Helgarpósturinn - 31.10.1980, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 31.10.1980, Blaðsíða 2
Föstudagur 31. október 1980 he/garpásÝLirÍnn Háskóli íslands undir smásjá: Háskólakennarar heykjast á rannsóknarstörfunum en fyrir þau þiggja þeir á sjötta hundrað milljóna Er Háskóli lslands steinrunnin stofnun þar sem Htillar ný- hugsunar gætir? Er afrakstur af sjálfstæöum rannsöknum, sem fastir kennarar skólans eiga aö sinna jafnhliöa kennslustörfum, bæöi litill og þunnur? Margir háskólamenn, bæöi innan Háskólans og utan hans, eru á þessari skoðun. Þaö sem einna helst rennir stoöum undir þaö eru niðurstööur starfshóps Rann- sóknarráös rikisins, sem undan- fariö hefur gert áttekt á rann- sóknarstarfsemi háskólakennara I raunvisindum. Niöurstaöan er sú, aö þessi starfsemi hefur ekki veriö byggö upp sem skyldi, og starfsemi háskólakennara skilar sér aö mjög takmörkuöu leyti til rannsóknarstarfa. t kjarasamningi háskóla- kennara er miöaö viö, aö 40% af starfsttma fastra kennara, pró- fessora, lektora, dósenta og aö- junkta sé svoköiluö rannsóknar- skylda. Fastir kennarar viö Há- skólann eru 225 talsins, og sam- kvæmt upplýsingum háskóla- ritara er reiknaö meö, aö laun þeirra veröi i ár rdmlega 1419 milljonir króna. Þaö þýöir, aö rúmlega 567 milljónum króna er variö til þessarar rannsóknar- skyidu. Auk þess geta kennarar fengiö leyfi frá kennsluskyldu I eitt misseri á sex missera fresti eöa eitt ár á sex ára fresti til aö sinna rannsóknum. Aö sögn Hall- dórs Guöjónssonar kennslustjóra hafa aö jafnaöi tiu kennarar slfk leyfi á h verjum tima. Auk þess er heimilt aö umbuna kennurum fyrir vel unnin visindastörf meö einum til tvennum mánaöar- launum. En hvaö kemur svo út úr þessum rannsóknum, og hvaö felst f oröinu rannsóknarskylda? Margir háskólamenn, innan há- skölans sem utan hans, eru á þeirri skoöun, aö afrakstur rann- sóknarskyldunnar sé ákaflega misjafn, bæöiaö vöxtum og gildi, Halldór Guðjónsson eftir einstakiingum, og jafnvel eftir deildum. Einn hinna yngri kennara viö skólann oröaöi þaö svo viö Helgarpóstinn, aö raun- verulega hafi þessi rannsóknar- skylda aldrei veriö skilgreind ná- kvæmlega, og hver sé aö ,,pota I sinu horni” meö rannsóknir sinar. Þessi sami kennari benti á, aö litil sem engin umræöa hafi fariö fram um þessi mál innan Há- skólans ,,nema yfir kaffiboilum i vissum hópum”. Þaö kann þó aö standa til bóta, en Guömundur Magnússon rektor hefur boöaö til ráöstefnu i Félagi háskóla- kennara um þessi mál um miöjan mánuðinn. Sú ráöstefna hefur reyndar staðiö til i aö minnsta kosti ár. Þeir sem Helgarpósturinn ræddi viö um þessi rannsóknar- störf fastra kennara viö Há- skólann, sem kveöiö er á um I kjarasamningi þeirra voru á einu máli um, aö i þeim málum Þórir Kr. Þóröarson „mætti gera betur”. Varöandi af- rakstur þessara rannsókna voru skoöanir skiptari, og bentu þeir deildarforsetar og flestir aörir kennarar skólans, sem rætt var viö, á aö gifurlegt starf sé unmö á þessu sviöi en afraksturinn sé mjög erfitt aö meta. Þeir bentu jafnframt á, aö talsvert skorti á fjárstuöning til rannsóknarstarf- seminnar frá hinu oöinbera og vinnuaöstööu kennara, og einnig dragi mikiö kennsluálag ilr af- köstum áþessu sviöi. Þunnur og litill afrakstur Þeir voru samt nokkrir, sem voru fúsir til aö koma meö haröa gagnrýniá tilhögun þessara mála — en undir nafnleynd. — Þaö er áreiöanlega hárrétt, aö afrakstur rannsóknarskyld- unnar er f mörgum tilfellum bæöi þunnur og litill. Þó fer þetta nokkuö eftir deildum. Ég held til Vikingur H. Arnórsson á þessu ári dæmis, aö kennarar viö heim- spekideild ræki sin störf yfirleitt vel, en ég get íicki séö aö þaö hafi komiö mikiö af fræöilegu efni frá ýmsum öörum deildum, sagöi háskólakennari, sem kennir ekki lengur viö skólann en fylgist náiö meö málefnum hans. — Þaömálikabenda á einstaka kennara, sem ég get ekki séö aö hafi mikiö látiö fara frá sér undanfarin ár, nema þaö sem kann aö hafa komiö fram i kennslu. En éghef alltaf litiöá, aö skiptingin i 50% kennsluskyldu, 40% rannsóknarskyldu og 10% stjórnun sé fremur til leiöbein- ingar en endanleg skipting, og þetta blandast saman, þannig aö mörkin eru óglögg Þess erlika aö gæta, aö stjórnunin, þ.e. séta i stjórnum, nefndum og ráöum innan Háskólans, lendir ákafiega misjafnlega mikiö á mönnum. Sumum hæfir ekki aö sinna stjórnunarstörfum, en þau hlaö- ast á aöra, sagöi þessi fyrrver- andi kainari viö Háskólann. Háskdlamaöur, sem stundaöi nám i' Svlþjóö eftir aö hann lauk námi viö Háskólann hér var beö- inn aö gera samanburö á þessum tveimur skólum. — Ég held aö ástandiö þar sé svipaöoghér.Þaöerdýrt sport aö lifa á kennaralaunum og eiga auk þess aö stunda rannsólnir, enda vinna margir háskólakennarar annaö meö. Þessi rannsóknar- skylda er auk þess illa skilgreind eftir Þorgrim Gestsson myndir Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.