Helgarpósturinn - 31.10.1980, Side 23
-^&lg&rtpás+ttririrL-
Grettir
frum-
sýndur
um aðra
helgi
Söngleikurinn Grettir veröur
frumsyndur sunnudaginn 9
nóvember, — um næstu helgi, ef
svo fer sem horfir. Leikurinn
veröur sýndur i Austurbæjarbiói
og fyrst um sinn klukkan níu.
Siöan væntanlega á miönætur-
sýningum i allan vetur.
Að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar, leikhússtjóra LR, er um að
ræða stóra og viðamikla sýningu,
eina af stærri uppfærslum sem
leikfélagið hefur ráðist i. 1 verk-
inu er mikil tónlist, flóknir og
mikiir dansar.
Leikstjóri er Stefán Baldurs-
son, i aðalhlutverkum eru
Kjartan Ragnarsson, Jón Sigur-
björnsson og Sigurveig Jóns-
dóttir, Höfundar verksins eru
sem kunnugt er Olafur Haukur
Simonarson, Þórarinn Eldjárn og
Egill Ólafsson, og Þursaflokkur-
inn leikur tónlistina, sem er af
fjörugra taginu.
Föstudagur-31,-ok+óber 1980
23
—GA
Um ættir
stóðmera
og fleira
hjá BOB
„Helsta bókin hjá okkur i ár, er
Ættbók og saga islenska hestsins
á 20. öld eftir Gunnar Bjarna-
son", sagöi Geir S. Björnsson for-
lagsstjóri hjá Bókaforiagi Odds
Björnssonar, þegar Helgar-
pósturinn spuröi hann um
væntanlegar bækur aö noröan.
Bók Gunnars er 2. bindið, en
fyrra bindið kom út fyrir tólf ár-
um. Þar var sögð starfssaga
Gunnars frá þvi er hann var
hrossaræktarráðunautur en
siðari hluti bókarinnar var um
ættir stóðhesta. 1 2. bindinu er
framhald á starfssögu Gunnars
og einnig er þar ættbók stóðmera.
Merarnar eru það margar, að
siðari hluti þessarar ættbókar
kemur út á næsta ári.
„Þetta er griðarlega mikil bók,
um 400 hundruð siður i stóru
broti”, sagði Geir.
Bókaforlag Odds Björnssonar
gefur einnig út tvær endur-
minningabækur. Þar eru fyrst
endurminningar Gisla Högnason-
ar á Læk i Hraungerðishreppi i
Arnessýslu sem hann skráir
sjálfur.
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um sendir frá sér bókina „Hlaðir i
Hörgárdal”, en þarsegir Steindór
frá þjóðháttum og siðvenjum á
sinum uppvaxtarárum.
Ný útgáfa verður á barnabók-
inni Salómon svarti eftir Hjört
Gislason en sú bók hefur verið
ófáanleg i mörg ár.
Geir S. Björnsson sagði að
venjulega væri forlagið með fleiri
barnabækur, en þeir hefðu gefist
upp á þeim, þvi vonlaust væri að
keppa við erlendu myndabækurn-
ar.
Loks gefur Bókaforlag Odds
Björnssonar út þrjár erlendar
spennusögur. Skal þar fyrsta
telja nýja bók frá metsöluhöfund-
inum Sidney Sheldon og heitir hún
þvi skemmtilega nafni Verndar-
englar. Ken Follett er islenskum
lesendum einnig kunnur og heitir
nýja bókin hans Þrenning. Þá
kemur út bók eftir höfund sem
forlagið hefur ekki verið með
áður. Sá heitir James Barwick og
bókin Skuggi úlfsins.
Lífið er kabarett
Kabarett L.A.
Aöalhöfundur efnis:
Guömundur Sæmundsson.
Stjórnandi og kynnir:
Sunna Borg.
Tónlistarflutningur og útsetn-
ingar. Hljómsveitin Jamaica og
söngkonan Helga Alice. Sýn-
ingarstaöur: Sjálfstæöishúsiö.
treyst á fjárstuöning bæjarins,
að ógleymdum ölmusum að
sunnan, og ekki er þvi að neita
að forráðamenn Leikfélagsins
hafa einum um of ofmetið leik-
listarsmekk Akureyringa. Ekki
svo að skilja að hann sé neitt
betri eða verri en gengur og
gerist á Islandi. Jafnvel hin
virtu og gamalgrónu atvinnu-
Leiklist
áHSsBF eftir Reyni Antonsson
Leikfélag Akureyrar frum-
sýndi föstudaginn 24. október
hinn langþráða kabarett sinn i
Sjálfstæðishúsinu. Ekki var
seinna vænna að leikarar tækju
sjálfir til sinna ráða til að
bjarga þvi sem bjargað verður
af atvinnuleikhúsi á Akureyri.
