Helgarpósturinn - 03.10.1980, Side 11
-—he/garpOSturinrL. Föstudagur 3. október 1980.
11
______________________________KVIKMYNDUN
Myndasmiðir framtíðarinnar
í Álftamýrarskóla er kvikmyndagerð
meðal vinsælli áhugamála
„Þetta eru afskaplega erfiðir
nemendur. Það þarf að draga þá
út úr skólanum á kvöldin,” sagði
Marteinn Sigurgeirsson, bóka-
vörður og kennari i kvikmyndun
og ljósmyndun við Alftamýrar-
skóla.
Þessar greinar eru nú kenndar
sem valgrein við skólann og hafa
15 nemendur valið þær i vetur.
Auk þess er kvikmyndun stunduð
i skólanum sem tómstundastarf á
vegum Æskulýðsráðs og þar
hefur verið starfandi kvikmynda-
klúbbur siðustu 5 árin.
Blaðamaður Helgarpóstsins
heimsótti kvikmyndaklúbbinn á
dögunum og hitti þá fyrir fjóra á-
hugasama kvikmyndagerðar-
menn, þau Pálma Sigurhjartar-
son, Sigurð Sigurðsson, Sesselju
Traustadóttur og Guðmar Þor-
leifsson. Það voru m.a. þau, sem
Marteinn hafði ofangreind orð
um.
Þau voru sammála um að við
kvikmyndun væri allt skemmti-
legt, allt frá handriti upp i hljóð-
setningu. Ég fékk að sjá sýnis-
horn af kvikmyndunum sem þau
gerðu i fyrra. Það var leikin
mynd, að öllu leyti unnin af nem-
endunum. Meira aðsegja tónlist-
ina sömdu þau sjálf og fluttu.
Kvikmyndaklúbburinn aflar
fjár til að standa undir kostnaði
við filmur og tæki og er það gert
með þvi að sýna kvikmyndir
fyrir nemendur skólans. Þá eru
fengnar myndir frá kvikmynda-
leigum og Fjalakettinum. Mest
hefur verið um teiknimyndir,
enda eru yngstu krakkarnir fús-
ust til að ganga i klúbbinn. 1 vetur
á þó að reyna að laða eldri
nemendurna að, með að fá ein-
hverjar „krassandi” myndir.
A sumum kvikmyndasýningun-
um er hafður formáli, þar sem
leikarar og ákveðnar gerðir
mynda eru kynnt. Ætlunin er að
koma upp eigin filmusafni i skól-
anum og hafa þegar verið keypt-
ar nokkrar filmur, þar á meðal
afmælisútgáfan á Mikka mús i til-
efni 50 ára afmælis hans.
Kvikmyndagerð krakkanna i
Alftamýrarskóla hefur verið með
ýmsu móti. M.a. var i fyrra gerð
mynd um 7 ára krakkana og
komu þar mörg skemmtileg til-
svör. Þá var gerð ljóðræn mynd
um haustið, myndin Dimmur
hlátur, þar sem efnið var sótt i
Stein Steinarr, mynd um myndun
og mótun Islands og mynd um
flug.
Myndun og mótun Islands fékk
viðurkenningu á kvikmyndahátið
SAK (Samtaka áhugamanna um
kvikmyndagerð) i fyrra og
Dimmur hlátur fékk bronsmerki
á Norðurlandahátið i Sviþjóð.
„Erfiðu nemendurnir” að störfum
mar.
Höfundur hennar heitir Benedikt
Stefánsson.
A hverju ári hefur kvikmynda-
klúbburinn tekið upp skaup fyrir
árshátiðina, þar sem gert er grin
að kennurum og nemendum.
Vinna við næsta skaup er að fara i
gang núna og margar hugmyndir
um kvikmyndir eru i mótun.
Margt annað er i bigerð hjá
kvikmyndaklúbbnum, sem hefur
hlotið nafnið „Alftafilm”. Þar á
meðal er fyrirhuguð stofnun
Siguröur, Pálmi, Sesselja og Guð-
„öldungadeildar”, sem yrði opin
fyrrverandi nemendum skólans,
en i fyrra útskrifaðist öflugur
hópur kvikmyndagerðarmanna.
Sumir þeirra fóru á námskeið
fyrir leiðbeinendur hjá Æskulýðs-
ráðiog hafa lýst sig reiðubúna til
að segja fyrrum skólasystkinum
sinum til.
Það eru semsagt engar likur á
að kvikmyndaáhugafólki Alfta-
mýrarskóla leiðist i vetur og
sennilega þarf áfram að henda
þeim út úr skólanum á kvöldin.
