólitiskan boðskap. M.a. vegna þessa, auk stærðar landsins, getur i borg eins og New York verið mikil tóniistarhreyfing án þess að almenningur verði nokkurn tima var við hana. Með hljómsveitum á við Tele- vision, Patti Smith Group og Talking Heads i fararbroddi náði þessi byigja þó miklum vinsældum hjá Bretanum og viðar i Evrópu og virðast nú Attundi áratugurinn II. hluti Attundi áratugurinn II. hluti Áttundi áratugurinn II. hluti

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.