Þvi miður hefur um of verið
leikhús i Reykjavik verða alltaf
öðru hverju að gripa til þess að
sýna verk sem ekki hafa annan
tilgang en að fylla hálftóma
kassana, og það þrátt fyrir þá
staðreynd að þau hafa tii þessa
verið mun betur haldin fjár-
hagslega frá hendi hins opin-
bera en Leikfélag Akureyrar.
En betra er seint en aldrei, og
nú hafa leikarar L.A. tekið
höndum saman við forráða-
menn Sjálfstæðishússins á
Akureyri og sett á svið kabar-
ettsýningu til fjáröflunar fyrir
félagið. Til liðs við sig fengu
þeir ungan menntamann sem
kosið hefur að þræða hinn mjóa
veg öreigans, Guðmund Sæ-
mundsson. útkoman er hin
bærilegasta kvöldskemmtun.
Það er Sunna Borg sem annast
hefur stjórn uppsetningarinnar
og er hún jafnframt kynnir.
Uppsetningin minnir um margt
á það sem tiðkaðist i kabarett-
sýningum i Þýskalandi og viðar
á árunum fyrir strið, og við
kynntumst svo eftirminnilega i
myndinni Cabaret, enda a.m.k.
tvö laganna úr henni notuð i
sýningunni. A skiptast söngvar,
dansatriði og stuttir gaman-
þættir, en alls eru atriðin tiu og
tekur sýningin tæpan klukku-
tima. Háðið er oítast markvisst
og á stundum dálitið illkvitt-
ið eins og til dæmis i Slipp-
stöðvaratriðinu og Bróðurþels-
atriðinu þar sem (ef til vill af
gefnu tilefni) er gert gys að
núverandi menntamálaráð-
herra. Þarna fá margir sinn
skammt svo sem KEA og Hag-
kaup, óskabarnið Flugleiðir og
Jón Bibliukaupmaður Sólnes, og
eins og vera ber i svona sýningu
er erótikinni ekki meö öllu
gleymt, sbr. Barnaljósmynd-
arann.
Kabarett L.A. mun verða
sýndur næstu föstudagskvöld
eftir þvi sem aðsókn endist, en
ef dæma má eftir viðtökum á
frumsýningu ættu aðstandendur
hans ekki að þurfa neinu að
kviöa i þvi efni. En ein ábend-
ing. Bæta mætti inn i sýninguna
nýjum atriöum eftir þvi sem til-
efni gefast til. Þannig gætu þeir
sem það vildu fariðoftar en einu
sinni og ekki séð nákvæmlega
sömu sýninguna. Það vakti at-
hygli að auk aðgangseyris var
innheimt hið hefðbundna 1000
króna rúllugjald sem að mestu
rennur til rikisins, táknrænt
dæmi um þann skilning sem
háttvirt yfirvöld sýna þeirri við-
leitni að halda uppi menningar-
lífi viðar en á höfuðborgar-
svæðinu. En hvað um það.
Astæða er tilaðhvetja alla til að
leggja leið sina i Sjallann og
lengja lif sitt með svoiitlum
hlátri, og það þrátt fyrir þá
kabarettsýningu sem hið
islenska óðaverðbólguþjóðfélag
hefur daglega upp á að bjóða, og
oft getur einnig verið spreng-
hlægileg.
iSaSáaaMffijiafllj
Innlent lán rí kissjóðs íslands
______________1980 2.F1.
VERÐTRYGGÐ
SPARISKIRTEINI
Fjármálaráðherra hefur f. h. ríkissjóðs
ákveðið að bjóða út til sölu innanlands
verðtryggð spariskírteini að fjárhæð allt
að 3000 milljónir kr.
Kjör skírteinanna eru í aðalatriðum þessi:
Skírteinin eru lengst til 20 ára, bundin
fyrstu 5 árin. Þau bera vexti frá 25. þ. m.,
meðalvextir eru 3,5% á ári. Verðtrygging
miðast við breytingar á lánskjaravísitölu,
sem tekurgildi 1. nóvember 1980.
Skírteinin eru framtalsskyld, en um
skattskyldu eða skattfrelsi skírteina fer
eftir ákvæðum tekju- og eignarskattslaga
eins og þau eru á hverjum tíma. Nú eru
gjaldfallnar vaxtatekjur, þ. m. t.
verðbætur bæði taldar til tekna og
jafnframt að fullu frádráttarbærar frá
tekjum manna, og þar með skattfrjálsar,
enda séu tekjur þessar ekki tengdar
atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi,
sbr. lög nr. 40/1978 og nr. 7/1980.
Skírteinin eru gefin út í fjórum stærðum,
10, 50, 100 og 500 þúsund krónum, og
skulu þau skráð á nafn.
Sala hefst 28. þ. m. og eru sölustaðir hjá
bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum
um land allt, svo og nokkrum
verðbréfasölum í Reykjavík.
Sérprentaðir útboðsskilmálar liggja
frammi hjá þessum aðilum.
Október 1980
SEÐLABANKIISLANDS
—GB