Helgarpósturinn - 03.10.1980, Side 17
17
—he/garpósturinrL. Föstudagur 3. október 1980.
Vinný’s gerð klár fyrir slaginn
„Meiri háttar
hamborgarastaður ’1
„Vinný’s á aö vera meiri háttar
hamborgarastaður”, sagði Þórir
Gunnarsson eigandi Matstofu
Austurbæjar i samtali við
Helgarpóstinn, en eftir rúma viku
stendur til að opna nýjan
hamborgarastað við hliðina á
Matstofunni á Laugaveginum.
Rekstrarstjóri Vinný’s verður
Tommi i Festi, en hann var rúm
tvö ár i Amerlku, þar sem hann
pældi i hamborgurum og borðaði
þá dag og nótt.
Þórir sagði, að hamborgarar
Vinný’s ættu að vera eins nálægt
ameriskum hamborgurum og
hægt er og verða tegundirnar
fimm. Þá verður boðið upp á
samlokur, heitar og kaldar,
mjólkurhristing og gosdrykki.
Fyrirkomulagiö verður eins og á
stöðum sem MacDonald, þar sem
gestir borða standandi upp á end-
ann. Einnig geta menn tekið með
sér heim.
„Við leggjum áherslu á stöðug-
leika okkar vöru, þannig að það
verði alltaf eins að fá Vinný’s og
þá leggjum við einnig áherslu á
lágt vöruverð”, sagöi Þórir.
Þórir sagði, að á Matstofu
Austurbæjar væru þeir með stað
fyrir venjulegt fólk, ,,en viö verð-
um lika að vera með stað, sem
þjónar yngri kynslóöinni, eitt-
hvað sem gengur hraðar fyrir sig
og er ódýrara”, sagði hann.
Vinný’s opnar eftir rúma viku
eins og áður segir, og verður opn-
unartiminn frá kl. 11—23.30.
— GB
Örn Arason gitarleikari
NÝR GÍTARSKÓLI
Í HAFNARFIRÐI
„Skólinn heitir Tarragó-gitar-
skólinn vegna þess, að ég lærði i
Barcelona og hét kennarinn minn
Tarragó, en ég kenni eftir hans
kerfi”, sagði örn Arason gitar-
leikari I samtali við Helgarpóst-
inn. Skóli Arnar er til húsa á
Hverfisgötu 25 i Hafnarfirði og
fara innritanir fram I sima 53527
kl. 9—13 og 17—21.
örn sagði, að yfirleitt væri
kennslu þannig háttað, aö
nemendur kæmu tvisvar i viku og
væru hálfa klukkustund I senn.
„Min kennslutilhögun er þann-
ig, að annar timinn er 25 minútur
og er þar um að ræða einkatima,
þar sem áhersla er lögð á tækni-
lega leiðbeiningu I meðferð
gitarsins og á tónfræöileg atriði”,
sagði örn.
1 hinum timanum, sem er 45
minútur, verða þrir nemendur
saman, þar sem reynt verður að
hafa nemendur á sem likustum
aldri og á svipuðu stigi. Þar verð-
ur lögö áhersla á aö nemendur
nái sem best saman, með þvi að
leika hver fyrir annan og einnig
að leika saman. Er þetta gert til
þess að þeir eigi auöveldara meö
aö koma fram og verði opnari. Til
þess að undirstrika þennan þátt
kennslunnar, veröa haldnir eins
konar tónleikar i lok hvers mán-
aðar, þar sem nemendur koma
fram og verður enginn greinar-
munur gerður á þvi hvort þeir eru
byrjendur eöa lengra komnir. Þá
veröur einnig rakin saga gitars-
ins, gitarinn kynntur og kennari
mun leika eitt verk, þannig aö
nemendur kynnist hvaða möeu-
leikum gitarinn býr yfir. Þá eru
foreldrar og aöstendendur
nemenda hvattir tii þess að koma
og taka þannig þátt i skólastari'-
inu.
Aðspurður sagði örn, aö gitar-
inn væri alltaf vinsælt hljóöfæri i
partíum, þar sem spiluö væru
grip. Sagði hann, aö þaö væri
kennt I skólanum en nemendum
einnig kennt það sem gitarinn
hefur best upp á að bjóða. Nem-
endur geta komiö inn i skólann al-
veg óháð fyrri kunnáttu á hljóö-
færiö og verður hægt aö fullnuma
sig i gitarleik. —G8
h
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri Reykjavik
TRYGGVA8RAUT 14 SKEIFAN 9
S. 21715 23515 S. 31615 86915
Mesta úrvallð, besta þjónustan.
