Helgarpósturinn - 06.02.1981, Page 3
3
hpt/rjr^rpn^tl irinn Föstudagur 6. febrúar 1981
Árni Gunnarsson:
„Hef safnad
skuldum”
„Ég hef líklega safnaö skuldum
siöan ég byrjaöi á þingi,” sagöi
Arni Gunnarsson þingmaöur
Noröurlands eystra, er hann var
spuröur almennt um lifsafkomu
þingmanna.' Hins vegar veröur
þvi þö ekki neitaö, aö þingmenn
hafa þaö mjög misgott fjárhags-
lega. Þaö eru annars vegar þeir,
sem engar tekjur þiggja utan
þingfararkaupsins og svo aftur
hinir sem ýmis aukastörf hafa
eöa reka eigin fyrirtæki. Þarna
getur verulegur launamunur
legiö á milli manna.”
„Þaö er langur vegur frá þvi aö
bilastyrkur og styrkur frá Alþingi
vegna dvalarkostnaöar nái aö
greiöa raunverulegar upphæöir
sem eru samfara þessum kostn-
aöarliöum,” sagöi Arni og bætti
við að hann héldi heimili á
tveimur stöðum — þ.e. i
Reykjavik og á Akureyri i kjör-
dæmi sinu.
Þá lét Arni Gunnarsson þess
getiö aö margra orsaka vegna
væri þaö kostnaöarsamt að vera
þingmaður. „A stundum veröa
menn að gista og borða á hótelum
á feröum sinum og einnig bera
þingmenn oft beinan og óbeinan
kostnað af fundarhöldum, blaða-
og bæklingaiítgáfu og fleiru þvi
sem fylgir i pólitisku starfi.”
„Ég lit á þingmennskuna sem
fullt starf og vel það,” sagöi Arni
siðan. „Það er held ég almennt
álit yngri þingmanna að svo sé og
þess vegna eigi þingmenn að
sinna því starfi — og þvi einu.
Ekki vera aö braska i öðrum hlut-
um meðan þeir sitja á Alþingi. t
þessu sambandi get ég ne’fnt, aö
alloft vantar 1/3 þingliðsins er
þingfundir standa yfir, hver svo
sem ástæða þeirrar fjarveru er.
En það skyldi þó ekki vera að
sumir þingmenn hefðu of mikið á
sinni könnu utan beinna þing-
starfa?”
Aö lokum sagöi þingmaöurinn:
„Þótt ég hafi hér að framan bent
á ýmsa kostnaöarliöi samfara
þingstarfinu þá er það fjarri mér
að kvarta yfir minu hlutskipti.
Mér er fullljóst aö mörgum
öörum gengur mun verr en mér
að lifa af launum sinum i þessu
láglaunalandi okkar.”
Arni Gunnarsson á ibúö við
Gullteig i Rvik og ekur um á Saab
96 árg. ’74. Lögheimili hans er á
Akureyri, þar sem hann leitir
ibúð.
Guörún Helgadóttir:
„Enga banka-
innistæöu en
skulda lítiö ”
„Ég greiddi 6,5 milljónir i opin-
ber gjöld áriö 1980, sem var
rúmur helmingur heildartekna,”
sagði Guðrún Helgadóttir
Reykjavikurþingmaður. „Ég sit i
borgarstjórn Reykjavikur þetta
kjörtimabil og hef fyrir. það
nokkrar aukatekjur.” (Borgar-
fulltrúar fá 30% af þingfarakaupi
eða 3600 krónur mánaðarlega og
að auki eru greiddar þóknanir
fyrir setu i nefndum borgarinnar
t.a.m. á annað þúsund krónur
fyrir félagsmálaráðsmenn, en
þar situr Guðrún m.a.).
Þá kvaðst Guðrún hafa nokkrar
tekjur af ritstörfum, en þær færu
að sjálfsögðu eftir afköstum og
útgáfu.
Um lifnaðarhætti sina sagði
Guörún: Ég bý i sambýlishúsi i
eigin ibúö og ek bifreið af tegund-
inni Wartburg ’78. Bankainni-
stæöu á ég enga, en skulda litiö og
greiöi opinber gjöld með ánægju
af hverri krónu, sem ég vinn mér
inn,” sagði þingmaðurinn.
Páll Pétursson:
„Lifi ekki hærra
en aimennt
gerist”
„Ég á hlut i búi norður i Húna-
vatnssýslu, sem ég rek ásamt
konu minni og móöur”, sagöi Páll
Pétursson þingmaður fram-
sóknar i Noröurlandi vestra. „Ég
vinn sjálfur á búinu þegar unnt er
vegna þingstarfa, en verö náttúr-
lega að hafa vinnufólk aö störfum
aö auki”.
