Helgarpósturinn - 22.08.1980, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 22.08.1980, Blaðsíða 14
Föstudagur 22.ágúst 1980 halrj^rpn^fi irínn Myndir: Einar Gunnar Jóhanna Siguröardóttir er ein þeirra þriggja kvenna sem nú eiga sæti á Alþingi. Hún á ekki langt aö sækja áhuga sinn fyrir stjórnmáium. Faöir hennar Siguröur Ingimundarson var efnafræöingur, kennari og alþingismaöur og amma hennar Jóhanna Egilsdóttir var mikil baráttukona i verkalýöshreyfing- unni á sinum tima. Viö Helgar- póstsmenn sitjum inn i stofu hjá Jóhönnu og njótum útsýnis langt út á Faxaflóa og lengst út á Reykjanes. Ætlunin er aö reyna aö skyggnast örlitiö á bak viö stjórnmáiamanninn Jóhönnu Sig- uröardóttur. Er hún fædd krati? „Ég myndi nú ekki segja það. Ég haföi allan fyrirvara á i sam- bandi viö jafnaöarstefnuna og geröi mér far um aö kynna mér aöra hluti. Ég vildi velta þessu fyrir mér sjálf. En jafnaöarstefn- an varö ofan á, hún höföaöi mest til min og ég sé þaö alltaf betur og betur aö ég er á réttri hillu I pólitikinni. En auövitaö fékk ég smjörþefinn á uppvaxtarárunum þar sem bæöi pabbi og amma voru á kafi i pólitíkinni og verka- lýösbaráttunni og mikiö var rætt um pólitik á heimilinu. Amma var mjög sérstök mann- eskja og haföi mikinn áhuga fyrir baráttu verkakvenna sem henni fannst búa viö himinhrópandi óréttlæti. Hún talaöi mikiö um konurnar sem unnu I Fiskbreiösl- unni. Þær unnu viö hliö karl- manna, báru fiskinn á börum á móti þeim. Karlmennirnir fengu 25 aura í tfmakaup, en konurnar bara 10 aura fyrir sömu vinnu. betta var þrotlaus barátta sem tók áratugi og ég held aö ein ánægjulegasta stundin I lifi henn- ar hafi veriö þegar lögin tóku gildi áriö 1961 sem tryggöu kon- um sömu laun fyrir sömu vinnu. En þaö er svo sorglegt aö þó jafn- rétti I launamálum hafi náöst á pappirunum, þá hefur þaö ekki náöst i reynd. Konur hafa einblint meira á þaö aö þær komast ekki i sömu stööur og karlmenn en hugaö minna aö þvi gifurlega misrétti sem er rikjandi I launa- málum. En þó ég muni vel eftir ömmu, hef ég kannski meira heyrt og lesiö um hennar baráttu en oröiö beint vitni aö henni. Gaman al ao sja mig yaia Pabbi kenndi mér i Verslunar- skólanum og sýndi mér enga miskunn þrátt fyrir aö máliö væri honum skylt, hann haföi örugg- iega lúmskt gaman af því þegar ég var aö gata upp viö töflu. Mamma var þessi týpíska heima- vinnandi húsmóöir meö fjögur börn, tvenna tvibura. Mér finnst að ég hafi átt ham- ingjusama ævi sem unglingur. Aö visu fengum viö agaö uppeldi, en viö vorum tiltölulega sjálfráö um þaö sem viö vildum gera i lifinu. Og þaö finnst mér góö regla aö vera ekki aö etja börnum út i eitt- hvaö sem þau ekki hafa áhuga fyrir. Þegar ég var svona 3-4 ára, þá hélt mamma aö ég heföi ein- hverja músik i mér. Ef ég heyrði einhverja tónlist i útvarpinu þá hætti ég i miöjum leik og fór aö hlusta mjög andaktug og lét sem ég væri aö stjórna músikinni. Hún sendi mig þess vegna i spilatíma, en þaö gekk heldur brösugiega. Og þegar kennarinn fór aö berja á fingurna á mér meö priki þegar ég spilaöi feilnótur, var mér nóg boöiö og hætti. Þar meö lauk min- um tónlistarferli. Ég var mjög heimakær sem barn, vildi helst alltaf vera heima hjá minu fólki, en var litiö gefin fyrir aö blanda geöi viö ókunnuga. Þaö voru gerðar tvær tilraunir til aö senda Vlðial: trna indrlðaððitir

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.