Vlö útvegum yöur atslátt
á bílalelgubilum erlendls.
IVIadurínn bak við nafnið:
Rúnar Qunnarsson dagsskrárgerðarmaður
„Sest ekki niður og fæ
einhverja hugljómun”
„Ég er úr vesturbænum og hef
svo gott sem alltaf biíiö þar”,
sagði Rúnar Gunnarsson dag-
skrárgerðarmaöur I Sjónvarpinu
I samtali við Helgarpóstinn, en
Rúnar hefur nýlega veriö ráðinn
sem dagskrárgerðarmaður I
Lista- og skemmtideild.
Rúnar læröi ljósmyndun hér
heima og siðan i Bandarikjunum,
en fór siöar til Sviþjóðar þar sem
hann var tvö ár við nám i kvik-
myndagerö við Dramatiska Insti-
tutet.
Aðspurður um hvers vegna
hann hafi ákveðið að fara út i
kvikmyndagerö, eftir að hafa lært
ljósmyndun, sagöi Rúnar, að
hann hafi fengið ljósmyndadellu
sem unglingur, en þessi ljós-
myndadella heföi þróast og væri
þetta ósköp eðlileg þróun.
— Hvenær hófstu störf viö Sjón-
varpið?
„1966þegar þaðbyrjaði. Ég var
fyrsti kvikmyndatökumaður
Sjónvarpsins”.
— Þú hefur veriö á hreyfingu
milli deilda innan Sjónvarpsins,
er það ekki?
„Jú, stofnunin hefur veriö að
þróast og mótast, og það er ósköp
eðlilegt, aö ég hafi hreyfst eitt-
hvað til innan hennar i öllum
þessum hræringum. Ég var fyrsti
kvikmyndatökumaöurinn, siöan
útsendingarstjóri frétta, dag-
skrárgeröarmaður i Frétta- og
fræðsludeild og núna i Lista- og
skemmtideild. Mér finnst þetta
ósköp eðlileg þróun”.
— Hvað hefur þér fundist
skemmtilegast að gera?
„Þetta er allt skemmtilegt, en
ég held að það hafi veriö
skemmtilegast að vera kvik-
myndatökumaöur fyrsta áriö,
rétt þegar Sjónvarpið var að fara
af staö. En þeir dagar koma
náttúrulega aldrei aftur”.
Rúnarsagöi, aöhonum litist vel
á nýja starfiö og hefði hann veriö í
þvi áöur, Hann sagöist hafa nóg
af hugmyndum, en ætti eftir aö
ræða þær við sinn dagskrárstjóra.
Dagskrárhugmyndir kæmu jafnt
frá útvarpsráði, dagskrárstjóra,
framkvæmdastjóra og jafnframt
frá þeim sem störfuöu við dag-
skrárgeröina. Einnig frá utanaö-
komandi aöilum.
„Það er ekki þannig, að ég setj-
ist niður og fái einhverja hug-
ljómun. Þaö eru margar leiðir aö
þessu. Sjónvarpið er sist af öllu
einhver privatvinnustofa fárra
dagskrárgeröarmanna”.
Þó Rúnar starfi við kvik-
myndagerö, hefur hann engan
Rúnar Gunnarsson við vinnu
sina
veginn sagt skilið viö ljósmynd-
unina, og þá er hann áhugamaður
um fþróttir. Stundar aðallega
langhlaup, þvi það ersú iþrótt
sem gefur honum hvað mest. Þá
segist hann hafa verið að dútla
við golf, en það sé bara leikur.
önnur áhugamál Rúnars eru
m.a. lestur Helgarpóstsins, „til
þess að fylgjast með þvi sem er
aö gerast i Sjónvarpinu”, eins og
hannoröaði það. — GB
Frá Fjölbrautarskól-
anum í Breiðholti
Kynningarfundur um nám i öldungadeild
Fjölbrautaskólans i Breibholti verður
haldinn þriðjudaginn 7. október kl. 21.00 i
húsakynnum skólans.
Undirbúningsnefndin.
mmit
íAlC*U’*
VIKINGASALUR ■ - ' -
Finnskur inatseðill. '■fj!
Hin fræga, jasshljómsveit DOWNTOWN DIXIE TIGERS leikur.
Tískusýning á hverju kvöldi, sýndur verður fatnaður frá Finnwear.
Kvikmynda- og litskyggnusýningar daglega. Borðpantanir í símum 22-3-21 og 22-3-22. Verið velkomin á Finnlandsfagnað. • ■ > T; j T ••%'.i I
HÓTEL LOFTLEIÐIR 1