Helgarpósturinn - 03.10.1980, Page 19
19
--helgarpOSturinrL- Föstudag ur 3. október 1980.
Myndlista- og handibaskólinn: Er hann gjaldþrota?
r
„SKOLINN GETUR EKKI
HALDIÐ ÁFRAM"
viö alvarleg
Myndlista- og handíöaskólinn á
fjárhagsvandamál aö stríða
„Ef ekki fæst einhver leiðrétt-
ing, þá er ljóst að skólinn getur
ekki haldið áfram”, sagði Einar
Hákonarson, skólastjóri
Myndlista- og handiðaskólans,
þegar Helgarpósturinn spurði
hann um slæma fjárhagsstöðu
skóians.
Einar sagði að við óbreytt
ástand væri ekki hægt að reka
skólann nema i nokkrar vikur, til-
viðbótar því mi þegar væri rikis-
féhirðir hættur að greiöa reikn-
inga. Fjárveitingin væri hrein-
lega búin, og nú lægju um 30 mill-
jónir i ógreiddum reikningum hjá
féhirðum. „Vandi skólans er fyrst
og fremst fólginn i þvi að allar
áætlanir eru skornar niöur af
ráðuneytinu, þannig að þær
standast ekki. Meðal reikninga
sem ekki eru til peningar til að
borgar eru liðir eins og hilsa-
leiga”, sagöi Einar.
Hann sagði ennfremur aö skól-
inn hafi alla tið veriö sveltur f jár-
haglega af stjórnvöldum, og nú
væri t.d. húsnæðismálum hans
þannig háttað að nemendur á
fyrsta ári gætu varla hengt af sér
yfirhafnir. Slik væru þrengslin
„Þetta hús er ekki byggt sem
skólahúsnæöi, og þvi afar
óhentugt, auk þess að þaö er alltof
litið. Hér eru nú um tvö hundruð
nemendur, og búast má við að
þeim f jölgi mjög þegar fólk fer að
koma úr undirbúningsdeildum
fjölbrautarskólanna og frá Akur-
eyri, þar sem einnig hefur verið
sett á fót undirbúningsdeild fyrir
þennan skóla.”
Einar sagöi þaö von sina og trú
að vandi skólans yrði bættur með
aukafjárveitingu.
—GA
Fjalakötturinn áfram
í Regnboganum
Félagar kvikmyndaklúbbsins
Fjalakötturinn lentu i da'litlum
hrakningum um siðustu helgi, er
flytja þurfti sýningar úr Regn-
boganum niðri Tjarnarbió fyrir-
varalaust.
Kom upp einhver snurða á
samstarfi klúbbsins við Regnbog-
ann, en það mál hefur nú veriö
leyst og verða sýningar um þessa
helgi i Regnboganum eins og
boðað hefur verið. Mikil aðsókn
hefur veriö að sýningunum á 1900
eftir Bertolucci og litur út fyrir að
félagar Fjalakattarins verði fleiri
i vetur en nokkru sínni fyrr. Um
þessa helgi er á dagskrá breska
myndin Kom inn eftir Jane
Arden. Fjalakötturinn vill hvetja
félaga sina tii að koma á þær
sýningar sem skirteini eru gefin
út á.
Stereóútvarp
fyrir jól
Tilraunasendingar f steriéi ættu
að geta hafist hjá útv.arpinufyrir
jól. Þau tæki sem til þarf svo
stereóiítsendingar geti hafist eru
væntanleg til landsins frá
Norcgi I lok þessa mánaðar.
Þegar eru fyrir hendi tæki til upp-
töku á stereó, og hefur öll tón-
listarupptaka f Háskólabíói og út-
varpssal, eða stúdió 1, raunar
verið með þeim hætti i átta ár.
Þessar upplýsingar fékk
Helgarpósturinn hjá Jóni Sigur-
björnssyni, tæknistjóra Utvarps-
ins. Hann sagöi einnig, að nUna sé
i bigerö aö flytja Utsendinguna og
þulina Ur stúdió 1 yfir i stúdió 2
meðan gerðar veröa á stúdióinu
nauðsynlegar breytingar svo
hægt veröi aö hefja þar stereó-
sendingar.
— Fyrst i staö veröur bara tón-
list send út i stereó, enda er það
aöalatriðið. Svo hægt veröi aö
auka stereóútsendingar vantar
siðan fleiri stereó upptökutæki,
sagöi Jón Sigurbjörnsson, tækni-
stjóri útvarpsins. — ÞG
Andri frestast
Ljóst er nú að þriðja bindið i strik og Ég um mig frá mér til
sagnabálki Péturs Gunnarssonar min _ kcmur ekki út fyrir þessi
um Andra, — framhald bókanna
vinsælu Punktur punktur komma
Vetrardagskrá hljóövarpsins:
Gamlir „útvarpsjaxlar"
með eftirmiðdagssyrpu
og ekki stendur á skömmunum fyrirfram
Tveir póstar í stað eins
Gömlu „útvarpsjaxlarnir”
Jónas Jónasson, Jón Múli og
Svavar Gests, veröa hver meö
sina „Syrpuna” eftirhádegi virka
daga i vetur. Fyrstur f röðinni
verður Jón Múli, á mánudaginn.
Þá kemur Jónas á þriðjudaginn,
Svavar á miðvikudaginn og Jón
Múli aftur á fimmtudaginn. Hver
þeirra fær tvo og hálfan tima til
umráða i beinni sendingu, og
strangar fyrirskipanir um aö
halda kostnaði i lágmarki.
— Blessaður spuröu mig ekki
um þaö, biddu þangað til ég er
byrjaöur, sagði Jón Múli, þegar
við spurðum hann hvernig þess-
ir eftirmiðdagsþættir hans væru
hugsaðir.