Tekjur Páls til viöbótar viö
þinglaunin koma frá búrekstrin-
um, en hann sagði erfitt að meta
raunverulegan arö af búinu frá
ári til árs. „Þetta fer mjög eftir
árferði”, sagöi hann. „Ætli megi
ekki segja að tekjur okkar hjóna
af búrekstrinum á meðalári fari
nálægt upphæð þingfarakaups”.
Meöan á þingstörfum stendur
býr Páll hjá systur sinni hér i
Reykjavik. „Hins vegar á ég 3ja
herbergja ibúö hér i borginni sem
ég leigi út. Sú leigja nægir þó ekki
fyrir kostnaði af ibúðinni”, sagöi
þingmaöurinn.
Um lifstil sinn sagði Páll
Pétursson: „Ég held aö ég geti
ekki leyft mér aö lifa hærra en al-
mennt gerist i þjóðfélagi okkar og
við hjón berumst ekki meira á en
venja er um fólk. Ég hins vegar
leyft, mér flest þaö sem mér
finnst gaman að og aö þvi loknu
er ekki mikið af fjármagni af-
gangs”.
Til viðbótar við þær tekjur sem
áður hafa verið tiundaöar, þá
fékk Páll samtals 100 þúsund gkr.
á siðasta ári fyrir nefndarstörf.
— En hvers vegna deilir þú
starfskröftum þinum sem þing-
maður með búrekstrinum?
„Búseta min og búrekstur i
kjördæmi minu gefur mér tæki-
færi til aukinna samskipta við
mina kjósendur og það tel ég afar
mikilvægt i starfi þingmanns”,
sagöi Páll Pétursson.
Páll á Wolkswagen árg. ’71 og
Blazer árg. ’74.
Guömundur G.
Þórarinsson:
„Hef þad
dágott
fjárhagsiega”
„Ég lækkaöi verulega i launum
er ég var kjörinn á þing, svo
augljóslega er þaö ekki launa-
kjaranna vegna sem ég starfa aö
stjórnmálum,” sagöi Guðmundur
G. Þórarinsson þingmaður úr
Reykjavik. „Ég vinn svolitið
samhliða þingstörfum á verk-
fræðiskrifstofu minni, sem nú
raunar er oröið sameignarfyrir-
tæki, og ætli laun min þar séu ekki
mánaðarlega i kringum 1000 —•
1500 nýkrónur.”
Þá kvaðst Guðmundur einnig
hafa fengið sendar 900 nýkrónur
fyrir formennsku i bygginga-
nefnd Listasafns tslands á siöasta
ári.
„Þessi laun duga mér og
minum alveg ágætlega. Ég er
hófsemdarmaður og fer sparlega
með, auk þess sem kona min
vinnur úti hálfan daginn. A hinn
bóginn hef ég fyrir stórri fjöl-
skyldu að sjá, svo ekki er hægt að
leyfa sér neinn munað fyrir
þessar launatekjur.
„Ég lit svo á, að ég hafi það dá-
gott fjárhagslega. A mina ibúö
skuldlitla, enda langt siðan ég
byggði og skipti nýlega um bif-
reið, keypti Saab árg. '77,” sagöi
Guömundur G. Þórarinsson.
Geir Hallgrímsson:
„Heföi betri
tekjur ef væri
utan
stjórnmáia”
„Til viöbótar viö þingfarar-
kaupiö myndi ég ætla, aö ég heföi
haft 7 og 1/2 gamlar milljónir á
siöasta ári”. sagöi Geir Hall-
grfmsson þingmaöur Reykvik-
inga og formaöur Sjálfstæðis-
flokksins.
Geir sagðist aöspuröur taka
undir þær skoöanir, aö útlagöur
kostnaöur vegna stjórnmála-
starfa væri meiri en i ýmsum öör-
um atvinnugreinum. „Þaö er
ýmis kostnaður sem fylgir þvi aö
vera stjórnmálamaöur”, sagöi
hann. „Kostnaöur sem ef til vill
almenningur gerir sér ekki al-
mennt grein fyrir”.
— En fara menn út i pólitik
launanna vegna? Hvaö meö þig
t.d. i þvi sambandi?