BÓKBAND
Guðjón á talsvert magn bóka og þær bera það sfður en svo með sér að
áhugamaður hafi séð um bókbandið.
Bindur bækur
sínar inn sjálfur
Rætt við Guðjón Eiríksson, sem bjó
sig í tíma undir eftirlaunaaldurinn
„Ég hef sjálfur bundið inn
næstum allar mfnar bækur” sagði
Guðjón Eiríksson, einn þeirra
sem lært hafa bókband sér til
gagns og ánægju.
Guðjón fór á námskeið I
Handiðaskólanum fyrir 26 árum
til að læra bókband. „Mér datt I
hug að hafa eitthvað að gera, þeg-
ar ég færiað eldast,” sagði hann.
1 dag telur hann sig hafa bundið
inn allt að þúsund bækur
Allar þær bækur, sem Guðjón
hefur safnað að sér eru eftir
íslenska höfunda og flestar voru
þær keyptar óinnbundnar. Þó
kveðst hann hafa gert nokkuð af
þvi að taka bækur úr vélbandi og
binda þær inn aftur.
„Það er orðið erfitt að fá óinn-
bundnar bækur,” sagði hann.
.Þetta er allt orðið vélbundið. En
vélbandið er lélegt. Ef maður
missir bók i gólfið, þá er hún ónýt.
Handbundnar bækur endast mun
betur”.
Auk þess að binda inn bækurnar
sinar, hefur Guðjón gert nokkuð
af þvi að safna tímaritum og
binda þaú inn. Þar á meðal eru
Náttúrufræðingurinn, Lesbók
Timans, Heima er best og Úrval.
Fyrst i stað batt Guðjón aðeins
inn eigin bækur, en svo fóru kunn-
ingjarnir að leita til hans og þá
spurðist handbragð hans fljótt út.
Hann hefur jafnvel fengið senda
bókakassa frá Vesturheimi frá
íslenskri konu, sem bað hann að
binda inn fyrir sig.
Guðjón sagði að þau tæki sem
til þyrfti, væru ekki mjög dýr,
enda væru þau öll handverkfæri.
Sumar bókapressurnar sinar
hefur hann meira að segja smiðað
sjálfur og telur ekki mikið merki-
legt.
Bókband Guðjóns er sérstak-
lega fallegt og verður ekki séð að
þar hafi áhugamaður verið að
verki. Það eina, sem hann hefur
ekki gert mikið af sjálfur, er
stafagyllingin.
„Ég hef svolítið þreifað mig
áfram með að gylla sjálfur, en hef
ekkert getað lært í þvi. Gylling er
aðeins kennd i Iðnskólanum og þá
verður að taka alla iðngreinina.
Ég vildi helst geta gert þetta
sjálfur, þvi það kostar jafn mikið
að gylla og að binda inn.”
Það er svolitið sérstakt að
menn búi sig undir eftirlaunaald-
urinn á sama hátt og Guðjón og
enn er hann alls óhræddur við að
nema nýjar kunstir. Eftir að hann
missti konu slna fyrir fjórum ár-
um brá hann sér í húsmæðraskóla
í tvo mánuði til að læra elda-
mennsku og getur nú bæöi mat-
reitt og bakað.
„Mér leiðist aldrei,” sagði
hann. „Bókbandið er þannig
starf, að það má alltaf gripa i það
og svo er þá hægt að lita i bækurn-
ar.” —SJ
Pétur
Guðjónsson
áferðalagií
NEWYORK
í New York gefur að líta alla heimsbyggðina í
hnotskurn. Þar eru öll þjóöerni, öll trúarbrögð, öll
form húsagerðarlistar, öll þjóðerni matargerðar, allt
vöruúrval heimsins, mestur fjöldi skýjakljúfa, er
gefur borginni þann stórkostleik, er fyrirfinnst
aðeins í New York. Heimsókn á topp Empire
State-byggingarinnar, R.C.A.-byggingarinnar eða
World Trade Center, 110 hæöir,
opinberar hvað bezt þennan
einstæða stórkostleik.
World Trade Center, með
heilu verzlunarhverfi neðanjarö-
ar, er syðst á Manhattan-eyjunni,
langri og mjórri, liggjandi frá
norðri til suöurs, en hjarta New
York-borgar er á henni. Hiö
fræga Wall Street, sem er líka
samnafn fyrir stærsta fjármagns-
markaö heimsins, er hér. Hér
rísa risabankarnir í eigin skýjakljúfum, og hér er
stærsta kauphöll heimsins, New York Stock
Exchange. Þar gefur að líta, hvernig jafnvel
smæsti fjármagnseigandi getur orðið eigandi og
þátttakandi í stórfyrirtækjum Bandaríkjanna.