— Þetta veröur mest músik,
Beethoven og Back, kannski
eitthvað af Mozart. En aöal
áherslan veröur lögð á madrigala
og millispil, en nokkrar fúgur fá
sjálfsagt aö fljóta með, var þaö
eina sem varö togaö upp úr hon-
um — svo er bara aö heyra á
mánudagseftirmiðdaginn hvort
hann ætlaðist til aö vera tekinn
alvarlega eða ekki.
— Ég er bara að gera þaö sem
mér er uppálagt, spila músik
fyrir hlustendur, sagði Jónas
Jónasson um sina Syrpu.
— Þetta verður sjálfsagt bæði
popp, gömul og góð mUsík sem ég
kunni að meta á sínum tima og
klassik af léttara taginu. Inn á
milli veröur eitthvert spjall,
eitthvað i áttina til þess sem ég
gæti sjálfur hugsað mér að hlusta
á, t.d. í bilnum. En það er ekki
hægt að vera skáldlegur siödegis,
sagði Jónas og benti á, að hann
renndi algjörlega blint i sjóinn
með þetta og yrði að þreifa sig
áfram.
— En ekki vantar þaö, að fólk
er strax byrjað að skamma mig,
þótt ég sé ekki byrjaður, sagði
Jónas Jónasson.
— Þetta verður aðallega
músík, til þess er ætlast af okkur.
Ætli ég verði ekki mest með dans
og dægurlög, sem fólk undir
tvitugu kallar popp, en við sem
erumá grafarabakkanum köllum
bara dægurlög.
Liklega reyni ég að taka fyrir
einhver temu i hverjum þætti,
ákveðin timabil og ákveðna lista-
menn, og um tveir þriðju verður
erlend tónlist, sagöi Svavar
Gests, sem verður meö sina
fyrstu syrpu á miðvikudaginn —
til mæðu, eins og hann tók sjálfur
fram,en bætti viö, aö hann sé alls
ekki hjátrúarfullur og trúi þess
vegna ekki á þessa miövikudags-
mæöu.
— ÞG
Morgunpóstarnir Sigmar B. og
Páll Heiöar, hafa sem kunnugt er
skilið að skiptum, að sinni a.m.k.
og verður Sigmar kvöldpóstur i
vetur. Hann mun hafa umsjón
með þáttum sem hefjast strax
eftir fréttir, klukkan 19.35, og
verða fjórum sinnum i viku. Páll
verður áfram með Morgunpóst-
inn, en mun fá til liðs við sig að-
stoöarfólk, — núna fyrstu vik-
urnar Ernu Indriðadóttur.
Þáttur Sigmars er óskýrður
þegar siðast fréttist, en hann
hefst þriðjudaginn 7. október.
Þátturinn verður i magasin-
formi, og verður ýmsum dag-
skrárliðum, sem verið hafa i út-
varpinu, þar sópað saman, svo
sem innleggi um lögfræðileg efni,
sveitarstjórnarmál, iönaðarmál,
landbúnaðarmál, og siðast en
ekki sist menningarmál. Þá
verður fjallað um málefni sem
ofarlega eru á baugi i þjóðlifinu,
fréttir, en samkomulag hefur
ekki náðst milli Sigmars og
fréttastofunnar um þau mál.
Sigmar var spurður hvort hann
væri ekki aö grafa undan hug-
myndum um fréttaskýringaþátt,
eins og Viösjá, með þvi að taka
þetta að sér einn, eftir að frétta-
menn hafa neitað aö sjá um hann
vegna aöstööuleysis á fréttastof-
unni.
„Viðsjá var hreinn fréttaskýr-
ingaþáttur”, sagöi Sigmar, ,, og
þessi verður fjölbreyttari. Hann
kemur til meö að fjalla um efni
sem aldrei heföu farið i Viösjá.
Auk þess er aðstaða fréttamanna
ekki verri en annarra hjá stofn-
unni. Þessir þættir, og Morgun-
pósturinn, verða unnir i fimm fer-
metra plássi, þar sem fimm
manns hafa vinnuaöstöðu. Það er
alls ekki mönnum bjóðandi. En
það þýðir ekki aö neita að vinna
aö þáttagerð, heldur reyna að
gera sitt besta”, sagði Sigmar B.
Hauksson.
Hann bætti við að fengjust
fréttamenn útvarps ekki til að
taka að sér fréttaskýringaþætti,
þá mundi hann leita til kollega
þeirra á blöðunum.
Sigmar og Páll Heiðar munu
hafa með sér nokkra samvinnu i
vetur, og munu fylgjast vel með
þvi hvað verður i þætti hins, og
jafnvel reyna einhverskonar
samspil. Þannig munu „okkar
menn i útlöndum”, verða þeir
sömu hjá báðum og þeir hafa i
huga að fylgja málum hvors
annars eftir.
Annars sagði Páll Heiöar
Morgunpóstinn verða með mjög
svipuðu sniði og i fyrra. „Hann
hefst á sama tima, og verður jafn
langur. Fréttirnar sem verið hafa
klukkan átta koma þó ekki inni
þáttinn, heldur verð þær látnar
koma eftir að honum lýkur.”
Efnislega sagði Páll þáttinn
veröa nánast eins og i fyrravetur,
en lögö áhersla á atvinnumálin og
stjórnmálin. Sigmar mundi hins-
vegar leggja meiri áherslu á
menningarmálin. Þá sagði Páll
meira verða lagt uppúr efni er-
lendis frá Morgunpóstinum, en
verið hefur. —GA
Sigmar Páll Heiöar jón Múli Jónas Svavar