„1 sannleika sagt hef ég orðið
aö ganga á eignir minar þann
tima sem ég hef starfað á vett-
vangi stjórnmálanna. Ég hefði
mun betri tekjumöguleika, ef ég
starfaði sem lögfræðingur eða i
Sýnishorn af húsa- og bifreiðaeign alþingismanna. Þingmenn viröast hafa misjafnlega mikið umleikis
og ber bíla- og húseign þeirra þvi glögg merki að þeir hafa mjög svo mismikla peninga handa á milli. Aö
vera i aukastörfum eða eigin bisness gefur einbýlishús og lúxuskerrur. Þingfarakaupið leyfir hins vegar
aðeins bil af minni geröinni og íbúð i sambýlishúsi.
viðskiptalifinu”, sagði Geir
Hallgrimsson.
Geir býr i einbýlishúsi aö
Dyngjuvegi 6og á Mercedes Bens
bifreiö.
Friðrik Sóphusson:
„Sé ekki
ástæöu til að
kvarta”
„Ég þigg laun vegna setu
minnar i framkvæmdanefnd
rannsóknarráðs rikisins og eru
þau nú i kringum 450 krónur á
mánuöi” sagöi Friörik Sóphus-
son, þingmaöur Reykjvikinga.
„Yfir sumartimann — i minu or-
lofi — hef ég unnið i 6 vikur sem
framkvæmdastjóri frystihúss og
mánaöarlaun min þar voru I
kringum 10 þúsund nýjar krónur.
Eru minar launatekjur þar með
upptaldar”, en hins vegar vinnur
kona min úti hálfan daginn og
leggur sitt til heimilishaldsins”.
Friörik segist aöspuröur hafa
lækkað verulega i launum er hann
settist á þing árið 1978, en áður
starfaöi hann sem framkvæmda-
stjóri Stjórnunarfélags Islands.
„Það er min staðfasta skoðun,
að ef sinna á þingmennsku vel, þá
er illmögulegt að vinna aðra
vinnu með”, segir Friðrik Sóph-
lUsson. „Ég sé hins vegar ekki
ástæðu tií að kvarta yfir afkomu
minni og minna og hef það ágætt.
Hitt er annað mál, að þátttaka i
pólitik er dýrt fyrirtæki. Það er
ýmis Utlagður kostnaöur sem
þingmaður þarf að inna af henda
starfa sinnar vegna”.
Þingmaðurinn ekur um á
Dodge árg. ’74 og býr i eigin húsi i
Smáibúðahverfinu.
„Ætli ég sé ekki meö þeim
tekjuhærri i hópi þingmanna,”
sagði Sverrir Hermannsson þing-
maöur Austfirðinga.” Ég er á
fullum launum sem þingmaður,
en að auki hef ég hálf laun sem
framk væmdastjóri Fram-
kvæmdastofnunar. Þessi laun eru
til samans i kringum 21 þúsund
nýkrónur.”
Aðspurður kvaðst Sverrir
einnig vera hluthafi og stjórnar-
formaður i útgeröarfélaginu
Ogurvik, en heföi af þeim rekstri
engar tekjur. „Ég hef engin föst
laun vegna þeirra starfa og ef
arður skyldi verða af rekstrinum,
þá er hann ekki útgreiddur heldur
fer í uppbyggingu fyrirtækisins.”
Um li'fsstilinn sagði Sverrir:
„Égheldað viðhjóninhöfum ekki
mikið umleikis. Ég bý að visu i
einbýlishúsi og við spörum ekki
sérlega til heimilishaldsins. Við
höldum sem sé ekki sérstaklega i
við okkur, en lifum engan veginn
hátt þrátt fyrir það. Erum
hófsemdarfólk”.
Sverrir sagði þaö dýra útgerð
að vera þingmaöur og sá kostn-
aöur sem Alþingi greiddi, sbr.
bilastyrkur, dvalarstyrkur, simi
og annað væri aðeins litiö brot af
raunverulegum útlögöum kostn-
aði við þingstörfin.
Sverrir á GMC jeppabifreiö og
býr I einbýlishúsi aö Einimel 9.
Sverrir Hermannsson:
„Höfum ekki
mikiö
umleikis”
Vissir þú
að það eru 10 þúsund félagar í VR?
VR er leiðandi afl í launþegamálum og innan
þess er fólk úr meira en 70 starfsgreinum.
I89i-i98l
VR VINNUR
FYRIR ÞIG
viðskipti
&verzlun
Ema Agnarsdittir,
afgreiöslumalmr
í hljómplötuverzluiu
Páll Ólafsson,
kerfi$frœðinffur
í hraðfrystihúsi
Björgvin Hallgrímison, Hólmfríöur Gunnlaugsdóttir,
sendisveinru sœtavísa í kmkmyndahúsú
Magnúsdóttir,
afgreiðslumaður
í apóteki
Þau eru
í stærsta
launþegafélagi
landsins,
Verzlunar-
mannafélagi
Reykjavíkur.