Federal Hall er í Wall Street með minjagripum frá
embættistöku George Washington, fyrsta forseta
Bandaríkjanna. Trinity Church, ein elzta kirkja í
New York, er við enda Wall Street.
China Town er nokkuð til austurs, kínverskt
hverfi í miöri New York með austurlandamat og
austurlenzkt vöruúrval. Nokkuð til norðurs er Wash-
ington Square, aðaltorg í Greenwich Village, sem er
listamannahverfi New York. Þúsundir skapandi
listamanna eiga hér heimkynni, og hér eru haldnar
stórar og litríkar útisýningar. Stórkostleg listasöfn
eru í New York. Frægast er Metropolitan Museum of
Art á 5. breiðgötu í Central Park. Önnur listasöfn,
Frick Collection, Guggenheim, og Museum of
Modern Art eru með stöðugar farandsýningar.
Madison-breiðgatan ofan viö 60. götu býöur upp á
fjölda lítilla sölusýninga (galleries). Central Park,
Miðgaröur, er stór trjágarður á miöri Manhattan-
eyju. Hann gefur aö deginum í góðu veðri tækifæri til
skógargöngu í miöri stórborginni. í honum er
dýragarður. Rétt frá suð-vesturhorni Miðgarös
er Lincoln Center með Metropolltan-óperunni,
leikhúsi og tónlistarhöll. Þar eru fluttar óperur og
haldnir hljómleikar og þar fara fram sýningar á
leikritum og listdansi samtímis.
Nú skal haldiö á 5. breiögötu miöja og skoöuö
St. Patricks-dómkirkjan, gotneskt listaverk í
hæsta gæðaflokki. Við hlið hennar er hið fræga
vöruhús Sack’s 5th Avenue. En andspænis henni er
Rockefeller Center, samsafn stórbygginga byggðra
um 1930, neðanjarðar verzlunarhverfi og skrifstof-
ur Flugleiða. Þetta eru áhugaverðir stoppistaðir á
leiö okkar til aöalbyggingar Sameinuöu þjóðanna,
eins af fyrstu stórverkum hús-
agerðarlistar úr málmi og gleri.
Kynnisferðir eru farnar um að-
setriö og upplýsingar gefnar um
starfsemi SÞ.
Ekkert jafnast á viö ameríska
steik, það vita þeir, sem kynnzt
hafa. Pen and Pencil og The Palm
eru frægir steikarstaðir. í hádeg-
ismat er skemmtilegt að fara á
Sexurnar, 666, 5. breiðgötu,
Rainbow Room í RCA-byggingunni
og Windows of the World í World Trade Center
(laugard. sunnud. og á kvöldin), allir staöirnir á
efstu hæð skýjakljúfa með ógleymanlegu útsýni yfir
borgina. Einnig í Tavern on the Green, (Crystal room)
í Central Park. Snöggur lúxushamborgari á J.P.
Clark á 3. breiðgötu. Á sunnudögum iöar ailt af lífi
í verzlunargötunni Grant Street í gyðingahverfinu
á Lower Eastside. Þar má gera reyfarakaup.
Vöruhús eru Macy, Gimbles, og Alexanders. Hærri
gæöaflokkar eru í Bloomingdales, B. Altman,
Sacks 5th Avenue.
Til hvíldar frá stórborginni eru bátsferðir til
Liberty Island þar sem Frelsisstyttan er eöa
hringferð með bát um Manhattan-eyjuna. Einnig
ganga fljótaskip upp Hudson-fljótið. Við þaö
stendur West Point Military Academy, sem er
frægasti herfræðiháskóli Bandaríkjanna. Fraeg nöfn
nemenda: Mac Arthur, Patton, Eisenhower. í minja-
safninu er veldissproti Görings. Á austurbakka
árinnar í Hyde Park eru heimili Roosevelts og
Vanderbilts, sem eru áhugaverð söfn í dag.
Ef fara á aðeins stutta ferð í frið og kyrrð þarf
ekki út fyrir Manhattan-eyju að fara, því í Fort Tryon
Park er The Cloisters, einstætt safn franskrar og
spánskrar miðaldalistar. Þarna er safni uppruna-
legra herbergja meö upprunalegum listaverkum
komiö fyrir í byggingum sem minna á miðalda-
klaustur.
í sambandi við New York-ferð væri tilvalin 3ja
daga ferö til Washington, einnar fegurstu og
sérstæöustu borgar heimsins.
Ef þú hyggur á ferð til
NEWYORK
geturðu klippt þessa
auglýsingu út og haft hana
með,það gæti komið sér vei.
FLUGLEIDIR